Vikan - 01.07.1948, Page 10
10
VIKAN, nr. 27, 1948
* HElMILIÐ *
/
IUatseðillinn
Eggjamjólk.
2 1. mjólk, 50 gr. hrísgrjón, 80 gr.
sykur, 2 egg, rommdropar, tví-
bökur og ávaxtamauk.
Hrísmjölið er hrært út í % 1. af
mjólk. Það, sem eftir er af mjólkinni,
er látið sjóða, og jafningnum hellt
saman við og þeytt, þar til það sýð-
ur. Soðið í 10 mínútur. Eggin og syk.
urinn hrært saman og látið út í á
meðan stöðugt er hrært í- Romm-
droparnir eru settir út í rétt áður en
súpan er borin fram. Borið fram með
tvíbökum og ávaxtamauki.
Kjötbollur.
250 gr. kjöt, 250 gr. soðnar kart-
öflur, 25 gr. tvíbökumylsna, 25
gr. maizenamjöl, 2 y2 dl. mjólk, 1
til 2 egg, pipar og salt.
Kjötið er þvegið og brytjað smátt,
látið saman við afhýddar, kaldar
kartöflur, tvíbökumylsnu og mjöl.
Allt hakkað tvisvar eða þrisvar í
hakkavél. Síðan eru eggin ásamt
mjólkinni, lítið í senn, látið saman
við, og farsið svo hrært vel- Salt og
pipar látið út í og dálítið af lauk, ef
vill. Bollumar steiktar Ijósar í smjöri.
Bera má fram með þessu kartöflu-
salat eða grænmeti, brúnað smjör eða
tómatsósu.
TÍZKUMYND
Vítt og sítt kotpils úr brúnu flaueli.
Peysur jafnt sem blússur má nota við
það.
HÚSRÁÐ
Búið til bollur úr soðnum kartöfl-
um, veltið þeim upp úr tvíböku-
mylsnu og brúnið á pönnu.
Samband fööur og sonar
Eftir G. C. Myers.
1 mai í fyrra, þegar ég var staddur
úti í skógi, sá ég ungan föður og son
hans vera að veiða silung. Drengurinn
var á að gizka tíu ára. Ég horfði
á þá i nærri tuttugu mínútur áður en
þeir tóku eftir mér.
Þeir virtust vera mjög samrýndir
félagar. Ég sá fagnaðarsvipinn á
andliti föðurins og heyrði hrifningar-
orð hans, þegar drengurinn dró silung
á land.
Ég gaf mig á tal við þá og ákafinn
og gleðin leyndi sér ekki, þegar fað-
irinn var að segja frá veiði þeirra,
einkum veiði drengsins.
Ég kom heim fiskilaus um kvöldið,
en ég hafði eignast ánægjulegar og
dýrmætar endurminningar.
Alltaf þegar ég kem í dýragarð,
cirkus, náttúrugripasafn, listasafn,
kirkju eða á hljómleilja veiti ég því
athygli, ef ég sé föður með son, og
fátt veitir mér meiri ánægju en að sjá
þann gagnkvæma skilning og félags-
anda, sem jafnan má sjá milli feðga
á svona stöðum.
Um nokkurra ára skeið naut ég
þeirra sérréttinda að vera nákunnug-
ur manni, sem hafði mikla þekkingu
á listum og starf'rækti málaraskóla.
Oft heyrði ég hann vekja hrifningu
áheyrenda sinna, þegar hann var að
tala um gildi fegurðar, og lét hann
þá aldrei hjá líða að benda á, að
ekkert væri fegurra en sönn vinátta
og gagnkvæmur skilningur mann.
anna.
Einn af sonum þessa manns var
andlega vanheill. Á hverjum laugar-
degi og á sunnudögum fór þessi mað-
ur í gönguferð með son sinn út í
skóg, jafnvel eftir að drengurinn var
orðinn fullorðinn. Og hvílíka ham-
ingju veitti þetta ekki drengnum!
Og oft hef ég fundið, að það var ein-
mitt þetta samfélag við soninn, sem
auðgaði persónuleika þessa manns.
Ég held ég hafi aldrei hitt hann án
þess mér fyndist ég hafa auðgast af
samverunni við hann.
Fátt er börnum dýrmætara á viss-
um aldri en náin tengsl við föður.
Varáðarráðstafanir gegn möl j
Það er lirfa mölflugunnar, sem
veldur smágötum og skemmdum á
ullarfötum.
Venjulega er það ekki nema lítil-
vægur þáttur í baráttunni við möl-
inn að drepa flugur, sem sjást á
flögri, því að oftast eru þær þá bún-
ar að verpa eggjum sinum. Það þarf
að leita uppi kvenflugurnar, sem
setzt hafa að á dimmum, rólegum
stöðum til að verpa eggjum sínum
þar. 20—25 stiga hiti á bezt við egg-
in og flýtir fyrir þrozka og vexti
lirfunnar, en við 4—5 stig ná eggin
ekki að klekjast út. Þar sem góð
miðstöðvarhitun er í húsum, þrífst
því mölurinn vel.
Mölflugan lcýs rólega, hlýja og
dimma staði til að verpa eggjum sín-
um á og eggin setur hún í ullarefni,
skrepphár, fiður eða eitthvað annað
svipað því, sem lirfan getur lifað á.
Birta, hreint loft otj hreinlœti er
versti óvinur mölflugunnar i barátt-
unni við hana. Eggin og lirfan finnst
venjulega í fellingum og saumum á
fatnaði — eða á þeim stöðum þar
sem erfiðast er að ná til þeirrd, t. d.
meðfram öllum innri saumum. Egg-
in loða ekki við og þess vegna er
hægt að hrista þau af eða bursta og
berja, en bezt er þó að ryksjúga fat-
ið. Mölflugueggin eyðileggjast ef þau
lenda nokkrar klukkustundir úti í
sól.
Kjóla, blússur, kraga og annan
slíkan fatnað, sem hefir komið við
bera húðina, verður að hreinsa og
blettum náð, áður en hann er settur
til geymslu, því að mölflugan mun
vafalaust leita slíkra staða.
Ullarkjóla og -dragtir má setja í
stóra poka um leið og þær hafa verið
viðraðar og burstaðar, en á pokanum
m'ega engin göt eða rifur vera, sem
flugurnar geta komizt inn um.
,,Naftalin“ og ,,paradiklorbenzol“
eru ágæt möleitur, ef þau eru notuð
nokkuð sterk og helzt verður þá að
geyma fatnaðinn i þéttum kössum
eða skápum. Bezt eru þessi nýju skor-
dýraeitur, sem bæði eru sprautuð sem
vökvi og stráð um sem duft og fást
þau í lyfjabúðum.
Ef íbúðir eiga að standa mann-
lausar lengri tíma þarf að ryksjúga
áður gólfábreiður, húsgögn og annað
slíkt og sprauta svo um allt skordýra-
eitri. Bezt er, 'ef hægt er, að opna
öðru hverju slíkar íbúðir og láta blása
í gegn hreint loft.
„Komstu með morgunskóna hans pabba til að skilja þá eftir sem sönn-
unargagn?"