Vikan


Vikan - 24.02.1949, Page 13

Vikan - 24.02.1949, Page 13
VIKAN, nr. 8, 1949 13 FRÆNKURNAR BAENASAGA Ida-Lísa kreisti fimmkróna seðil- inn, í hægri hendi, en tveggjakróna peninginn í þeirri vinstri, samtímis því að hún veifaði með krepptum hnefum til frænkanna, sem stóðu við gluggann hlið við hlið. Ida-Lisa hafði oft heimsótt þessar frænkur sinar. Hana langaði til þess að þjóta af stað heimleiðis. En frænkumar, með hrukkóttu andhtin við gluggann, héldu aftur af henni. Henni var það ljóst, að þær álitu þetta siðasta skiptið sem þær sæju hana. Þær voru svo voðalega gamlar. Yfir hundrað ára áleit Ida-Lisa. Því að þær höfðu lifað undir stjón sex kónga. Stelpan þóttist viss um að þær væru afargamlar. Það þurfti heilan dag til þess að losa Idu-Lisu við áhrif þau, sem heimsókn til frænkanna hafði á hana. Þær sýndu henni afar mikla ástúð, og töluðu mjög vingjarnlega við hana. En raddir þeirra titruðu og minntu á hinn háa aldur þeirra. Ida-Lisa var hrædd við málróm þeirra. Hann var eins og gutlandi andvörp. Þær voru svo tilfinninganæmar. Þær unnu Idu-Lisu afar heitt. Mamma hennar sagði stundum: „Ég er viss um að þær lifa aðeins vegna ástarinnar á Idu-Lisu. Það er nú meira dálætið." Ida-Lisa var óróleg á meðan hún var í heimsókn hjá frænkunum. Hún óttaðist að þær dyttu niður dauðar af hjartaslagi. Hún hafði heyrt full- orðna fólkið tala um að þessi dauð- dagi væri algengur, er um gamalt fólk væri að ræða. Já, hún var full- viss um að þær dæju af hjartaslagi. Og hún vildi ekki vera viðstödd er það kæmi fyrir. Ida-Lisa hugsaði um það, að þær frænkur hefðu of mikið dálæti á sér. Þær sáu enga ókosti á henni. Hún áleit að það yrði ánægjulegra að heimsækja þær ef hún væri ekki engill í þeirra augum. Og þá þyrfti ég ekki að elska þær eins mikið, hugsaði hún. Þær töluðu við hana um Jesú. Mína sagði að Ida-Lisa þyrfti allt- af að halda í hönd hans. Mina hét Hermmine. Idu-Lisu virtist hún vera að ganga upp langan stiga, og Jesú leiddi hana. Frænkurnar töluðu mjög mikið um himnaríki og allt er stóð i sam- bandi við það. Stelpan óskaði eftir því, með sjálfri sér, að þær töluðu minna um Jesú. Henni virtist þær fá hann til þess að koma niður til þeirra, með sinum titrandi röddum. Frænkurnar kunnu biblíuna spjald- anna á milli. Og er Ida-Lisa var mjög ung áleit hún að þær hefðu búið til biblíuna. 1. mynd. . . . Svo segir Kyrus Persakonungur: öll konungsríki jarð- arinnar hefur Drottin, Guð himn- anna, gefið mér, og hann hefur skip- að mér að reisa sér musteri í Jerú- salem í Júda. Hver sá meðal yðar, sem tilheyrir gjörvalli þjóð hans, með honum sé Guð hans, og hann fari heim til Jerúsalem í Júda og reisi musteri drottins, Israels Guðs . . . 2. mynd. Kýrus konungur lét og af hendi kerin úr musteri drottins, þau er Nebúkadnezar hafði flutt burt frá Jerúsalem og sett í musteri guð síns. 3. mynd . . . Jafnskjótt sem afrit- ið af bréfi Artahasta konungs hafði verið lesið fyrir þeim Rehúm og Verst var stagl þeirra um það að þær væru á förum heim til himna- ríkis. Þær nefndu ýmsa muni er Ida-Lisa eignaðist að þeim látnum. Þetta þótti stelpunni afarleiðinlegt um- ræðuefni. Einu sinni fann Ida-Lisa upp á því að skrökva á sig niðrandi sögu. Hún var þá að kafna í skrumi þeirra um hana, og dálæti á henni. Hún sagði þeim frá þvi að hún væri óþæg í skólanum. „Einu sinni hrækti ég t. d. á handavinnuverkefni mitt," mælti hún. Hún hélt áfram langa stund að ljúga upp á sig óknyttum. Hún roðn- aði af æsingu. Frænkurnar hættu að tala um himnaríki, og væntanlegan arf henn- ar eftir þær. Andrea sagði: „Nei, Ida-Lisa! Hvernig gaztu fengið þig til að hegða þér þannig?“ En Mine horfði á systur sína ásakandi augna- ráði, og fóru þær að hlæja. Þær eyddu þessu, og sögðu að börn finndu upp á mörgu skrítnu. Þær reiddust ekki, og ákváðu ekki að gera stelpuna arflausa. Það var öðru nær. Þær fyrirgáfu henni allt. Þær voru líka óttaslegnar af því að þær gætu orðið bráðkvaddar á meðan Ida-Lisa væri í heimsókn. Og þá yrði hún, að líkindum, svo afar hrædd, hlypi svo burt án þess að rétta þeim hjálparhönd. Svo hafði Ida-Lisa vonda sam- vizku vegna peningagjafa þeirra. önnur hvor þeirra gaf henni þó án þess að láta hina vita. Það þótti litlu stúlkunni mjög óviðfelldið, hálf- gerður þjófnaður. Nú ætlaði Ida-Lisa að fara að kveðja. Þá sendi Mina Andreu inn í svefnherbergið til þess að vita hvað klukkan væri. En streix er Andrea var farin, dró Mina skúffu út úr saumaborðinu, tók þar fimm króna seðil og stakk í lófa litlu stelpunnar. Hún mælti: „Héma, góða barn. Vertu sæl. Elskaðu sann- leikann, og hafðu guð í verki með þér.“ Svo laut Mina niður að Idu- Lisu og hvíslaði: „Láttu Andreu ekki vita um þetta." Andrea fylgdi stelpunni til dyra. Mina var svo hrum að hún gat ekki gengið svo langt. 1 anddyrinu, en þar var myrkur, faðmaði Andrea Idu-Lisu að sér, og lét tveggja króna pening í svuntu- vasa hennar. Kerlingin hafði nokkra smápeninga í vasa sínum og glamr- aði í þeim á meðan hún var að leita að gjafarpeningnum. Andrea sagði: „Hérna, góða mín! Taktu við þessu, en segðu ekki Minu frá því að ég hafi gefið þér pening- inn.“ Ida-Lisa faðmaði kerlinguna með öðrum handleggnum því að hún hafði fimm króna seðilinn í hinni hend- inni, og var hrædd um að Andrea yrði þess vör að hún hafði kreppta höndina utan mn hann. Svo þaut Ida-Lisa niður tröppum- ar. En frænkurnar stóðu við glugg- ann, og vissi hvor um sig ekki um peningagjöf hinnar. Það þótti Idu- Lisu leiðinlegt mjög. Hún veifaði til þeirra með krepptum hnefum, og liktist það því að hún ógnaði þeim. Ida-Lisa hljóp heimleiðis svo fljótt sem fseturnir og þrekið leyfðu. Hún vildi sem fyrst losna við þessa pen- inga frænkanna. Henni fannst hún vera með stolna f jármuni. Simsaí ritara og samborgurum þeirra, fóru þeir með skyndi til Jerúsalem til Júda og neyddu þá með ofríki og ofbeldi til að hætta. Þá var hætt við bygginguna á musteri Guðs i Jerúsalem, og lá hún niðri þar til á öðru rikisári Daríusar Persakonungs. 4. mynd. Og drottinn vakti hug Serúbabels Sealtíelssonar, landstjóra i Júda, og hug Jósúa Jozadakssonar æðsta prests og hug alls þess, er eftir var orðið lýðsins, svo að þeir komu og hófu að byggja hús drottins hersveitanna, guðs þeirra, á tuttug- asta og fjórða degi hins sjötta mán- aðar, á öðru ríkisári Daríusar kon- ungs. Mynd lengst til vinstri: W. N. Warren, amerískur piltur, gerðist dansari (geisha) í Japan. Mynd að ofan til hægri: 35 feta hár viti var fluttur á flatbotnuðum báti langar leiðir og settur á nýja undirstöðu. Mynd að neðan til hægri: Fullkomin ensk orðabók nær yfir 600,000 til 700,000 orð. Mynd í miðju: Egypzkar stúlkur báru í fornöld spanskgrænu, blandaða saman við fegurðarsmyrsl, á augnalok sín.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.