Vikan


Vikan - 07.07.1949, Qupperneq 13

Vikan - 07.07.1949, Qupperneq 13
VIKAN, nr. 27, 1949 13 Þrjár litlar mýs Malari nokkur átti tvo syni. Sá eldri hét Hans. Hann var duglegur malari, en afar nizkur. Gætti hann þess vandlega að sópa mylluna svo vel, að aldrei yrði eftir korn né mjöl sem músum og fuglum hefði þó kom- ið vel, því oft eru dýr þessi svöng. Óli, yngri bróðurinn, sagði oft við Hans: „Láttu ofurlítið af korni verða eftir handa músunum. Þær þurfa að borða eins og við.“ Föður Óla geðjaðist illa að því hve greiðugur hann var. Karlinn var nízk- ur eins og Hans. Og eitt sinn sagði malarinn við yngri son sinn: „Þér lætur ekki vel að vera malari. Farðu út í heiminn, og leitaðu annarar at- vinnu sem þér hentar betur.“ Óli var léttlyndur og lét ekki hug- fallast. Hann lét nesti í malpoka sinn og lagði af stað út í heiminn. Br hann hafði lengi gengið var hann orðinn þreyttur. Hann lagðist þá til svefns í útjaðri skógar nokk- urs. Er Óh hafði sofið um stund heyrði hann rödd er sagði: „Vaknaðu, Óli, og hlustaðu á hvað ég hefi að segja þér.“ óli vaknaði, neri stírurnar úr aug- unum, og horfði í kringum sig. Hann BARNASAGA kom auga á þrjár mýs er sátu fyrir framan hann. Ein músin mælti: „Viljir þú verða ríkur og voldugur þá farðu til borgarinnar og beina leið til kon- ungshallarinnar. Kóngsdóttirin hefur heitið því að giftast manni þeim er fundið getur þrjá hluti, sem hún felur. Fram til þessa hefur enginn fundið fleiri en einn hlut, og er prinsessan því ógift enn. Við ætlum að hjálpa -þér vegna þess að þú hef- ur ætíð verið góður við okkur mýsn- ar.“ Óli lagði þegar af stað til konungs- hallarinnar, því að hann vildi gjarn- an fá kóngsdótturina. Þegar hann kom til hallarinnar, var honum fylgt inn í stóran sal. Þar sat kóngurinn í háu hásæti, og um- hverfis hann stóðu allar hirðmeyjarn- ar. Mýsnar hafði Óli i vasa sínum. Ein þeirra skautzt nú upp úr vasan- um, og faldi sig í fellingu glugga- tjalds. Prinsessan mælti: „Hér er gull- hringur með rauðum steini. Ég fel hann. Þú leitar hans, og reynir að Biblíumyndir 1. mynd: Og er hann gekk út úr helgidóminum, segir einn af læri- sveinunum við hann: Meistari, líttu á, hvílíkir steinar og hvílík hús! Og Jesús sagði við hann: Sér þú þessi miklu hús ? Ekki mun hér verða skilinn eftir steinn yfir steini, er eigi verði rifinn niður. 2. mynd: Og er hann sat á Olíu- fjallinu gegnt helgidóminum, spurðu þeir Pétur og Jakob og Jóhannes og Andi'és hann einslega: Seg þú oss, hvenær mun þetta verða og hvert verður táknið, er þetta á allt fram að koma? En Jesús tók að segja þeim . . . um þann dag eða stund veit enginn, ekki einu sinni englarnir á himni, né sonurinn, heldur aðeins faðirinn einn. 3. mynd: „Gætið yðar, vakið og biðjið, því að þér vitið eigi, hvenær tíminn er korninn." 4. mynd: Og er hann var í Betaníu . . . kom þar kona; hafði hún ala- bastursbuðk með ómenguðum, dýrum nardus-smyrslum; . . . og hellti yfir höfuð honum. En þar voru nokkrir, er gramdist þetta . . . Og þeir at- yrtu hana. En Jesús sagði. Látið hana í friði! Hún gerði það, sem í hennar valdi stóð; hún hefur fyrir- fram smurt líkama minn til greftr- unar. finna. Ef það tekst þá er það fyrsti vinningur." Óli svaraði: „Ég mun reyna að leysa þessa þraut.“ Svo var farið með hann inn í annað herbergi. Þar fékk hann mat og drykk, allt beztu teg- undar. Á meðan Óli borðaði faldi kóngsdóttirin hringinn. Hún sagði við hirðmeyjamar: „Óli lítur út fyrir að stiga ekki í vitið. Hann er víst ó- menntaður sveitapiltur. Ég þarf þvi ekki að fela hringinn vandlega. Ég legg hai.n í gluggakistuna.“ Þegar músin hafði heyrt þetta flýtti hún sér til Óla, þar sem hann sat og beið átekta. Músin hvíslaði: „Hringurinn liggur i gluggakistu þriðja gluggans, talið frá dyrunum sem þú ferð inn um.“ Svo gekk Óli inn í salinn, en þar stóð prinsessan og allar hirðmeyjarn- ar. Óli gekk rakleiðis að glugganum, tók hringinn og mælti: „Hér er hring- urinn.“ Prinsessan sótroðnaði af gremju, en hirðmeyjarnar hlóu og kóngur- inn klappaði saman höndunum og sagði: „Þetta tókst vel! Þú gerir aðra tilraun á morgun." önnur músin smaug inn í herbergi kóngsdótturinnar og faldi sig þar. Daginn eftir tók kóngsdóttirin ann- an hring. Hann var með bláum steini. Þennan hring ákvað hún að fela bet- ur en þann fyrri. Þegar Óli kom til þess að leita hringsins um kvöldið, læddist músin til hans og sagði: „Hringurinn hangir uppi í ljósakrónunni meðal hinna skínandi ljósa." Þegar Óli kom inn í sahnn lit- aðist hann um og mælti mjög kurt- eislega: „Má ég ekki slökkva nokkuð af ljósunum svo mér gangi betur að finna hringinn ? " Hann fann hringinn þegar í stað, gekk til prinsessunnar, hneigði sig djúpt, og rétti henni hann. Kóngs- dóttirin reiddist. Henni var orðið órótt innanbrjóts. Nú var einungis eftir þriðja tilraunin eða leitin. Hvar átti hún að fela hvíta gimsteinahring- inn svo Óli fyndi hann ekki? Á meðan kóngsdóttirin hugsaði ráð sitt, fór þriðja músin úr vasa Óla og faldi sig. Allt kvöldið hugsaði prinsessan um tryggan felustað. Að lokum sagði hún: „Ég ætla að láta hringinœ á fingur minn." Og það gerði hún. Þegar Óli kom inn í þriðja sinn, sagði músin honum, hvernig málum væri komið. Óli gekk til kóngsdótturinnar, hneigði sig djúpt, greip hönd hennar og mælti: ,Hér er hringurinn. En ég vil ekki kvænast prinsessu. Ég er malari og vil vera það. Ég vil eiga myllu, mala korn, og gefa músum og fuglum er mér býður svo við að horfa." Kóngur mælti: „Þú skalt fá ágæta myllu að gjöf frá mér. Þú hefur stað- ið þig prýðilega. Kóngsdóttirin varð fegin þeesum málalokum, hana hafði ekki langað til þess að giftast Óla. Hvorugt vildi eiga hitt. Allir urðú því ánægðir með þessi málalok. Og var það vel farið. Veiztu þetta — ? Mynd efst uppi: Fyrstu oliuflutningsvagnar litu svona út. Tankarnir eru úr tré. Mynd að neðan t. v.: Bedúínar í nágrenni Shabwa, (þar sem áður var aðsetur drottningarinnar af Saba) nota enn peninga, sem voru í umferð fyrir 2000 árum. Mynd að neðan í miðju: Það þarf ’rúm- lega hálfa þriðju ekru lands til þess að framleiða nógu mikla fæðu handa einum manni — vel að merkja Ameríkumanni, eftir þeirra eigin heim- ildum að dæma. Mynd til hægri: Vinnuklæðnaður Bontoc Igorot-kvenna (þjóðflokkur á Luzon, stærstu eyju Filippseyja.klasans) er einungis lauf- mittisskýlur, eins og formóðir vor bar.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.