Vikan - 17.11.1949, Síða 1
„LIFAÐ OG LEIKIÐ66 Minningar Eufemíu Waage.
::: :
'
Vikumii er það ánægjuefni að
geta flutt á forsíðu nýja mynd af
þessari virðulegu reykvísku konu,
í tilefni af því, að nýlega eru komn-
ar út minningar hennar, á vegum
Bókfellsútgáfunnar, færðar í letur
af Hersteini Pálssyni ritstjóra.
Blaðið lét taka þessa mynd af henni
fyrir nokkrum dögum og þykir
mikill fengur í að birta hana.
Eufemía Waage er dóttir Indriða
Einarssonar, hins þjóðkunna leik-
listarfrömuðar, Jens B. Waage,
maður hennar, var stoð og stytta
leikstarfseminnar um áratugi, son-
ur hennar, Indriði Waage, er nú
einn bezti leikari og leikstjóri
landsins og sjálf lék hún 39 hlut-
verk hjá Leikfélagi Reykjavíkur á
árunum 1905—1920.
Eufemía Waage fer ekki mörgum orð-
um um sína eigin leikstarfsemi í bókinni,
en víða kemur hún inn á þau mál og segir
m. a.: „Þá kem ég að sjónleikjunum, sem
hafa elt mig eins og syndin alla mína
ævi. Þegar faðir minn kom hingað til
lands 1878 eftir sex ára útivist, var hann
strax fenginn til að stjórna sjónleikjun-
um í bænum. Áður hafði Sigurður Guð-
mundsson málari haft leikstjórnina á
hendi. Hafði hann jöfnum höndum verið
leiðbeinandi og málað tjöldin, en hann
andaðist árið 1874 eða 1875. Held ég, að
Framhald á bls. S.
EUFEMIA WAAGE.
(Öskar Gíslason ljósmyndari tók myndina).