Vikan - 27.06.1991, Blaðsíða 26
vanur. Og segir aö ég geti al-
veg gert þetta fyrir systur mína
að fara. Nú ég fór, ákveðin í
að láta mér leiðast.
Þá er það saga mannsins
míns. Hann er fæddur og upp-
alinn í Keflavík og var orðinn
25 ára þegar þetta gerðist.
Hans tími ( Ungó var liðinn.
Hann haföi ekki komið þangað
lengi og ætlaði ekki í bráð. En
vinur hans þrábiður hann um
að koma með sér þetta kvöld.
Hann (vinurinn) var að sverma
fyrir stelpu sem ætlaði að vera
þarna um kvöldið (systir mín,
frétti ég seinna).
Hann lætur tilleiðast.
Ég sit þarna við borð ásamt
vinum systur minnar og var
ákveðin í að skemmta mér
ekki á þessum hallærisstað.
Nú, þá var verið að bjóða
sígarettur.
Nei takk. Ég reyki ekki.
Reykir þú ekki? segir ein-
hver.
Nei.
Má bjóða þér upp í dans?
Nú, ég gat svo sem alveg
eins dansað eins og að húka
við þetta borð þarna úti í horni.
Þetta var í maí 74 og við höf-
um dansað saman síðan.
■ Ég kynntist honum þannig.
Það var hringt í mig og ég
var beðin um að skutla manni
til Sandgerðis sem ég og
gerði. Og viti menn, ást við
fyrstu sýn.
í dag erum við hamingju-
samlega gift.
■ Við höfðum reyndar þekkst
í fjölda ára eða alveg frá æsku
en þá hittumst við fyrst þegar
við vorum 11 og 9 ára. Þá
ákvað hann að þessi stúlka
skyldi verða konan hans.
■ Við kynntumst á dansleik í
Þórscafé. Hann bauð henni í
dans. Hún sagöi nei, en skipti
stuttu seinna um skoðun og
bauð honum í dans. Hann
sagði já.
■ Við hittumst í júlí 73. Ég
beið í biðröð fyrir framan
skemmtistað á leið á ball. Þá
kom ungur maður aðvífandi
með lúður og blés upp í eyrað
á mér og spurði hvort ég elsk-
aði sig ekki enn. Ég var að
vonum öskureið með hellu fyr-
ir eyrunum. En þetta er nú
maðurinn minn í dag.
■ Okkar fyrstu kynni voru
eins og happdrætti. Við lentum
saman sem par á menntaskóla-
balli á Laugarvatni. Það var
með þeim hætti að þegar
mætt var á ballið var hver og
einn látinn draga sér vísupart
(fyrri eða seinni hluta). Þeir
sem drógu sömu vísu döns-
uðu saman.
Ég man nú ekki vísuna í
augnablikinu en hún endaði
svona:
... við skulum hátta, elskan
min!
PÓSTURINN f VIKUNNI
KEMUR TIL HJÁLPAR
Árið 1980, um haustið, leit
ég í Vikuna og sá að ungur
strákur var að óska eftir
pennavinkonu. Þar sem mér
leist vel á piltinn dreif ég
mig í að skrifa honum. Sið-
an skrifuðumst við á fram að
jólum og í janúar 1981 bauð
hann mér í bíó. Síðan giftum
við okkur í maí 1982 og
skírðum elstu dóttur okkar
um leið.
■ Við kynntumst heima hjá
eiginmanninum í kynningar-
partii fyrir bróður eiginkonunn-
ar og systur eiginmannsins.
■ Foreldrar mínir kynntust á
Atlavíkurhátið, ég held 2-3
árum áður en þau giftu sig, og
segja sjálf að þau hafi verið
óaðskiljanleg síðan. Sem
dæmi um það kom pabbi á
puttanum frá Snæfellsnesi (en
hann er þaðan úr sveit) hingað
til Austfjarða til að stoppa í
fáeina daga og lenti í því að
labba nærri heila nótt á
Möðrudalsöræfum.
■ Ég sá hann fyrst í apríl
1978. Vá hvað ég varð skotin
og vá hvað ég var feimin. Það
var æðislegt þegar ég komst
að því að hann var líka skotinn
og líka feiminn. Sumardegin-
um fyrsta það árið gleymum
við ekki því þá byrjaði allt.
Við fórum á ball í Sigtúni og
þá loksins skildum við að við
vildum vera saman og erum
búin að vera saman síðan.
■ Tildrög þessarar atburða-
rásar voru þau að eins og
margir unglingar sótti ég
sveitaböllin af kappi. Á einu
slíku kynntist ég strák og var
að dillast með honum þetta
ballið. Daginn eftir kom hann
síðan að heimsækja mig og
mæltist eftir frekari kynnum.
Besti vinur hans var með hon-
um - og kolféll ég fyrir „vinin-
um“.
Er ekki að orðlengja það að
síðan höfum við verið gift í
nítján yndisleg ár.
■ Við kynntumst við ákaflega
rómantískar kringumstæður, f
skíðaskála fyrir framan log-
andi arin á síðkvöldi.
■ Kynntumst í útilegu í Laug-
ardalnum í Reykjavík. Við vor-
um nokkrar stelpur sem höfð-
um ekki efni á að fara á dýrt
mót um verslunarmannahelg-
ina sumarið 1973.
Hann og vinir hans höfðu
frétt af því að einhverjar stelp-
ur ætluöu í Laugardalinn og
þar sem þeir höfðu ekki farið
neitt skelltu þeir sér bara
þangað líka.
■ Kynni okkar hófust inni í ís-
helli undir Vatnajökli - í Kverk-
fjöllum 1989. Upp úr því fóru
hjólin að snúast og það endaði
í hnappheldunni sem er alveg
yndislegt.
■ Við kynntumst á bílaþvotta-
plani á Höfn í Hornafirði. Ég
spurði nokkrar stelpur hver
vildi kyssa mig. Ein steig þá
fram og kyssti mig. Síðan
héldu okkur engin bönd.
SPENNANDI SÆNGUR-
ÞJÓFNAÐUR
■ Hér kemur lýsing á% því
hvernig ég kynntist mínum
manni.
Það var í október 1982. Ég
sá hann fyrst í bíó og hugsaði:
„En hvað þessi strákur er
myndarlegur," um leið og
hann gekk framhjá. Svo féllust
mér hendur. Hann var í stór-
um gallabuxum og þær voru
svo síðar um rassinn. Það
hefði sennilega veriö hægt að
setja púða inn í buxurnar.
Þaö hittist þannig á að við
sátum nálægt hvort öðru. Eftir
á, þegar við kynntumst, sagöi
hann að honum hefði litist svo
vel á mig í bíóinu. Þetta var á
(safirði. Ég er þaðan en hann
var að vinna þar tímabundið
við borun fyrir Hafna- og vita-
mál.
Næstu vikur eftir bíóið sá ég
honum stundum bregða fyrir á
Landróver sem var vinnubíll
og alltaf leist mér betur og bet-
ur á hann. Ég var orðin ást-
fangin af honum án þess að
þekkja hann nokkuð.
Á laugardagskvöldi fórum
við vinkonurnar á ball. Þegar
við komum inn var hann þar.
Ég varð mjög ánægð og von-
aðist til þess að við næðum
saman.
Ég þorði ekki að reyna við
hann svo ég var að vona að
hann myndi reyna við mig.
Þegar leið á ballið horfðum við
voða mikið hvort á annað en
þorðum ekki að reyna neitt.
Það endaði þannig að vinkona
mín náði í hann.
Ég hafði ekki sagt neinum
að ég væri hrifin af honum.
Mér var það því kappsmál að
koma í veg fyrir að þau næðu
saman. Strákarnir buðu okkur
samt í partí sem við þáðum.
I' partíinu var mjög gaman.
Meðal annars fórum við í
vatnsslag. Mértókst að koma í
veg fyrir að þau yrðu saman.
Þegar komið var undir morgun
fór ég heim og tók sængina
hans með mér. Ég var að
stríöa honum. Hann hafði sagt
að ég myndi ekki þora það. Á
leiðinni heim átti ég alltaf von
á því að hann kæmi á eftir mér
til að sækja sængina. En hann
var með aðra svo hann notaði
hana bara og hugsaði með sér
að ég kæmi og skilaði hinni.
Þegar ég kom heim var
26 VIKAN 13. TBL. 1991