Vikan - 27.06.1991, Blaðsíða 44
STJÖRNUSPÁ
HRÚTURINN
21. mars - 19. aprd
Gæfan brosir við þér.
Rómantískir eldar loga glatt og
þú getur aukið þá með því að
sýna frumkvæði. Þetta er góður
tími til ferðalaga og mannlegra
samskipta. Hámark þessa góða
tíma næst daginn eftir sumar-
sólstöður.
NAUT,Ð
20. apríl - 20. maí
^ Rómantíkin verður djúp
og kraftmikil, sérstaklega 23.-25.
júní. Þótt bjartsýnin sé almennt
ekki þfn sterka hlið má leysa
vandamál með skilningi og þol-
inmæði. Láttu ekki stjórnast af
hviklyndi en hafðu reglu á
hlutunum.
TVÍBURARNIR
21. maf - 21. júní
Sköpunarhæfni þín fer
að ná hámarki. Rómantíkin
blómstrar hjá óbundnum tvíbur-
um þar sem ný kynni eru líkleg.
Vertu samt elskuleg(ur) við þína
nánustu og þú færð umbun fyrir.
Mundu að leikir hafa stundum
jafnmikla þýðingu og störf.
KRABBINN
22. júní - 22. júlf
Fjármálaáhyggjur þínar
endast fram yfir 4. júlí en málin
eru ekki eins slæm og á horfist.
Heppnin verður jafnvel með þér
um miðjan mánuð eins og síðar
mun koma í Ijós. Nánustu vinir
þínir vilja fá að vita hvernig þér
líður.
LJÓNIÐ
23. júlí - 23. ágúst
Þú ert hlaðin(n) krafti um
þessar mundir en reyndu samt
að vera svolítið sveigjanleg(ur).
Þér er til dæmis alveg óhætt að
skemmta þér svolítið og sinna
öðru sem þér finnst skemmti-
legt. Svolítið ferðalag gæti verið
upplagt núna.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Síðari hluti mánaðarins
er upplagður til að eyða í róleg-
heitum og hugsa hlutina. Marg-
menni gæti haft truflandi áhrif á
þig og þú færð meira út úr því
að vera út af fyrir þig. Þú átt eftir
að fá fullt af hugmyndum.
VOGIN
24. sept. - 23. okt.
Ef þú átt þess kost að
ferðast núna skaltu ekki sleppa
tækifærinu. Skemmtileg atvik
fara að gera vart við sig þegar
líða tekur á mánuðinn. Forðastu
samt freistingar og vertu ekki að
hnýsast í annarra manna mál.
SPORÐDREKINN
24. okt. - 21 nóv.
Þú getur aukið við þekk-
ingu þína seinni hluta mánaðar-
ins. Gríptu gott tækifæri því að
bið gæti orðið á öðru eins.
Skemmtanir verða kannski svo-
lítið yfirborðskenndar kringum
miðjan mánuð en þú verður í
sólskinsskapi og líður vel.
BOGMAÐURINN
22. nóv. - 21. des.
Nýtt fólk, ný reynsla og
ferðalög örva huga þinn. Nú er
mikils virði að skiptast á
skoðunum við fólk því að að-
lögunarhæfni þín reynist þér
einkar vel um þessar mundir.
Það er heilmikið að gerast hjá
þér núna - hvað viltu hafa það
betra?
STEINGEITIN
22. des. - 19. janúar
Gott tímabil. Þú græðir
meira en þú tapar en vertu samt
örugg(ur) um stöðu þfna. Þér er
óhætt að skemmta þér og taka
upp á einhverju óvenjulegu en
eftir 4. júlf truflar náið samband
við einhverja manneskju dóm-
greind þína svolítið.
VATNSBERINN
20. janúar -18. febrúar
Nú ríður á að þú anir
ekki út í einhverja vitleysu. Þú
kynnist mörgu fólki og sumt af
því kemur róti á tilfinningar
þínar, jafnvel svo að rótgróin
kynni gætu riðlast. Hafðu hug-
fast að aðdráttarafl þitt er sterkt
um þessar mundir.
FISKARNIR
19. febrúar - 20. mars
Gæði vinnu þinnar knýja
framför þfna áfram. Hikaðu ekki
við að skipta um umhverfi um
stund því það sem þú gerir
óundirbúið á vel við þig og gefur
þér nýja innsýn í eitthvert leið-
indamál. Þú ert í ágætis formi
núna og til í allt.
w m vj FR Óaj i' fif' /a/Suui lA' ÐuK- A/EFa/i ÓR- SKuR-Bi tiUÍA/fi HoTfifR 'A JLiTÍA/AJ oR- 5/VhRRfi({
M ’iSEí n
-A Y&Si 57úFajU/J Z E-ÍAJS / >
SuAID- FUUL.fi DJELjfi J >
/ 5Eó.jA F yRi\ RtKUL Rúi-D SKÓDfifl- D'hK A.sm/1 • > S-
VE.FA tiLEÐU-U Gftu/vA
NfirP/J 'ToUAbi ToLU- T. Z > AÍE5
F'5Kuf{ wrukka > V Z ETAJ5 RÓMiJ. -JAl a
/ Z 3 Y 5~ 5\JíkL H >
42 VIKAN 13. TBL. 1991
Lausnarorð í síðasta blaði 1-7: TRUKKUR
KROSSGÁTUGERÐ: GUÐJÓN BALDVINSSON