Vikan - 11.05.1950, Side 8
8
VIKAN, nr. 19, 1950
Söngur Rasmínu tekinn upp á plötu.
Rasmína: „Ó, prófessor Sinfóní! Það er dásamlegt!
Þér eruð mjög fær gagnrýnandi á söng! En hvs
það var fallega gert af yður! Komið þér með hana
sjálfir ? ! !“
Sölumaðurinn: „Fyrirgefið, að ég hef orð á því,
en dóttir yðar kann sannarlega að velja útvarps-
grammófón. Þetta er sá dýrasti, sem ég átti til!!!“
Rasmína: „Hann er dásamlegur!! Gerið svo vel
og látið hann inn í hókaherbergið.“
Prófessor Sinfóní: „Já, þetta er grammófónplata,
sem ég lét gera af rödd yðar —-------Þetta er sú
eina, sem ég á, svo ég bið yður að gæta hennar vel.“
Rasmína: „Ég skal gæta hennar eins og sjáaldurs
augna minna!“
Gissur: „Hvað? Þrjú þúsund krónur fyrir út-
varpsgrammófón, til þess eins að spila plötu, sem
þú hefur sjálf sungið inn á.“
Rasmína: „Halló ------ Er það hjá „viðtækja- og
húsgagnaverzlun ríkisins" ? — Mig langar til að fá
fallegt skatthol eða lágan skáp til þess að láta nýja
útvarpsgrammófóninn minn standa á. — Það er
alveg sama hvað það kostar, það verður að vera
fallegt."
Teikning eftir George McManus.
Rasmína: „Mig langar til að biðja þig að kaupa
fyrir mig bezta grammófóninn, sem völ er'á. Þetta
er plata, sem ég hef sungið inn á — Hugsaðu þér?
Röddin min á grammófónplötu! !“
Erla: „Ég skal láta senda einn heim í kvelli."
Gissur: „Þrjú þúsund krónur fyrir útvarps-
grammófón og fjögur þúsund fyrir þennan skáp —
—• — og auk þess verð ég að hlusta á Rasmínu
syngja!!‘
Rasmína: „Þjónn! Komið inn með plötuna, en
farið mjög varlega."
Gissur: „Ó, ó!! Þarna brotnaði platan!!“
Rasmína: „Guð hjálpi mér! Þessi dýrgripur,
sem átti að gera rödd mína ódauðlega!!!“
Þjónninn: „Ég get ekki lýst því, hve mér þykir
þetta leitt. — Ég rann á gólfrenningnum. Ég vona
að þér getið fyrirgefið mér. — Ætli að það sé hægt
að líma hana?“
Gissur: „Ég vona ekki!!!“
Rasmína: „Þessi ómetanlegur dýrgripur!! Eina
platan, sem varðveitti söngrödd mína!!“
Þjónninn: „Þúsund krónur? Þetta nær engri átt
herra Gissur." \
Gissur: „Skeytið ekki um það — — — Stingið
þessu í vasann og látið konuna mína ekkert vita!!!“