Vikan - 21.09.1950, Side 3
YIKAN, nr. 36, 1950
3
þær, sem við birtum
nú, eru ekki þær sömu
og komu þá hér í blað-
inu, en þessar eru úr
hinni nýju listaverka-
bók.
Bókin er prentuð í
Víkingsprenti og bund-
in í Bókfelli, Ásgeir
Júlíusson teiknaði titil-
síðuna. Mestan hluta
litmyndanna, en þær
eru 22, prentuðu Bern-
hard Middelboe, Kaup-
mannahöfn og J. H.
Schultz, Kaupmanna-
höfn, tvær þeirra voru
prentaðar í Víkings-
prenti og ein hjá Wat-
erlow & Sons í Lon-
don,myndamótin gerðu
Bernhard Middelboe,
Waterlow & Sons og
Prentmyndir.
I formálanum segir
m. a.:
„ . . . Hann er fæddur 22.
febrúar 1881 á Sauðár-
króki, þar sem Stefán fað-
ir hans, sonur Jóns Halls-
sonar prófasts, var kaup-
maður. Formóðir Jóns x
föðurætt var skilin ung-
barn eftir af hollenzku
skipi, er hafði orðið svo
síðbúið, að ekki þótti henta
að taka hana með undir
veturinn. Var látið í veðri
vaka, að skipið mundi
koma við næsta sumar og
vitja hennar, en úr því varð
aldrei.
Móðir Jóns Stefánssonar
var Ólöf Hallgrímsdóttir,
gullsmiðs á Akureyri og
náfi'ænda Jónasar Hall-
grímssonar skálds. Móður- J
amma hans var af Thorla- * ‘
cíus-ættinni, en þar er ii
margt presta og andlegrar 'f-
stéttar manna, svo sem
lxunnugt er.
Strax í bernsku hafði
Jón Stefánsson mikinn á-
huga fyrir myndum og
fékkst snemma við að
teikna. Hann fann myndir
í útlendum blöðum, svo
sem „Illustreret Tidende"
og „Nordstjernen", og móð-
ir hans hvatti hann til þess
að teikna, ekki af þvi, að
henni kæmi til hugar, að
hann yrði listamaður, held-
ur einfaldlega vegna þess,
að hún hafði gaman af því.
En það tók þó skjótlega
fyrir þessar fyrstu tilraun-
ir. Þegar Jón var um það
bil þrettán ára gamall,
varð hann fyrir því að
meiða sig á hægri hendi;
komust berklar í brotið,
svo hann varð að ganga
með höndina í umbúðum,
og þessi veikindi háðu hon-
um allt fram undir það, að
hann varð stúdent . . .“
(árið 1900).
Glœsileg listaverkabók
(Framhald af forsíðu)
1930 . Máltíð
Báðar myndirnar á þessari síðu eru úr hinni glæsilegu listaverkabók, sem Helgafell hefur nýlega
gefið út með verkum eftir Jón Stefánsson. (Sjá einnig forsíðu).
1939 Útreiðarfólk