Vikan


Vikan - 21.09.1950, Síða 12

Vikan - 21.09.1950, Síða 12
12 VIKAN, nr. 36, 1950 hann aSeins á hana sem fallegt og yndislegt barn. Hann talaði vingjarnlega til hennar og stundum brá fyrir stríðni í málrómnum, en Rósa Veronica svaraði honum, eins og venjulega, altaf með daufu brosi. Hún hafði alltaf verið kyrr- lát, þegar þau voru innan um fólk, og Alison fannst hún ekkert þögulli nú en venjulega. En í sannleika sagt lá ósköp illa á Rósu Veronicu, vegna þess að þessi yndislegu kynni hennar við Alec voru næstum eyðilögð með þvi að fjölskyld- an var nú einnig búin að kynnast honum. Þegar þau voru öll viðstödd, vildi hún miklu fremur vera hvergi nálæg — hún vildi heldur sitja á stól úti í garði og láta sig dreyma um hann og framtíðina, og hvemig hún gæti aftur kom- izt til London, þar sem hún gæti haft tækifæri til að hitta hann. Alison var mjög hrifin af íbúðarvagninum hans, þó að hún hefði alls ekki viljað búa þar einn einasta dag, því að hann var ekki nærri nógu fínn handa jafn „siðmenntaðri" stúlku og Ali- son. Daginn eftir var sunnudagur, og fór Alison með Kitty og Joan til kirkju. Það gladdi Kitty mikið að sjá Larry Kestonville í kirkjunni, og ræddi hún við hann dálitla stund að guðsþjón- ustunni lokinni. Á meðan þau stóðu þarna og töluðu saman, gekk Piers Lockingham framhjá. Hann tók virðulega ofan fyrir ungu stúlkunum þrem, en lét eins og hann sæi ekki Larry Keston- ville. Larry leit glettnislega á Kitty og gretti sig. „Hvemig líður hundinum? Er hann búinn að jafna sig?“ spurði hann. „Honum líður miklu betur nú, en hann mun víst alltaf verða dálítið haltur," svaraði Kitty. „Ég hélt að hann hlyti að vera steindauður eftir augnaráðinu að dæma, sem Loekingham sendi mér,“ svaraði Larry hlæjandi. Innst inni var hann mjög vonsvikinn af því að Esmé Kestonville skyldi ekki vera í kirkjunni. Hann hafði ekki séð hana frá því er hún kom til hans síðdaginn eftirminnilega, og hann gat ekki skilið, hversvegna hann sá hana aldrei. „Komið og drekkið hjá okkur te eftir hádegið, ef yður langar til,“ sagði Kitty glaðlega. „Alec Shirston kemur einnig. Þið þekkist, er það ekki?“ „Jú, hann er fyrirtaks náungi. Allt i lagi. Ég kem áreiðanlega. Ég hef einnig fréttir að færa,“ sagði hann að lokum og varð alvarlegur á svip. „Komið þá sem allra fyrst," hrópaði Kitty, um leið og hún hljóp af stað til þess að verða samferða hinum. Hún gat ekki ímyndað sér, hvaða fréttir hann hefði, en það var áreiðanlega eitthvað um Esmé Kestonville. Höfðu þau hitzt aftur og va'r það Esmé, sem hafði átt upptökin að því? Alec Shirston kom fyrstur. Frú Shelgreave og Joan voru ennþá að þvo upp eftir hádegisverðinn, þegar hann kom. Þegar honum var sagt það, vildi hann ólmur og uppvægur fá að hjálpa þeim. Það var einmitt þessi hjálpfýsi hans, sem gerði hann svo aðlaðandi. Hann hafði eitthvað svo skemmtilega gott lag á því að samlagast um- hverfinu. Hann gæti hvort sem heldur væri átt heima í hreysi eða höll, hugsaði Kitty, sem geðjaðist stöðugt betur og betur að honum. Hún og Alison sátu í hægindastólum undir linditréinu og hann glettist við þær í gegnum gluggann á meðan hann þurrkaði leirinn. Alec var rétt að ljúka við að þurrka þegar Larry opnaði hliðið. Kitty veifaði til hans og benti honum að koma til sín. Hún veitti því athygli, hve mikið hann hafði breytzt á þessum skamma tíma. Hann var i nýjum fötum, og öll framkoma hans var örugg og ákveðin, allur þrjózkusvipurinn var horfinn af andliti hans. Það hlaut eitthvað að hafa skeð, sem olli þessari breytingu. Kitty var stöðugt forvitnari. Það var ekki fyrr en eftir te, sem hún fékk tækifæri til að tala við hann undir fjögur augu. Rósa Veronica hafði farið ein á göngu og Alec var sárgramur við hana, að hún skyldi ekki koma heim að drekka. „Hún er undarlegt barn,“ sagði Alison og yppti öxlum. „Hún vill alltaf vera ein. Hún er ein- hver sú leiðinlegasta manneskja, sem ég hef á ævi minni kynnzt." Alec leit á hana ihugull. Hann hafði oft veitt því athygli, að Rósa Veronica væri lítið hrifin af Alison, þó að hún hefði aldrei sagt neitt illt um hana. En nú fór honum að skiljast hvers- vegna svo var. Eftir te bað Kitty Larry um að koma með sér út í ávaxtagarðinn til þess að skoða eplin og perurnar, og hann spratt samstundis á fætur og brosti glaðlega til hennar. Alison leit hæðnis- lega á eftir þeim; hún velti því fyrir sér, hvort Kitty hefði Larry fyrir varaskeifu, ef henni skyldi ekki takast að ná í Piers Lockingham. Hún vissi ekkert um áhuga Larry fyrir Esmé Kestonville, því að Kitty hafði varðveitt leyndarmál hans með sjálfri sér. „Jæja, hvað er þá að frétta?“ spurði Kitty. Og meðan þau reikuðu um í garðinum, sagði hann henni frá óhappinu, sem varð til þess, að Esmé kom og heimsótti hann fyrir nokkrum dögum. Kitty leit undan til þess að leyna brosi, sem kom fram á varir hennar. Henni skildist nefnilega samstundis, að „óhappið“ sem kom fyr- ir Esmé, hafði skeð að yfirlögðu ráði. Esmé hafði þá þegar fengið áhuga á Larry, eins og hún hafði vonað. „Ég hef ekki séð hana frá því að þetta skeði,“ lauk Larry máli sínu. „Hún var ekki í kirkju í dag.“ „Nei, frú Twitchell sagði mér, að hún hefði farið til London til þess að heimsækja frænku sína.“ „Ö, jæja.“ Larry fannst allt í einu allt vera svo tómt og hann vera svo einmana og óhamingjusamur. En hún mundi þó koma einn góðan veðurdag aftur, — en hvað þá? Hann dauðlangaði til að tala duglega yfir hausamótunum á telpunni. „En ég hef fleiri fréttir að færa.“ hélt hann áfram og sneri sér að Kitty, sem hafði setzt á hengirúmið. „Fáið yður sæti,“ bauð Kitty og benti á teppi, sem lá á grasinu; Willie og Joy höfðu farið með það út til þess að liggja á þvi í sólinni. Larry settist. Hann var alvarlegur á svip. — „Ég fékk bréf frá lögfræðing í Sidney núna um daginn. Frændi minn þar varð bráðkvaddur. Hann fékk víst heilablóðfall. Hann' arfleiddi mig að öllum eignum sínum. Ég hafði sjaldan séð hann, en það fékk undarlega á mig að heyra andlát hans. Ég var nýbúinn að skrifa honum, og nú fær hann aldrei bréfið frá mér.“ „Ég samhryggist yður innilega," sagði Kitty. Síðan sagði hún eftir augnabliks þögn: „Mun þetta breyta nokkru fjárhaginum hjá yður?“ „Það er ég nú hræddur um,“ svaraði hann. „Hann arfleiddi mig að þrem og hálfri miljón króna." „Larry!“ „Mér er nú fremur á móti skapi að taka við þessu,“ sagði hann biturt. „Því að mér finnst að ég hafi fengið þetta án þess að eiga það skil- ið. Ég lét hann halda, að ættingjarnir hér í Englandi hafi tekið mér opnum örmum, og að ég iifði hér eins og enskur aðalsmaður, en tæki þó ekki virkan þátt í samkvæmislífinu, þar sem mig skorti fé — þetta síðasta skrifaði ég til þess að reyna að skýra það fyrir honum, hversvegna það birtast ekki myndir af mér í fréttablöðun- um, sem sýna myndir af aðlinum á góðgerðasam- komum og veðreiðum. Og nú, þegar hann hefur arfleitt mig að öllum eigum sinum, get ég lifað eins og aðalsmanni sæmir, en þá vil ég það ekki.“ „En hversvegna? Peningarnir gera mánni alla vegi færa.“ Augu Kittyar ljómuðu. Hún hallaði sér fram og klappaði hrifin saman lófunum. „Nú fyrst þér eruð orðinn auðugur, vill allt fólkið hér fá yður fyrir vin. Til dæmis Esmé . . .“ Larry roðnaði, og hann sagði kaldranalega: „Nei, fyrst fólk vill ekki þekkja mig á meðan ég er fátækur, þá kæri ég mig ekki um að kynnast því núna, þegar ég er orðinn ríkur. Ég vil ekki kaupa vináttu þess.“ „Húrra!“ hrópaði Kitty og klappaði hlæjandi saman lófunum. „Þér voruð allt í einu svo ákveð- inn og höfðinglegur á svip, að maður gat ekki efast um, að þér væruð af góðri og gamalli ætt. En hvaða vitleysu eruð þér annars að halda fram ? Nú fáið þér tækifæri til þess að lifa lífi forfeðra yðar. Nágrannarnir munu taka yður sem sínum jafningja, og það er ekkert um það að ræða að kaupa vináttuna.“ Larry var ennþá bitur á svipinn, og Kitty hélt áfram að tala um fyrir honum. Teikning eftir Wally Bishop. Maggi: Náðu í hann, hann hleypur hart! Gutti: Hann hlýtur að geta orðið methafi! Gutti: Hann komst! Maggi: Og i gær skammaði kennarinn hann fyrir að vera tuttugu mínútur þessa stuttu leið heiman frá sér til skólans!

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.