Vikan


Vikan - 06.04.1993, Síða 57

Vikan - 06.04.1993, Síða 57
búum vegna grimmdarverk- anna sem þeir mega þola af hálfu alþýðulýðveldisins Kína. Jafnvel þótt Cindy sé ekki búddisti sýnir hún trúarbrögð- um mikinn áhuga og segist vera að safna upplýsingum eins og er. Hún er að lesa sér til um trúarbrögð gyðinga og önnur trúarbrögð og „tekur sitt lítið frá hverjum, tíu prósent hér og tíu prósent þar. Út úr því fæ ég svo mín eigin trúar- brögð". EKKI ÚTNEFND FEG- URST EÐA VINSÆLUST Nú, þegar Cindy Crawford getur krafist sjö þúsund doll- ara fyrir að sýna föt á tísku- sýningu og fyrirsætur eru umtalaðri en leikkonur, er hún að íhuga að leggja fyrirsætustarfið á hilluna. Það er hins vegar á verkefnaskrá hennar að verða „Barbara Walt ers minnar kynslóðar" en Barbara Walters er þekktasta og hæst launaða sjón- varpskona Banda- ríkjanna. Cindy gerir sér skýra grein fyrir því valdi sem hún hefur og telur sig sýna ábyrgð með því að nota það ( þágu annarra. Hún er búin að fá sig fullsadda af tískusýn- ingum: „Þar er það goggunar- röðin sem gildir - hver fær bestu fötin eða brúðarkjólinn? Það er niðurlægjandi, svipað og að vera ekki valin fegursta stúlkan í bekknum þegar maður er fimmtán ára.“ Hefur hún sem sagt ekki alltaf verið svona falleg? „Ég var ekki Ijóti and ar unginn en heldur ekki útnefnd „sú fallegasta" eða „sú vin- sælasta". Ég var einhvers staðar mitt á milli.“ Hvenær gerði hún sér þá grein fyrir því að hún var með milljón dollara útlit? „Mér er enn ekki Ijóst að ég hafi það. Ég var tvítug þegar ég sat fyrst fyrir á for- síðu Vogue og það var viður- kenningarstimpill tískuiðnað arins.lnnri fegurð skiptir líklega meira máli en nokkuð annað því vitanlega breytist ytra útlit með tíman- um.“ ÁTRÚNAÐARGOÐ Ef allar konur dreymir um Richard Gere, þá þrá allir karlar að komast yfir Cindy. Hún veldur umferðar öngþveiti þegar MTV-þáttur- inn er myndaður utandyra. Þegar MTV-verðlaunin eru veitt tekur hópurinn utandyra varla eftir því þegar Mick gerger gengur í salinn og Annie Lennox fær aðeins kurt- eislegt klapp.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.