Vikan - 20.10.1995, Blaðsíða 12
„Já, já. Sá hluti var sannur. Hann hafði meira að segja fengið
bréfið sem ég átti að hafa skrifað. Skriftin var ekki einu sinni svipuð
minni, en hvernig hefði hann átt að vita það?“
„Við skulum athuga hvernig staðan er,“ sagði Sir Henry. „Leið-
réttið mig ef ég fer með rangt mál. Ungfrúin og þjónustustúlkan eru
narraðar í burtu frá húsinu, ungi maðurinn er plataður í húsið með
fölsuðu bréfi - og það bréf var trúverðugra sökum þess að þú varst
að leika í Árþorpi þessa vikuna. Unga manninum eru gefin lyf, og
lögreglan er látin vita og maðurinn gerður grunsamlegur. Innbrot
hefur verið framið. Ég býst við því að skartgripirnir hafi verið teknir."
„Ó, já.“
„Fundust þeir einhvern tímann?“
„Nei, aldrei. Reyndar held ég að Sir Herman hafi reynt að þagga
málið niður eins mikið og honum var unnt. En það tókst ekki, og
mig grunar að konan hans hafi óskað eftir skilnaði í kjölfarið. Samt
er ég ekki alveg viss um það.“
„Hvað kom fyrir Leslie Faulkner."
„Honum var að lokum sleppt. Lögreglan sagðist ekki hafa nægar
sannanir gegn honum. Finnst ykkur þetta ekki vera með eindæm-
um furðulegt allt saman."
„Svo sannarlega. Fyrsta spurningin er þessi. Hvaða sögu við
eigum að trúa? í frásögn þinni tók ég eftir því að þú hallast að því
að trúa Faulkner, ungfrú Helier. Er það bara eitthvað sem þú hefur
á tilfinningunni, eða hefurðu aðra ástæðu til að ætla að hann segi
satt frá?“
„Nei, nei,“ sagði Jane hikandi. „Það held ég ekki. En hann var
svo vingjarlegur og leiður yfir því að hafa ruglast á mér og einhverri
annarri að ég held að hann hljóti að hafa sagt sannleikann."
„Ég skil það,“ sagði Sir Henry með bros á vör. „En það verður að
viðurkennast að hann gæti auðveldlega hafa búið söguna til. Hann
gæti sjálfur hafa skrifað bréfið sem átti að hafa verið frá þér. Hann
gæti einnig hafa tekið inn lyf eftir að hafa brotist inn. En ég verð að
játa það að ég fæ ekki séð tilganginn í því. Það hefði verið auð-
veldara að fara inn í húsið, fremja þjófnaðinn, og hverfa á brott -
þó getur verið að einhver í nágrenninu hafi séð hann og hann hafi
VIKAN
10