Vikan - 20.10.1995, Blaðsíða 21
AGAVHA CHRISTIE
SAKAMÁLASAGNANNA
Agatha Christie, fæddist árið 1890 í
bænum Torquay á Englandi. Faðir hennar
var maður að nafni Frederick Miller og því
var fæðingarnafn hennar Agatha Miller. Ár-
ið 1914 giftist hún Archie Christie, en þá
var fyrri heimstyrjöldin hafin. Agatha vann
á sjúkrahúsi á þeim tfma og kom það
henni að góðum notum við skrifin síðar
meir.
Fyrsta bók hennar kom út árið 1920, The
Mysterious Affair at Styies (kom út í ís-
lenskri þýðingu 1963 og var þá nefnd Hús
ieyndardómanna). Þar kynntust lesendur
sérvitra belgíska einkaspæjaranum með
furðulega yfirskeggið, Hercule Poirot. En þó náðu bækur Agöthu
ekki verulegri athygli fyrr en árið 1926 þegar hún sendi frá sér bók-
ina The Murder of Roger Ackroyd (sú bók hefur verið gefin út í
tveim þýðingum, Poirot og læknirinn, 1945 og 1971, og svo árið
1984 undir nafninu . . . og ekkert nema sannleikann). Þetta er af
mörgum talin besta bók hennar, enda er hún snilldarlega upp-
byggð með óvæntum endi, en það einkennir einmitt flestar bækur
hennar.
Agatha komst sjálf í fréttirnar þegar hún hvarf í nokkra daga eftir
að eiginmaður hennar vildi fá skilnað. Hún fannst fljótlega á hóteli
undir öðru nafni og enn þann dag í dag er hvarf hennar mikil ráð-
gáta. Eftir skilnaðinn giftist hún breskum fornleifafræðingi, Max
Mallowan. Hún samdi nær sjötíu skáldsögur á ferli sínum og á ann-
að hundrað smásögur. Agatha Christie lést árið 1976.
DROTTNING
19
VIKAN