Vikan - 20.10.1995, Blaðsíða 25
Kona í þorpinu Gandrup i
Annapurna vaskar upp eft-
ir matinn.
TEXTI OQ MYNDIR
MARGRET
BJÖRK
SVAVARSDOTTIR
Skóviögeröarmaður í Pok-
hara gerir viö skóna mína.
um og við ákváðum að
heimsækja tvo mismunandi
staði og læra örlítiö um
menninguna þar.
Fyrsti áfangastaðurinn var
Pokhara, um þaö bil fimmtíu
þúsund manna bær á svæöi
sem kallast Annaþurna. Ég
hafði hlakkað mikið til að
komast upp í fjöllin og sjá
hvernig íbúarnir byggju. Við
ákváðum að fara í fimm
daga göngu sem reyndist
stórkostleg. Við stefndum á
Annapurnatind, 8091 m á
hæð. Á móti okkur komu
aðrir göngumenn og burðar-
menn. Skólabörn þustu fram
hjá og asnar sem gengu í
lestum skreyttir dúskum,
dúllum og klingjandi bjöllum.
íbúar svæðisins þekktu orðið
vel til ferðamanna. Þeir
heilsuðu kurteislega meö því
að leggja lófana saman og
kinka kolli. Börnin aftur á
móti notuðu tækifærið til að
sníkja sælgæti eða fáeinar
rúpíur: „Give me chocolate,
sir" eöa „ give me rupees"
kölluöu þau á eftir okkur.
Þessar tvær setningar á
ensku höfðu þau öll lært.
Við gengum eftir vel gerð-
um stíg sem verið var að
endurbæta á köflum. Menn
og konur unnu við þaö að
snara þungum steinum upp
á höfuðið á sér, bera þá
nokkra metra og koma þeim
svo vel fyrir á stígnum. Þetta
fólk býr í litlum þorpum í fjöll-
unum sem hafa tekið miklum
breytingum síðustu árin
vegna þess fjölda göngu-
manna sem leggur leið sína
um þau. í hverju smáþorpi
finnst nú að minnsta kosti
Nepal er líklega þekkt-
ast fyrir það að stór
hluti landsins tilheyr-
ir Himalaya fjallagarðinum
og að þar rís hæsti tindur
jarðar, Mount Everest. Ferða-
menn flykkjast þangað í
þeim tilgangi að fara f lengri
eða styttri gönguferðir í fjöll-
unum. En það, sem er ekki
síður áhugavert en ferskt
fjallaloft og tignarlegir tindar,
er mannlífið í landinu. Þar
búa fjölmargir ættflokkar
sem eru mismunandi eftir
því hvort þeir búa í snar-
bröttum hlíðum fjallanna eða
á sléttunni. Það er ekki hægt
að læra mikið um svo fjöl-
breytt land á tveimur vikum
en ég var stödd þarna ásamt
amerískum ferðafélaga mín-
eitt tehús þar sem hægt er utiö fjaiia-
að kaupa nepalskt mjólkurte Þ°rP ' Anna
en einnig kók og súkkulaði á puma-
ofurháu verði. Enda er stíg-
urinn, sem við gengum eftir,
eina samgönguleiðin og
flutningur fer fram á höfðum
burðarmanna eða bökum
9. TBl 1995 VIKAN 25
FERÐALOG