Vikan - 20.10.1995, Síða 33
NAUTNOGN
Daníel Ágúst og Emilíana í hlutverkum sínum.
Frh. af bls. 30
áttu óútgefin lög í pokahorn-
inu og ákváðu að gefa þau
út á geisladisk. Þau fengu T-
World til liðs við sig og stofn-
uðu listafélagið Gus Gus.
Upptökur á geisladisknum
fóru fram í Sýrlandi þar sem
Daníel og T- World önnuðust
upptökustjórn.
Þeir Sigurður og Stefán
Árni skrifuðu handritið að
myndinni, leikstýrðu henni
og klipptu. Þetta er fyrsta
kvikmyndin sem þeir gera en
þeir vöktu fyrst á sér athygli
fyrir frumleg tónlistarmynd-
bönd.
„í upphafi stofnuðum við
fyrirtækið til að gera kvik-
myndir og átti myndbanda-
og auglýsingagerð að fjár-
magna þær. Það gekk hins
vegar ekki eftir. Því höfum við
nú fengið til okkar þriðja „kjól-
inn“, Baldur Stefánsson, til
að afla fjármuna og ætlum nú
að snúa okkur að kvikmynd-
unum. Nautn er gerð án allra
opinberra styrkja en ýmis fyr-
irtæki hafa styrkt framleiðslu
hennar. Landsbankinn var
þar rausnalegastur."
Sigurður og Stefán eru
báðir aðdáendur leikstjórans
Woody Allen en segja þó
ekki hægt að finna mikil áhrif
frá honum í Nautn.
„Þeir hafa sinn eigin stíl og
hann á eftir að koma á
óvart,“ segir Emilíana sposk.
„Við erum þó að fjalla um
samskipti kynjanna sem All-
en eru heldur ekki svo
ótöm,“ segir Stefán.
Nautn verður sýnd í Sam-
bíóunum á undan banda-
rísku myndinni Mad Love
þar sem Drew Barrymore fer
með aðalhlutverkið. Kjól &
Anderson urðu að senda
framleiðendum Mad Love,
Touchstone Pictures, upp-
lýsingar um Nautn ásamt
eintaki af henni áður en þeir
fengu leyfi til þess að sýna
hana á undan Mad Love.
Slík leyfi eru aðeins veitt í
undantekningatilvikum og
virðist stórfyrirtækinu ekki
hafa litist illa á myndina.
Sigurður og Stefán hafa
þegar hafist handa við að
skrifa handrit að næstu kvik-
mynd og á hún að vera í
fullri lengd. Emiliana hefur
líka nóg fyrir stafni. Auk þess
sem hún stundar nám í
Söngskóla Reykjavíkur hefur
hún hafið upptökur á fyrsta
sólódisknum sem hún gefur
út sjálf ásamt Jóni Ólafssyni
tónlistarmanni. Hún vill enn
ekki tala mikið um diskinn.
Hún samþykkir þó að segja
hvert nafn hans verður.
„Hann á að heita Cruisien
De’ Lahh en það er krúsin-
dúlla lesið á frönsku," segir
hún og hlær.
Hún hefur fengið eðaltón-
listarmenn til samstarfs við
sig en meðal þeirra eru til
dæmis þeir Guðmundur Pét-
ursson og Jón Ólafsson.
„Á disknum verða blúslög
og þekkt kvikmyndalög eins
og til dæmis úr James Bond-
mynd og Beyond the Valley
of the Dolls. Ég hef enn ekki
tekið ákvörðun um það hvort
þar verði líka frumsamin lög,“
segir hún dularfull á svip. □
imim
Hvers vegna að borga
1200 kr. fyrir kvartlítra af
Aloe Vera þegar þú getur
fengið tvöfalt meira
magn af Aloe Vera geli frá
Banana Boat á aðeins 1000kr.7
Hvers vegna að bera á sig 2% af
þráavarnarefnum þegar þú getur
fengið 99,7% hreint Aloe Vera frá
Banana Boat? Biddu um Banana
Boat ef þú vilt 99,7% hreint Aloe
Vera gel á 40-60% lægra
verði. Það er alltaf ferskt
(framleitt eftir pöntun), án
spírulínu, án kemískra lyktar-
efna eða annarra ertandi of-
næmisvalda og fæst í 6 mismun-
andi túpu-, brúsa- og flöskustærðum.
Þú finnur engan mun á því að bera ferska,
99,7% hreina Aloe Vera gelið frá Banana Boat og
hlaup úr Aloe Vera blaði beint á sár, bólgur eða
útbrot. Prófaðu líka Banana Boat E-gelið á
sölustöðum Banana Boat (fæst einnig í 3
stærðum hjá Samtökum psori-
asis- og exemsjúklinga),
hrukkuhindrandi og húðmýkjandi
Banana Boat A-gel, baugaeyðandi
og húðstyrkjandi Banana Boat
kollagen gel, hraðgræðandi
Banana Boat varasalvann
með sólarvörn #21, græðandi,
mýkjandi og rakagefandi Banana
Boat Body Lotion með Aloe Vera,
lanolíni, A-, B-, D- og E-vítamíni,
húðnærandi og öldrunarhindrandi
Banana Boat djúpsólbrúnkugel fyrir
Ijósaböð, Banana Boat sólmarg-
faldarann sem milljónfaldar sólar-
Ijósið í skýjaveðri, Banana Boat sól-
varnarkremið með hæsta sólvarnar-
stuðulinn á markaðnum, #50, næringar-
kremin Banana Boat Brún-Án-Sólar í 3
gerðum, Naturica BK Sólbrún-lnnan-Frá,
Naturica hrukkubanann, alnáttúrlega svita-
lyktareyðinn, kristalsteininn sem þú strýkur eftir
blautum handarkrika þar sem kvikna engar lyktarbekteríur.
Biddu um Banana Boat i apótekum, á sólbaösstofum, í snyrtivöruverslunum, öllum heilsubúðum utan Reykjavíkur og í Heilsuvali, Barónsstíg 20,7? 562 6275
KVIKMYNDIR