Vikan - 20.10.1995, Side 64
ÁVAXTASÝRUKREM FRÁ ORLANE
Nú hefur bæst viö EXTRAIT VITAL línuna frá ORLANE.
Þaö er krem sem inniheldur ávaxfasýrur, nánar tiltekiö
eplasýrur. Næringargildi eplanna og hollusta eru mikil
en eplin eru ekki einungis nytsöm sem fæöa heldur líka
í formi krema. Þau má sem sagt nota jafnt útvortis
sem innvortis. Rannsóknir hafa sýnt aö ýmis efni unn-
in úr eplum styrkja húöina og mýkja og hindra mynd-
un öldrunarmerkja. Þetta nýja ávaxtasýrukrem frá
ORLANE virkar á þrjá vegu. I fyrsta lagi er það raka-
gefandi, í ööru lagi fjarlægir þaö dauöar húðfrumur
af yfirboröi húöarinnar og siðast en ekki síst þá
örvar kremið endurnýjun húðfruma. Kremiö kemur
í 50 ml pumpuglasi.
COLOURINGS - NÝR ANDLITSFARÐI
Húö, sem hættir til aö þorna, virðist eldri en hún
raunverulega er. í daglegu lífi okkar er margt sem
gerir þaö aö verkum að húðin þornar, svo sem miðstöðvarhit-
un, veöurfar og streita. Þess vegna hefur COLOURINGS sett
á markað SKIN TREAT andlitsfaröann sem fæst í verslunum
BODY SHOP á Laugavegi og í Kringlunni. SKIN TREAT
andlitsfarðinn er rakagefandi, hann inniheldur hun-
ang, natríum, hyaluronate-sýrur og rósberjaolíur.
Einnig inniheldur hann AHA- ávaxtasýrur sem eru
unnar úr sítrónum og píslarblómum.
Rannsóknir hafa sýnt aö útfjólubláir geislar sólar-
innar valda því aö húöin þornar og eldist fyrr en ella.
Þess vegna inniheldur SKIN TREAT andlitsfaröinn
sólarvörn að styrkleika SPF
8. En þaö besta er að
SKIN TREAT farðinn inni-
heldur Ijósendurkastandi
efni sem endurkasta
birtu sem fellur á húö-
ina; fínar línur mýkj-
ast og húðin fær
e. bjartara yfirbragö
fyrir bragöiö. SKIN
L, TREAT andlitsfarð-
inn frá COLOURINGS gefur
létta til miðlungs þétta áferö meö
smávægilegum, rökum gljáa. Hann er fáanlegur í fjórum nátt-
úrulegum litbrigðum; 001 Very Pale Ivory, 01 Ivory, 02 Light
Beige og 03 Medium Beige.
KÖLNARVATN FRÁ ORLANE
ítalskt máltæki segir aö húöin þarfnist
vatns en líkami og sál þurfi vín til aö öðlast
styrk og kraft. ORLANE hefur sameinaö
þetta tvennt í EAU D’ORLANE, styrkjandi
kölnarvatni fyrir líkamann sem gælir við
hörundið. Þaö er rakagefandi og mýkj-
andi aö ógleymdum ilminum sem er mjög
frískandi blóma- og sítrónuilmur meö
musk undirtóni. Notalegt aö bera á sig eftir
gott baö eða sturtu.
GAULTIER-ARMBÖND
Til er takmarkað upplag af 50 ml JEAN-PAUL
GAULTIER ilmúöanum EAU DE TOILETTE
SPRAY. Sem barn bjó hönnuöurinn til
skartgripi úr dósum undan
grænum baunum.
Dósina utan um
ilmúðann er hægt
aö taka í sundur og
útkoman verður
þrjú óvenjuleg
armbönd.
EAU DE COLOGNE FRÁ CARON
Frá árinu 1904 hefur CARON hannaö ilmi fyrir döm-
ur og herra. Aö þessu sinni er á ferðinni nýtt kölnar-
vatn sem hentar báöum kynjum. Um
búðirnar, sem eru stíl-
hreinar og einfaldar, hlutu
„Óskarsverðlaunin 1995“
en það eru verðlaun sem
samband franskra ilmvatns-
framleiöenda veitir ár hvert.
Ilmurinn er mildur og fínlegur
sítrusilmur og kemur í 50 ml
flösku og úðaglasi.
VÖNDUÐ NÆRFÖT
Hjá snyrtistofunni og snyrtivöru-
versluninni Rós, Engihjalla 8 í
Kópavogi fást vörur frá spænska fyr-
irtækinu Little Kiss. Um er aö ræða
nærföt, samfellur af ýmsum gerðum,
náttföt, náttsloppa og sundföt. Little
Kiss er stærsti nærfataframleiðandi á Spáni
og hefur fyrirtækiö fengið fimm verðlaun fyrir
gæði og útlit nærfatanna. í Colección Al-
hambra fæst þessi
samfella meö bux-
um og í Colección
Michelle fæst
þessi brjósta-
haldari á 2.360
krónur og bux-
urnar eru á
995 krónur.
YSL-NÝR §P ' rP 1
ANDLITSFARÐI I 1
TEINT MAT PARFAIT ■_______________■-----------1
er einstök blanda sem er þunnfljótandi, flauelsmjúk og bland-
ast fullkomlega við húölitinn um leið og faröinn felur smá
ójöfnur. Þetta er fyrsti farðinn sinnar tegundar sem er aö
stórum hluta byggöur á vatni en 80%
af blöndunni er vatn, bætt meö vatns-
leysanlegum og virkum rakagefandi
efnum. Nákvæmt magn hvers efnis og
samvirkni þeirra skilar sér í blöndu
sem er í fullkomnu jafnvægi og helst
stööug í langan tíma. Faröinn ver húö-
ina gegn skaðlegum áhrifum útfjólu-
blárra geisla sólarinnar fyrir tilstilli varn-
arefna. Þetta er fullkominn faröi fyrir
blandaöa og feita húð, fyrir konur sem
vilja vera öruggar um mattan farða allan
daginn án þess aö þurfa stööugt að
vera aö hressa upp á hann.
Hann hentar vel fyrir allar
aörar húðgerðir á
sumrin eöa í heitu
og röku loftslagi. TEINT MAT PARFAIT er
selt í fallegri og þægilegri 30 ml mattri
flösku og fæst í sex glæsilegum litbriðgum.
NÆRANDI AUGNHÁRALITUR FRÁ
ORLANE
CIL RICHE styrkir og lagfærir augnhárin, veitir þeim
vörn og gerir þau þéttari. Maskarinn kemur í þremur
litbrigöum, svörtu, bláu og brúnu.