Vikan - 12.09.2000, Side 4
Kæri lesandi
~Jú hafa skólar lands-
/% / ins hafið starfsemi
/ %/ íi'na a ný og börnin
X t okkar eru sest aftur
á skólabekk. Mörg þeirra eru
að stíga fyrstu skrefm innan
menntaketfisins og eru ögn
roggin fyrir vikið.
Mér er enn ífersku minni þeg-
ar égfylgdi syni mínum í skól-
ann ífyrsta sinn. Við vorum
búin að gramsa og grúska í
bókabúðum, kaupa skólatösku,
tréliti, pennaveski og annað
sem tilheyrir skólagöngunni.
Sonurinn var fullur tilhlökkun-
ar en móðirin var svolítið döp-
ur. Eg held að flestar mœður
þekki þessa tilfmningu þvíþað
hefst alveg nýr kafli í lífit fjöl-
skyldunnar þegar börnin byrja
í skólanum. Litlu krílin eru
í leik og starfi
ekki lengur vernduð innan
veggja leikskólans því nú er
kominn tími til að sleppa af
þeim höndinni og gefa þeim
svigrúm til þess að standa á
eigin fótum. Nú upphefst tími
nýrra vinasambanda, lœrdóms
og ákveðins hegðunar-
mynsturs sem œtlast er til að
börnin tileinki sér.
Það var því sambland afstolti
og angurværum trega sem
bœrðist um í brjósti mér þegar
ég hoifði á son minn sitja
feimnislegan innan um verð-
andi bekkjaifélaga sína þenn-
an merka dag.
Fljótlega verður þó skólinn
hluti afdaglegu lífi og ekkert
er börnunum eðlilegra en að
hverfa aftur í skólann eftir að
sumarfríinu lýkur. Það kemst
meiri regla á lífið, það erfarið
munfyrr í rúmið á kvöldin og
helgarnar verða skemmtilegri
þvíþá erfjölskyldan saman í
fríi. Nám barnanna okkar er
nefnilega vinna ekki síður en
dagleg stöif hinna fullorðnu.
Við þurfum því að gœta vel að
líkamlegri og andlegri heilsu
þeirra og því að þeim líði vel í
skólanum. Hollt og bragðgott
nesti er mjög mikilvœgt elds-
neytifyrir skólabörn. Hvaða
móðir þekkir ekki kvartanir
yfir einhœfum samlokum? Það
er um að gera að nota hug-
myndafiugið til þess að útbúa
spennandi nesti og jafnvel
hafa börnin með í ráðum. I
dag eru t.d. fjölbreyttir mjólk-
urdrykkir á boðstólum eins og
keila eða orkumjólk sem
krakkar eru mjög hrifnir af.
Reynið eftir fremsta megni að
koma einhverju grœnmeti fyrir
í nestisboxinu, t.d. er sniðugt
að skera niður gulrœtur.
Avextir eru einnig bráðhollir
og nokkur jarðarber eða vín-
ber geta slegið í gegn. Gjarn-
an má líka skipta reglulega um
brauðtegundir til þess að
börninfái síður leið á samlok-
unum sínum. Sumir skólar
bjóða upp á heitan mat í há-
deginu og það er sjálfsagt að
nýta sér þá þjónustu efhún er
fyrir hendi.
Það er mikilvœgt að foreldrar
sýni heimalœrdómi barnanna
sinna áhuga þvíþað er ein
mesta hvatning sem þau geta
fengið tilfrekari dáða. Það
þarfalls ekki að vera leiðinleg
kvöð heldur getur sá tími verið
ánœgjuleg samverustund með
barninu. Þá gefst líka tœkifœri
til þess að rœða umfélagslegu
hliðina í skólanum og finna
hvernig barninu líður í leik og
starfi innan veggja skólans.
En eftir að vinnudegi lýkur er
mjög notalegt að hreiðra um
sig með nýjustu Vikuna og
njóta fjölbreytts lesefnis. Að
þessu sinni heimsœkjum við
Völu Matt og Fjalar ogfáum
að kynnast skemmtilegum
sjónvarpsþœtti þeirra á Skjá
einum. Við heilsum líka upp á
staifsfólk og sjúklinga á
Reykjalundi, erum með nýja
smásögu og fjöllum um daður
á léttu nótunum. Tíska, róman-
tísk svefnherbergi ogfrœg pör
á hvíta tjaldinu œttu að höfða
til allra sannra Vikukvenna!
Njóttu Vikunnar,
Hrund Hauksdóttir,
ritstjóri
Ritstjórar: Jóhanna G. Harðardóttir og Hrund Hauksdóttir,
vikan@frodi.is. Útgefandi: Fróði hf. Seljavegi 2, sími: 515 5500
fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson.
Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðviksson, sími: 515 5515.
Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, simi: 515 5512.
Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily
Magnúsdóttir, Guðríður Haraldsdóttir og Margrét V. Helgadóttir.
Auglýsingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigriður
Sigurjónsdóttir vikanaugl@frodi.is.
Grafískur hönnuður: Guðmundur Ragnar Steingrimsson.
Verð í lausasölu 459 kr. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti
344 kr. á eintak. Ef greitt er með gíróseðli 390 kr. á eintak.
Litgreining og myndvinnsla: Fróði hf. Unnið í Prentsmiðjunni
Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir.
Áskriftarsími:
515 5555