Vikan - 12.09.2000, Blaðsíða 8
öllum sjónrænum hliðum þátt-
anna. Mér finnst skemmtilegast
að vinna svona margþætt. Einnig
er ómetanlegt að fá að vinna með
skapandi listamönnum eins og
Önnu Þóru Steinþórsdóttur, sem
setur þættina saman með mér,
myndatökumönnunum, Bjarna
Felix Bjarnasyni tæknistjóra og
öllum strákunum í stúdíóinu og
myndstjórninni sem eru frábær-
ir.“
„Ný tækni gerir það mögulegt
að gera hlutina með minni til-
kostnaði og minni fyrirhöfn en
áður var,“ segir Fjalar.
„En af meira hugviti," bætir
Vala við.
„Það háir hinum stöðvunum
kannski að sumu leyti að þær
voru byggðar upp af fólki sem var
að öðlast sína starfsreynslu með-
an filmur voru enn notaðar, tæki
voru stór, dýr og þung og því
þurftu menn að hugsa hlutina
öðruvísi. Án þess að ég sé neitt
að gera lítið úr vinnubrögðum
þeirra þá er það mjög eðlilegt að
menn þróist og það er ekki hægt
að gera byltingu án þess að ein-
hver farist. Þarna eru menn að
byrja frá grunni með nýja og mun
hentugri tækni sem þeir þekkja
og kunna á án þess að gamlar
venjur bindi hendur þeirra á
nokkurn hátt. Ég tók t.d. eftir því
þegar ég sá fyrst dagskrárupp-
setninguna hjá Skjá einum í vet-
ur að mörg kvöld fannst mér frá-
bær dagskrá sem einmitt höfð-
aði til mín en svo voru önnur
kvöld þar sem ég vildi alls ekki
sjá neitt, enda var dagskráin þau
kvöld alls ekki sniðin með þann
áhorfendahóp, sem ég tilheyri, í
huga. Mín fyrsta hugsun sem
fyrrverandi RÚ V manns var hins
vegar: Má þetta? Þetta lítur út
fyrir að vera allt of skemmtileg
dagskrá og það hefur verið
óskráð regla hjá RÚV að það má
aldrei vera neitt skemmtilegt
lengur en í hálftíma í senn. Þá
verður a'ð koma eitthvað fræð-
andi og ábyrgt. Við erum orðin
svo föst í þessum hugsanagangi,
sem hinar stöðvarnar hafa kom-
ið inn hjá okkur, að dagskráin
verði alltaf að höfða til eins fjöl-
breytts hóps og hugsast getur og
helst til allra í einu. Á Skjá einum
vinnur hins vegar ungt fólk sem
sest bara niður og segir: „Svona
viljum við hafa þetta og þannig
verður það“.“
Það er Iff utan f jölmiðla
Flestir landsmenn kannast við
Fjalar og muna eftir honum ým-
ist úr Dagsljósinu eða Þjóðarsál-
inni. Að frátöldum útvarpsþætt-
inum Glataðir snillingar sem
hann var með, ásamt Þórhalli
Gunnarssyni, hefur lítið sem ekk-
ert sést eða heyrst til hans í fjöl-
miðlum í langan tíma. Hvar hef-
ur pilturinn haldið sig?
„Það er líf utan fjölmiðla,“ seg-
ir Fjalar og brosir. „Bæði á öðr-
um hnöttum og í öðrum starfs-
greinum. Mér hefur alltaf fundist
skemmtilegt að það kemur alltaf
svolítill vorkunnartónn í rödd
manna þegar þeir segja við mig:
„Ertu alveg hættur í fjölmiðl-
um?“ Ég rann svona einhvern
veginn inn í auglýsingabransann,
úr honum inn í Internetheiminn
og þaðan inn í það heitasta um
þessar mundir sem er samruni
símatækninnar og netsins. Ég gat
nú reyndar ekki alveg stillt mig
þegar ég var í Internetmálum og
hélt úti föstum dálki um Inter-
net og viðskipti í Viðskiptablað-
inu. Nú starfa ég hjá Oz og er
mjög ánægður með starf mitt. Ég
viðurkenni alveg að ég hef mjög
gaman af að vinna við sjónvarp
en gæti ekki hugsað mér að
sleppa því starfi sem ég er nú í.
Vala kom hins vegar með tilboð
sem ég gat ekki hafnað því það
gerði mér kleift að vinna við
þennan þátt án þess að þurfa að
sleppa því sem ég hef fyrir. Mér
fannst ég einfaldlega ekki geta
sagt nei þegar svo vel var umbú-
ið.“
„Fjalar er einn af skemmtileg-
ustu sjónvarpsmönnum landsins
þannig að ég er alsæl að fá hann
með mér. Og ef hann væri ekki að
vinna fulla vinnu í fyrirtækinu Oz
myndi ég hafa fengið hann til að
vinna meira með mér við vinnslu
þáttarins en er ánægð með að
hafa fengið hann í útsendingarn-
ar með mér,“ segir Vala og bros-
ir aftur sínu blíðasta þegar hún
lítur til samstarfsmanns síns.
Þau Vala og Fjalar eru á leið í
tökur á næsta þætti og þurfa því
að fara að slíta þessu spjalli. Fjal-
ar er að velta fyrir sér götuheit-
um og hversu miklir tungubrjót-
ar sum þeirra séu. „Uppáhalds-
götunafnið mitt er Mururimi.
Þetta hljómar meira eins og
grænlenska eða frumbyggjamál á
Hawaii heldur en íslenska. Get-
ið þið ímyndað ykkur hvernig er
fyrir íbúa að reyna að segja þetta
orð um miðja laugardagsnótt,
eftir aðeins of mörg glös?“ segir
Fjalar og glottir. Hugsanlega er
hér komið umfjöllunarefni fyrir
Innlit/Útlit, fegurðin í götuheit-
um.
8
Vikan