Vikan - 12.09.2000, Qupperneq 6
Texti: Steingerður Steinarsdó11 i r
Myndir: Gunnar Gunnarsson
iijjuna
uy
ræna í okkar nánasta umhverfi.
Við skoðum hönnun, arkitektúr,
innréttingar og útlit hjá óli'ku
fólki. Skoðum heimili sem eru
mjög mismunandi, spjöllum við
húsráðendur, fáum hugmyndir
og sjáum ólíkar leiðir til að gera
heimili falleg og persónuleg.
Okkur finnst einnig skemmtilegt
að vekja athygli fólks á því sem
er vel gert og fallegt í umhverfi
okkar, t.d. í höfuðborginni
Reykjavík. Oft býr fólk hér í
borginni í mörg ár án þess að sjá
rnargar af þeim perlum sem eru
hér, bæði gamlar og nýjar.Von-
andi getum við svo í framtíðinni
farið út á land þar sem Skjárinn
mun nú nást víðar en á Stór-
Reykjavíkursvæðinu."
„Til dæmis má nefna,“ grípur
Fjalar inn í, „að ef fólk gengur
niður Laugaveginn án þess að
horfa í búðargluggana og lítur
upp í staðinn þá eru stundum ris-
íbúðir, þakskegg eða skreyting-
ar á gluggum sem eru stórkost-
legar og það hugsar með sér:
Hefur þetta alltaf verið hérna?
Og af hverju hef ég ekki tekið eft-
ir þessu-fyrr?"
Sérlega næmir fagurkerar
„Við höfum líka fengið til okk-
ar fólk úr ýmsum áttum,“ held-
ur Vala áfram, „sem hefur kom-
ið til okkar sem svokallaðir fag-
urkerar og það hefur bent okk-
ur á ýmsa hluti sem eru skemmti-
legir og þess virði að vekja at-
hygli á. Af því Fjalar var að tala
um Laugaveginn get ég nefnt að
Hallgrímur Helgason kom og
benti okkur á það að þegar að
maður gengi Laugaveginn væri
mjög skemmtilegt að horfa niður
þvergöturnar allar því þá sæi
maður alltaf sjóinn og fjöllin. Pað
mætti skanna Esjuna, Akrafjall-
ið, Skarðsheiðina og allt það fal-
lega svæði á leið sinni niður
Laugaveginn. Ég er viss um að
margir hafa upplifað Laugaveg-
inn öðruvísi eftir að hafa fengið
þessa ábendingu. Svo var Hall-
grímur náttúrulega dúndur-
skemmtilegur og við litum heim
til hans og skoðuðum hvernig rit-
höfundur og myndlistarmaður
býr en Hallgrímur á skemmtilega
íbúð rétt við Sæbrautina með frá-
bæru útsýni yfir sjóinn.“
„Fagurkerarnir benda gjarnan
á eitthvað sem þeir hafa tekið
sérstaklega eftir, annaðhvort hús
eða önnurmannvirki," segir Fjal-
Mér finnst frábært að hafa
fengið Fjalar með mér í
upptökurnar í stúdíóinu og
hann sér um tölvumálin, þar sem
hann er jú vel að sér í þeim mál-
um. Svo er hann vanur sjónvarps-
maður, skemmtilegur, klár og
getur sett sig inn í hvaða mál sem
er með stuttum fyrirvara," segir
Vala og brosir breitt þegar hún
talar um samstarfsmann sinn.
Vala og Fjalar segja ekki mikl-
ar breytingar fyrirhugaðar á
þættinum en þó nokkrar sem
ekki sé hægt að tala um alveg
strax og þau verða dularfull á
svip þegar þau eru spurð nánar.
En hvað verður aðallega fjallað
um í þættinum Innlit/Útlit?
„Við fjöllum áfram um okkar
nánasta umhverfi í sinni víðustu
mynd,“ segir Vala. „Hið sjón-
6
Vikan