Vikan - 12.09.2000, Qupperneq 10
Texti: Urtnur J ó h a n n s d ó 11 i r
Myndir: Hreinn Hreinsson
inni Reykjalundi
Á Reykjalundí eru allir jafnír, huar sem beir eru siaddir í hióðlélagsstiganum, og eiga sér hað sameiginlega mark-
mið að ná betri heilsu. Þrátt fyrir að flestir uistmenn Reykjalundar hafi lent í aluarlegum ueikindum, siysum og
áföllum, bá er enginn uppgiafartónn, uol eða uæll í beim. Hér duelur jákuæn, sterkt og duglegt fólk sem er ákueð-
ið að snúa mótbyrnum í lífi sínu í meðbyr.
Eygló Ynguadóttir: „Starfsfólkið er einstaklega áhugasamt og
lætur sér annt um mann. Þegar maður rekst á einhuerjar hindr-
anir eða á erfitt eru allir boðnir og búnir að aðstoða mann og
hjálpa, styðja og styrkja. Það kom til mín gestur um dagínn og
honum fannst Reykjalundur uera eins og farfuglaheimili."
AReykjalundi er ná-
lægðin við móður
náttúru mikil.
Helgafell og
Reykjafell, Reykjaborgin,
Hafrafjall, Úlfarsfell og Lágafell
eru í sjónlínu frá Reykjalundi og
mynda fallega umgjörð utan urn
staðinn. Skógurinn sem ræktað-
ur hefur verið í landi Reykja-
lundar er orðinn nokkuð stór og
búið er að leggja um hann göngu-
stíga. Ágúst Már Jónsson,
íþróttakennari og heilsuþjálfi,
segir umhverfið á Reykjalundi
gegna mikilvægu hlutverki í end-
urhæfingunni: „Umhverfið veit-
ir fólki vissa ró. Hér er ákaflega
fallegt umhverfi og margar
skemmtilegar gönguleiðir. Það
spillir ekki fyrir að hér er töluvert
af söguminjum sem gaman er að
kynna sér.“ Ágúst Már er vel að
sér um kennileiti í nágrenni
Reykjalundar og gaukar að vist-
mönnum ýmsum fróðleik í
göngutúrunum sem farið er í
daglega, nánast sama hvernig
viðrar. •
„Það er miklu skemmtilegra
að ganga í umhverfi sem maður
þekkir og tengir við eitthvað.
Flestir staðir eiga sér sögu og
þegar maður segir frá þeim lifn-
ar umhverfið við í hugum margra
og gefur göngunni meira gildi.
Við leggjum áherslu á að fólk
kynnist og upplifi náttúruna og
hvetjum það til útivistar. Náttúr-
an gefur okkur orku og við eig-
um að nýta hana okkur til upp-
byggingar,“ segir Ágúst Már og
brosir.
Gréta Berg Bergsveinsdóttir
hjúkrunarfræðingur tekur í sama
streng. „Umhverfið hér á
Reykjalundi er alveg yndislegt,
mér finnst þetta vera orkustöð.
Hér ríkir jafnvægi og andrúms-
loftið er rólegt. Það er ekki þessi
mikli hraði sem er svo víða, sér-
hver er á þeim hraða sem hann
ræður við og vinnur í sínum mál-
um,“ segir Gréta.
Starfsfólk á Reykjalundi, f.v. Gréta
Berg Bergsveinsdóttir, Anna Kristín
Þorsteinsdóttir, Rannveig Sigurðar-
dóttir, Rósa Friðriksdóttir og Alex-
andra Kriegler.