Vikan - 12.09.2000, Síða 15
þá sem farnir eru en þeir eru
í enn annarri vídd. Mann-
eskjan hefur allar þessar vídd-
ir í sér og hæfileikann til að
skynja þær. Ég kenni á nám-
skeiðum hvernig opna megi
þessar víddir hugans. Annars
er kannski betra að tala al-
farið um skynjun en ekki sjón.
Ég get til að mynda séð fólk í
mörg hundruð rnetra fjarlægð
frá mér þótt ég þurfi að nota
gleraugu til að greina það sem
er næst mér.“
Námskeiðin sem Erla vís-
ar til eru á vegurn Lífssýnar
sem eru samtök stofnuð til að
efla sjálfsþekkingu. Einkunn-
arorð samtakanna eru úr
heimspekiriti Paramahansa
Yogananda og eru á þessa
leið: „Öll erurn vér bárur á
bylgjum hafsins," sagði meist-
arinn. „Hafið getur haft til-
veru, þótt það hafi engar öld-
ur, en öldur geta ekki verið
til án hafsins. Á sama hátt get-
ur andinn verið til án manns-
ins, en maðurinn getur ekki
verið til án andans.“ Lífssýn
spyr sígildra spurninga eins
og: Hvaðan kemur þú? Hvert
ferðu? Hversu gömul er sál
þín? Og hvar er upphafið?
Leitast er við að svara þessum
spurningum með því að leita
inn á við og rækta anda sinn
þar til hann verður fær um að
svara þessum mikilvægu
spurningum.
Víddirnar sem Erla talar
urn eru geðheimur, hugheim-
ur og innsæisheimur. Nám-
skeið sem kynna hvern og
einn heim eru í Lífssýnarskól-
anum og ætluð til að opna
mönnurn nýja sýn á heiminn
og sjálfa sig. Geðheimur snýst
um tilfinningar mannsins og
litróf þeirra. Hugheimur
snýst um hugform manna,
stöðu þeirra og uppbyggingu.
Innsæisheimurinn er heimur
sálarinnar og á námskeiðinu
kafar Erla með nemendum
sínum í dýpt sálarinnar og
skoðar hvernig hún kemur
fram í persónunni.
Seinni hluti Lífssýnarskól-
ans snýst svo um shamanisma
sem á rætur sínar að rekja til
Evinki þjóðflokksins í Síber-
íu. Orðið þýðir einfaldlega
„sá sem veit“ og shaman er
sá sem breytir vitundará-
standi sínu að vild, til að ná
sambandi við sinn innri
mann, eða ferðast til annarra
vídda til að öðlast mátt og
visku. Shamannámskeiðin
byggjast á hugleiðslu og íhug-
un. Þar er velt fyrir sér efnis-
bústaðnum og tilfinningum
efnisins, ytri og innri tilfinn-
ingar eru hreinsaðar og hug-
urinn taminn til að öðlast
kyrrð. Að lokum má síðan
þróa innsæi sitt og öðlast hug-
ljómun.
Teiknar fjallavætti fyrir
Bandaríkjamenn
Eitt af þeim verkefnum
sem Erla hefur unnið að und-
anförnu er að teikna verndar-
vætti fjalla á Islandi. Myndir
hennar munu birtast í banda-
rísku tímariti um andleg mál-
efni. Teknar voru myndir af
fjöllunum fyrir Erlu og hún
teiknaði síðan vættina. Mynd-
irnar voru að lokum skannað-
ar í tölvu og sameinaðar til
að sýn Erlu gæti birst okkur
hinum sem ekki sjáum það
sama og hún.
„Lífssýn kennir að til séu
mismunandi heirnar og mis-
munandi víddir. Ef við getum
skynjað út frá sálinni þá gel-
um við séð þar allt sem hægt
er að læra. Lítil börn skynja
betur það sem fullorðnir sjá
ekki. Við eigum að leyfa þeim
að hafa bæði ímyndunarafl og
frjóan huga. Besta jólagjöf
sem ég hef fengið var þegar
þriggja ára dótturdóttir mín
kom í heimsókn á jóladag.
Mér hafði áskotnast norskur
jólasveinn sem var allhár og
ég hafði stillt honum upp á
stofugólfinu. Barnið kom og
talaði við jólasveininn eins og
hann væri lifandi og að hún
byggist við svari. Hún til-
kynnti honum að hann væri
ekki á réttum stað, hann ætti
að standa framrni í stiga.
Þetta sagði hún aftur og aft-
ur og varð örg þegar jóla-
sveinninn hreyfði sig ekki. Að
lokum hljóp hún fram á gang
og leit niður í stigann og þá
birti yfirhenni.
„Hann er
þarna,“ hróp-
aði hún.
„Hann er bú-
inn að fá bróð-
ur.“
Búálfar eru
til og það er
ekkert heimili
sem ekki hefur
þá. Þeir eru
stríðnir og eiga
til að fela fyrir
manni hluti. í
garðinum búa
blómálfar,
trjáálfar,
grasálfar og
aðrar verur. Á
heimilum eru
einnig englar,
sérstaklega í
kringum börn
og þá sem eru
mjög aldnir.
Álfar og
englar eiga
jörðina en
mennirnir eru
gestir og gest-
irnir fara gróf-
lega um. Þeir
kunna sig ekki
og eyðileggja
mikið.“
Margir eru mjög hrœddir við
yfirskilvitlegar verur og óttast
mjög hefnd þeirra sé ró þeirra
raskað á einhvern hátt. Hvern-
ig er best að lifa ífriði meðþess-
um verum ?
„Fólk er hrætt við skynjan-
ir sínar vegna þess að það er
hrætt við að sjá fleira en það
sem liggur í augum uppi. Það
þarf ekki að óttast aðrar vídd-
ir því sá sem hefur hreint
hjarta og treystir á hið góða
þarf ekki að óttast neitt. Það
eiga sér allir verndarengla og
hafa auk þess sérstaka vernd.
En ef fólk telur að álfar búi í
steini sem það ætlar að flytja
úr stað eða í nágrenni við stað
þar sem það hyggst raska jörð
er gott að ganga að staðnum,
banka þrisvar í steininn og
tala við íbúann; láta hann vita
hvaða framkvæmdir séu fyr-
irhugaðar, vara hann við og
gefa honum kost á að flytja
ef hann vill. Þá ætti öllu að
vera óhætt.“
Erla talar af ró og festu og
frá henni stafar miklum friði.
Fjallavættirnir sem hún teikn-
ar eru óskaplega fallegir, nán-
ast eins og geislar eða árur upp
frá fjöllunum, og það er auð-
velt að trúa að hin magn-
þrungna náttúra Islands sé
byggð einmitt slíkum vættum.
Erla leggur þó áherslu á að
rnenn líti inn á við og finni þar
ljós guðs og frið. Hún minnir
á að við erum vegfarendur lífs-
ins og það er okkar að lyfta vit-
und okkar á æðra svið. Kynn-
ingarbækling Lífssýnarskól-
ans lýkur á þessum orðum:
„Köllum til okkar engil friðar
og kærleiksengla hinrins og
biðjum í nafni Meistara okk-
ar um frið og blessun til okk-
ar - rnóður jarðar og allrar
náttúrunnar.“ Varla er hægt að
finna lokaorð sem hæfa Erlu
Stefánsdóttur betur.
Vikan 15