Vikan - 12.09.2000, Blaðsíða 30
Samantekt: Guðríður H a r a I d s d ó 11 i r
Opnaðu heimili þitt og vinnustað fyrir gæfunni
Raðaðu hlutunum rétt!
Uppröðun húsgagna og skrautmuna getur skipt miklu máli samkvæmt Feng Shui
Ekkí nota kertaljós á vest-
ur- eða norðvestursvæð-
um og alls ekki staðsetia
blóm á suðvestur- eða
norðaustursvæðunum.
Rafmagnstæki eru algjör
bannvara í austur- og
suðausturhornum, sem
eru fjölskyldu- og heilsu-
svæði (austur) og auð-
legðarsvæðið (suðaust-
ur). Hvaða hluti er best að
staðsetja á austur- og
suðaustursvæðinuP
Uppröðun húsgagna og
skrautmuna getur skipt
sköpumbegará aðfá
gott flæði ínn á heimili
sitt eða uínnustað. Litir
skipta eínnig afar miklu
málí og má tíl dæmis alls
ekki nota rauðan lit í eld-
húsi og brúnn litur er afar
óheillavænlegur í svefn-
herbergjum. Mörgum
finnast petta fremur flók-
in fræði en pessi greín
mun vonandi opna augu
einhverra fyrír leyndar-
dómum Feng Shui.
Vinsældir Feng shui
Feng Shui hefur undanfar-
in ár verið að ryðja sér til
rúms á Vesturlöndum. Bækur
um þessa fornu kínversku
speki seljast grimmt og einnig
eru gefin úl tímarit um Feng
Shui. Eitt mest selda tímarit-
ið heitir Feng Shui For
Modern Living og það fæst í
bókaverslunum hér á landi.
Það er nokkuð dýrt en er inni-
haldsríkt og vel þess virði að
fjárfesta í því. Enn hafa ekki
komið út bækur á íslensku um
þessi spennandi fræði og eina
leiðin til að lesa sér til um
Feng Shui á íslensku hefur
verið í gegnum tímarit á borð
við Vikuna. Vikan hefur ann-
að slagið verið með greinar
um Feng Shui. Internetið er
fullt af upplýsingum um Feng
Shui og hægt að sitja í marga
klukkutíma við tölvuna til að
viða að sér fróðleik. Já, og
það minnir á að einna best er
að staðsetja tölvuna sína við
norðvesturvegg á heimili sínu
eða á vinnustað.
Notkun lita á vissum svæð-
um, t.d. notkun steina og
kristalla, ljósa og kertaljósa í
suðvesturhorninu, sem er
táknrænt fyrir ást og róman-
tík, á að geta örvað þann
hluta tilverunnar. Margir hafa
fullyrt að þegar þeir hafi far-
ið eftir þessum fræðum í einu
og öllu hafi líf þeirra breyst til
hins betra. Peningaflæðið
jókst og hjónabandið batnaði.
Ekki er þó talið gott að virkja
mörg svæði í einu, frekar að
taka eitt fyrir í einu í róleg-
heitum. Áttakortið, eða Lo
Shu lykillinn, sýnir hvaða
hlutir eru æskilegir á hverju
svæði og hverjir eiga alls ekki
að vera þar. Ekki hafa sjón-
varpið þitt, tölvuna, hljóm-
flutningsgræjurnar, eða ann-
að úr málmi við austurvegg á
heimili þínu því samkvæmt
fræðunum getur það haft
skaðleg áhrif bæði á fjöl-
skyldulíf þitt og heilsuna.
Litir og Feng Shui
Þar sem minnst er á svæði í
sambandi við eiginleika lita
eru áttirnar sem við eiga látn-
ar fylgja með innan sviga. Til
dæmis: S= suður og NV=
norðvestur.
Rauður
Frumefni: Eldur
Átt: Suður
Eiginleikar: Rauður er styrkj-
andi og orkugefandi litur.
Hann er tengdur ástríðu,
hlýju og velgengni en einnig
reiði og skömm. Rauður er
sterkur, ráðandi litur og þess
vegna er betra að nota hann
sem litskreytingu en sem
grunnlit. Svæði rauða litarins
eru frægð (S), hjónaband
(SV) og þekking (NA).
Rauður litur passar engan
veginn í borðstofur, barna-
herbergi, eldhús eða vinnu-
stofur.
Gulur
Jörð
Norðaustur og
suðvestur
Gulur er tengd-
ur við vitneskju og gáfur.
Hann er ögrandi og eykur
einnig kraft og skýrleika. Guli
liturinn er tákn bjartsýni, rök-
hyggju og ákveðni en einnig
táknar hann slægð og ýkjur.
Gulan lit er best að nota í
samskiptasvæðinu (NV) en er
einnig góður í þekkingar-
svæði (NA) og barnasvæði
(V).
Grænn
Frumefní: Viður
Átt: Austur og suðaustur
Eiginleikar: Grænn táknar
vöxt, sköpun og jafnvægi.
Hann er litur hvíldar og end-
urnæringar. Hann er samof-
inn frelsi, jafnvægi hugans og
bjartsýni en einnig öfund og
svikum. Grænn litur hentar
vel auðlegðarsvæði lífs þíns
(SA), því hann táknar vöxt.
Hann er einnig góður í frægð-
arsvæðinu (S). Græna litinn
má nota til að skreyta baðher-
bergi og garðskála en ekki í
fjölskyldu-, leik- eða vinnu-
herbergjum.
Blár
Frumefni: Vatn
Átt: Norður
Eiginieikar: Blár litur er tal-
inn bæði róandi og græðandi.
Hann er tengdur andlegum
málum, hugleiðingum og
leyndardómum, einnig þolin-
mæði. Neikvæðir hlutar hans
eru tortryggni og þunglyndi.
Blár litur er heppilegur til að
nota í framasvæðinu (N) og
fjölskyldu- og heilsusvæði
(A) og auðlegðarsvæði (SA).
Notið bláan lit til að skreyta
svefnherbergi og baðher-
bergi.
Fjólublár
Frumefni: Eldur
Átt: Suður
Eiginleikar: Fjólublár hefur
alltaf verið tengdur virðingu
og andlegum málum. Skikkj-
ur þjóðhöfðingja eru oft í
þessum lit. Jákvæðu tenging-
arnar eru ástríða, spenna og
hvatning, neikvæðu hliðarnar
eru að syrgja og beita valdi.
Fjólublár er góður litur í
frægðarsvæði (S), þekkingar-
(NA) og sambandasvæði (N).
30
Vikan