Vikan - 12.09.2000, Síða 51
stuttu seinna og Söruh fannst
hún vera utanvelta og hvergi
eiga heima. Samt sem áður
kom henni vel saman við for-
eldra sína og stjúpforeldra og
var niðurbrotin og mjög sorg-
mædd þegar móðir hennar dó
í bílslysi fyrir tveimur árum
þrátt fyrir að samband þeirra
hefði aldrei verið náið.
Prinsinn á hvíta hestinum
Sarah útskrifaðist úr
menntaskóla átján ára göm-
ul og hélt ekki til áframhald-
andi náms. Hún fékk fyrst
vinnu hjá almannatengslafyr-
irtæki, vann um tíma hjá lista-
galleríi og bókaútgáfu. Hún
segist hafa lifað „fábrotnu“
lífi á þessum árum en eytt öll-
um sínum aukapeningum í
skemmtanir og föt. Hún virð-
ist þó ekki hafa lifað fábrotn-
ara lífi en svo að hún fór oft
á skíði til Sviss og ferðast vítt
og breitt um Evrópu með hin-
um og þessum ástmönnum
sínum.
Það var svo árið 1985 sem
Sarah hitti manninum sem
hún ætlaði sér að eyða ævinni
með, Andrew prins.
Til að gera langa sögu stutta
urðu þau ástfangin upp fyrir
haus, trúlofuðu sig þann 19.
mars 1986 og giftu sig í hinni
frægu Westminister kirkju
þann 23. júlí sama ár.
En hamingja ungu hjón-
anna entist ekki lengi. Sarah
tók að fitna og það hafði mjög
slæm áhrif á sálarlíf hennar.
Hún eignaðist dæturnar,
Beatrice árið 1988 og Euginie
árið 1990, fitnaði enn meira
og var um tíma að orðin rúm-
lega hundrað kíló.
Hin miskunnarlausa gula
pressa í Bretlandi hæddist að
henni og kallaði hana „The
Duchess of Pork“, (pork
=svín), vegna þyngdarinnar
og gerði henni lífið leitt á
ýmsan máta. Hún var einnig
stöðugt borin saman við hina
fallegu svilkonu sína, Díönu
prinsessu, sem var grönn og
ljóshærð.
Til að bæta gráu ofan á
svart var Andrew fjarverandi
meirihluta ársins vegna starfs
síns sem flotaforingi og því
lenti uppeldi dætranna og all-
ar konunglegu skyldurnar á
Söruh.
Tásogið ógurlega
Það má því segja að það
hafi fljótt komið brestir í
hjónaband Söruh og
Andrews og þau tilkynntu
bresku þjóðinni að þau væru
skilin að borði og sæng árið
1992. Staða Söruh var þó
óljós næstufjögur
árin eða allt þar
til breska pressan birti mynd-
ir af henni berbrjósta í sólbaði
í Suður-Frakklandi með fjár-
málaráðgjafa sínum John
Bryan sem virtist hafa mikinn
áhuga á tám Söruh og saug
þær af áfergju. Þá var hinni
íhaldssömu bresku konungs-
fjölskyldu nóg boðið. Sarah
og Andrew skildu endanlega
og hún var svipt titlinum,
„hennar konunglega hátign.“
Hertogaynjan hefur alltaf
haft gaman af að versla og
eyða peningum, eins og
reyndar fleiri meðlimir
bresku konungsfjölskyldunn-
ar og þegar hún skildi stóð
hún ein upp með
skuldir upp á um
700 milljónir ís-
lenskra króna.
Sarah fékk hins vegar „að-
eins“ um 50 milljónir ís-
lenskra króna við skilnaðinn
en til samanburðar má geta
þess að Díana prinsessa fékk
tæpa þrjá milljarða íslenskra
króna við sinn skilnað.
Sarah varð því að koma
niður úr skýjunum og fara að
vinna fyrir sér eins og sauð-
svartur almúginn. Hún tók
því fegins hendi boði amer-
ísku megrunarsamtakanna
Weight Watchers sem buðu
Söruh væna fúlgu fyrir að
vera í forsvari fyrir samtökin
og fræða fólk um offitu. Rús-
ínan í pylsuendanum var að
sjálfsögðu boð Weight
Watchers manna um að
hjálpa Söruh sjálfri við að
grenn-
ast.
Sarah tók strax til óspilltra
málanna og léttist um tuttugu
og fimm kíló á einu ári og hef-
ur haldið þeirri þyngd síðan.
Astalíf hennar hefur verið
talsvert flókið síðan hún
skildi og sífelldar getgátur
hafa verið um hvort að hún og
Andrew tækju sam-
an aftur vegna mik-
ils og náins vinskapar þeirra.
Þeir sem til þekkja telja það
þó ólíklegt því Sarah hafi eng-
an áhuga á að verða hluti af
konungsfjölskyldunni aftur
og sé hæstánægð með stöðu
sína í dag.
Vikan
51