Vikan - 12.09.2000, Síða 59
n:f;r,|,|:^H Jl«
ist niður og reyndi að sofna en
það gekk illa. Mér tókst að
dotta undir morgun og um
hádegið kom fangavörður
með mat á bakka handa mér,
ólystugan fisk með kartöfl-
um. Ég snerti ekki matinn því
mér leið svo illa. Skömmu síð-
ar var ég sóttur til yfirheyrslu.
Rannsóknarlögreglumaður
talaði við mig í tvo klukku-
tíma og ég reyndi að fara
þann milliveg að vera sam-
starfsfús án þess að gefa allt
upp. Þótt ég væri reiður út í
strákana vildi ég ekki vera
einhver blaðurskjóða. Lög-
reglan virtist vita í algjörum
smáatriðum hvað gerðist því
búið var að yfirheyra Kidda
og Óla. Þeir höfðu greinilega
sagt frá öllu. Ég þurfti ekki
annað en samþykkja það sem
lögreglan sagði. Ég var því
ekki neyddur til að vera
„skvíler“, eins og það er kall-
að, eða kjaftaskur. Ég geri ráð
fyrir að ég hefði frekar kosið
að sitja lengur inni en segja
það sem kom strákunum illa.
Mér hefði fundist ljótt að
svíkja vini rnína og fyrst ég
vissi hvað þeir voru að fara að
gera var ég auðvitað samsek-
ur. Eftir yfirheyrsluna var ég
leiddur niður í kjallara þar
sem voru teknar af mér
myndir og fingraför. Mér leið
eins og stórglæpamanni og
það var ekki góð tilfinning.
Mamma hafði haft miklar
áhyggjur af mér um nóttina
því ég var vanur að láta hana
vita ef ég gisti annars staðar,
t.d. hjá kærustunni minni eða
heima hjá pabba. Ég hringdi
í mömmu þegar þetta var af-
staðið og hún kom strax upp
á lögreglustöð þótt ég hefði
sagt henni að gera það ekki.
Hún sagði mér síðar að rann-
sóknarlögreglumaðurinn sem
yfirheyrði mig hefði sagt við
hana að hann ætti ekki von á
því að sjá mig nokkurn tíma
aftur undir svona eða svipuð-
um kringumstæðum. Ég væri
ekki af sama sauðahúsi og
Kiddi og Óli. Ég veit ekki
hvernig hann sá það en held
að reyndir lögreglumenn sjái
út hverjir eru alvöruglæpa-
menn og hverjir ekki.
Mamma varð mjög ánægð
þegar hann sagði þetta við
hana og róaðist
mikið. Ég ákvað,
í kjölfar þessa
máls, að slíta öllu
sambandi við
strákana, sér-
staklega eftir að
þeir hringdu í
mig viku seinna
og báðu mig um
að keyra sig í annan innbrots-
leiðangur. Ég sagði í gríni við
mömmu að hún ætti bara að
segja þeim að ég væri dáinn ef
þeir hringdu en veit ekki
hvort hún hefur gert það. Ég
held reyndar að strákarnir
hafi alltaf skellt á þegar hún
svaraði í símann. Ég fékk mér
nýtt GSM-símanúmer og lét
það vera leyninúmer. Mér
hefur alveg tekist að losna við
Kidda og Óla en hef heyrt
ýmsar sögur um þá. Þeir hafa
ýmist verið í meðferð eða inni
á Litla-Hrauni síðustu árin.
Nýlega frétti ég að það hefði
slest upp á vinskapinn hjá
þeim því þeir væru hættir að
talast við. Kannski hefur ann-
ar þeirra gerst „skvíler" gagn-
vart hinum en það þykir hið
versta mál í hörðum heimi
glæpanna.
Ég slapp ekki vel frá þessu
ævintýri því ég hlaut tveggja
ára skilorðsbundinn dóm og
þurfti að hitta skilorðsfulltrú-
ann minn, reyndar alveg frá-
bæra konu, einu sinni í mán-
uði. Hún var ekki með neina
stæla og kom fram við mig
eins og vitiborinn mann. Hún
spurði mig bara hvað ég væri
að gera, hvernig mér liði og
svo spjölluðum við um daginn
og veginn.
Ég ákuað, í kjölfar þessa máls, að
slíta öllu sambandí uíð strákana,
sérstaklega eftir að þeír hríngdu
í mig uiku seinna og báðu mig
um að keyra sig í annan inn-
brotsleiðangur.
Mér hefur alveg tek-
ist að losna við
Kidda og Ola en hef
heyrt ýmsar sögur
um þá. Þeir hafa
ýmist verið í með-
ferð eða inni á Litla-
Hrauni síðustu árin.
Ég er mjög sáttur við fram-
göngu lögreglunnar í þessu
máli. Það er ekkert við hana
að sakast og lögreglumenn-
irnir voru bara að vinna sína
vinnu og gerðu það vel. Þeir
sýndu mér aldrei hörku eða
dónaskap við yfirheyrslurn-
ar en voru samt afar ákveðn-
ir. Frá barnæsku hefur blund-
að í mér sá draumur að verða
lögreglumaður en ég hlýt að
vera búinn að eyðileggja
möguleika mína á að láta
þann draum rætast með þessu
dómgreindarleysi.
Lesandi segir
Guðríði
Haraldsdóttur
sögu sína
Vilt þú deila sögu þinni meö
okkur? Er eitthvað sem hefur
haft mikil áhrif á þig, jafnvel
breytt lífi þínu? Þér er vel-
komiö aö skrifa eöa hringja til
okkar. Við gætum fyllstu
nafnleyndar.
Ilciniilisf'aii^iö cr: Vikan
- „Líl'sreynsliisaga“, Seljavegnr 2,
101 Reykjavík,
Neflanj*: vikan@rrodi.is
• ÍV
K
A