Vikan - 12.09.2000, Blaðsíða 63
Spá Vikunnar
Hrúturinn
21. mars - 20. apríl
Þú ert að styrkjast í því sem þú hefur tekið
þér fyrir hendur og lætur aðra ekki segja þér
fyrir verkum. Þú munt hafa sterk áhrif á aðra
þessa viku og munt sjá að þú átt fleiri aðdáendur en þú
vissir af.
Nauöð
21. apríl - 21. maí
Það er rómantískt skeið í lífi þínu núna og
fremur rólegt í kringum þig. Það er samt ekki
hætta á að þér leiðist því mörg naut munu fá
tilboð sem þau geta ekki hafnað, hin fá að minnsta kosti
skemmtilegt boð í veislu eða eitthvað sambærilegt.
Tvíburinn
22. maí - 21. júní
Nýja tunglið 29. ágúst er enn að hafa áhrif á
þig og þú ert með allan hugann við endur-
bætur á heimilinu og eitthvað tengdu einka-
lífi þínu. Það gætu verið einhvers konar aðrar
breytingar í gangi, svo sem flutningar inn eða út af heimil-
inu ...
Krabbinn
22. júnf - 23. júlí
Það er kominn tími til þess að krabbinn taki
sér frí, og þá meinum við FRÍ. Þú þarft á
hvíld að halda, tfma sem notaður er ein-
göngu til að gera ekki neitt og slaka á. Reyndu að nota
helgina til þess að hvíla þig.
4?
f mtrr
24. júlí - 23. ágúst
Fjármálin eru í uppsveiflu og þér finnst allt
ganga betur en það hefur gert í sumar. Þú ert
heldur bráðlát(ur) og vilt að allt gangi upp á
stundinni, en þú gætir samt þurft að bíða eftir að sjá árang-
ur erfiðis þíns.
Meyjan
24. ágúst - 23. september
Þeir sem fæddir eru í kringum mánaðamótin
eru afar hamingjusamir þessa dagana og
finna fyrir miklum létti. Meyjur ættu þó að
huga að heilsu sinni allan þennan mánuð og reyna að
byggja hana upp.
Vogin
24. september - 23. október
Þú geislar af orku og hamingju núna og það
eru talsverðar líkur á að einhver verði ástfang-
in(n) af þér ef þú gætir þín ekki! Ef þú hefur
ætlað þér að tæla einhvern sérstakan ættir þú að leggja til
atlögu núna!
Sporðdrekinn
24. október - 22. nóvember
Farðu varlega að þínum nánustu þessa vik-
una, það er einhver viðkvæmni í loftinu í
kringum þig. Ekki taka neina sénsa í íþróttum
og farðu varlega ef þú vinnur við hættulegar aðstæður því
drekarnir eru ekki alveg nógu árvökulir gagnvart hættu
um þessar mundir.
Bogmaðurinn
23. nóvember - 21. desember
Vegurinn er svolítið holóttur núna, en þá er
bara að aka varlega. Þú hefur oft verið betur
fyrirkölluð(kallaður) og lætur venjulega
óheppni fara mikið í taugarnar á þér. Taktu lífinu með ró.
Steingeiön
22. desember - 20. janúar
Þú vaknar upp við vondan draum og þarft allt
í einu að gefa allt í botn. Þú hefur verið svolítið
löt(latur) undanfarið og þú veist að þú mátt
ekki við því. Skipuleggðu verk þín vel og reyndu að halda
áætlun, það hentar steingeitunum miklu betur.
Vatnsberinn
21. janúar • 19. febrúar
Þú átt erfitt með skapið núna og þér finnst
margt fara úrskeiðis. Hafðu ekki áhyggjur því
stjörnurnar eru að undirbúa betri tíð með ást
og hamingju handa vatnsberum sem birtist þeim seinna
þessum mánuði.
46
Fiskarnir
20. febrúar - 20. mars
Jæja, fiskur! Nú skaltu fara að slaka svolítið á!
Það er búið að vera mjög gaman hjá þér, en
það er farið að verða svolítið lágt risið á þeim
sem hafa lifað hæst undanfarið. Taktu svolitla hvíld, ekki
veitir af áður en næsta törn hefst.