Menntamál - 01.10.1924, Page 7

Menntamál - 01.10.1924, Page 7
M E N T A M Á L 3 höggi, Slík ósk er óþörf um þá óvini, sem vjer nú mun- um fást við, því að orsakirnar lil alls vcrs vesaldóms sitja á einum hálsi, eiga allar rót sína að rekja til óslyrks vilja, með öðrum orðum, lil óbeitar vorrar á áreynslu, einkuni þó öllu langvarandi erfiði. Starfsleysi, skeytingarleysi, kæruleysi eru aðeins ólík nöfn á letinni, sem loðir við mannlegt eðli. Menn leggja því aðeins á sig langvarandi erfiði, að þeir sjeu til neyddir. Ferðamönnum ber saman um það, að villimenn geti ekki lnindið sig lil lengdar við eitt starf. Á vorum dögum eru Skrælingjar að hverfa úr sögunni af þeirri ástæðu, að þeir vilja ekki gefa sig við regluhundnum störfum, sem þó gætu leyst vandræði þeirra. En við skulum ekki leita langt yfir skamt. Alkunnugt er það, hve lengi börn eru að venjast reglubundinni vinnu. pað er og sjaldgæft, að bændur eða vinnumenn reyni að bæta áhöld eða vinnulag sitt. Vjer gætum að dæmi Spencers talið ÖII þau áhöld, er vjer notum daglega. Hvert einasta þeirra mætti endurhæta í nokkuru, ef um væri hugsað. Vjer neyðumst til að taka undir með honum, er hann segir, að það sje engu líkara, „en að hver og einn hafi ásett sjer að lil'a við þá minstu hugaráreynslu sem auðið verði.“ Hversu marga starfsmenn getum vjer fundið meðal fjelaga vorra, er vjer lítum aftur til námsáranna? Var vinna þeirra flestra ekki svo lítil sem hægt var að kom- ast af með til að ná prófi? Og þegar námi er lokið, líta menn svo á, að alt hugarstarf sje afarörðugt viðureignar. Um allar jarðir sigla menn á minninu einu gegn um prófin. pað er heldur ekki stefnt hátt. Mancuvrier lýsir svo vonum námsmanna: „peir keppa eftir embættum, þau mega vcra illa launuð, í litlu áliti, án vonar um bætt kjör, þannig, að hæfileikar þeirra, er gegna þeim, rjena ár frá ári við ófrjótt starf, — ef þau aðeins veita þann „sælu- ríka sálarfrið“, að þurfa hvorki að hugsa, vilja nje starfa. Nákvæm reglugerð gerir vinnuna eins reglu-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.