Menntamál - 01.10.1924, Blaðsíða 18

Menntamál - 01.10.1924, Blaðsíða 18
14 M E N T A M A L „vit án hjarta er hvergi gott.“ J?að er fljótsagt, að jeg iíl svo á, að nieð þessu fyrirkomulagi sje mikil liælta á, að hin siðferðilega hlið skólauppeldisins sje vanrækt. Og einmitt á þessu sviði stöndum vjer tiltölulega lengst að baki grannþjóðum vorum. Jeg skal nú leitast við að rökstyðja nokkuð þessa skoð- un mína. Við stærstu skóla vora mun það vera svo, að úr jm að hörnin eru komin upp i 5., 6., 7. og 8. bekk, þar sem svo margir eru, er það algengt, að þau hafi alt að tíu kennara hvert skólaár. Og oft er það, að enginn þeirra hefir fleiri kenslustundir í bekknUm en fimm á viku. Kennarinn getur því aldrei orðið verulega kunnugur börh- unum, hann kemiír til þeirra og fer sem gestur. j?að er hætt við að hann finni ekki til neinnar sjerstakrar áhyrgð- ar á hátterni þeirra og hegðun, að öðru en þvi, að þau sjeu sæmilega hljóðlát, þá stundina, sem hann er hjá þeim. Sje hann duglegur og áhugasamur, keppist hann við að láta þau læra sem mest að unt er af sinni grein, og tak- ist það, er það honum fyrir mestu. Hann hefir engan tíma til að kynnast hverjum einstakling, leila uppi sjer- kenni hans í lund og gáfnafari, kynna sjer hagi alla og hætti á heimilinu og aðbúðina þar. Hann brestur því öll skilyrði til að skil j a börnin til nokkurrar hlítar. Kenn- araborðin, upphækkuð oð aðskilin frá sætum barnanna, eru besla tákn stöðu hans. Hann verður húsráðandi i kenslustofunni, stundum vel látin, stundum miður, og gengur eftir því samviskusam- lega, að þau geri „skyldu“ sina. Vináttu og samvinnu í eiginlegri merkingu er sjaldan að tala um. J?essari vei’ka- skiftingu fylgir og sú hætta, að börnin líti á námsgrein- arnar sem þær sjeu óskyldar innbyrðis, hve nátengdar sem þær eru i raun og veru. J?ær verða þá eins og slak- steinar, i stað þess að renna saman i eina lifandi lieild. 'rökum til dæmis öll þau tækifæri, sem bjóðast í landa-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.