Menntamál - 01.10.1924, Page 19

Menntamál - 01.10.1924, Page 19
MENTAMÁL 15 fræðistímunum til að komast í allar áttir, til því nær allra annara námsgreina. pessi tækifæri verða ekki not- uð sem skyldi, bæði vegna þess, að kennararnir vilja ekki grípa hver inn í annars starf, og auk þess fer svo í þeim skólum, sem hafa knappan tíma til umráða, að hver kenn- ari þykist hafa of litinn tíma fyrir sína grein, og á þann hátt skapast nokkurskonar samkepni milli námsgrein- anna. Kenslustarfið miðar að langmestum hluta að þvi að miðla þekkingu og þroska vitsmunina. pess þarf með, en það er ekki nóg, og mjer liggur við að segja: ]?að er e k k i aðalatriðið. Fyrir löngu eru menn komnir að raun um að vizkan ein er ekki nóg til að gera menn góða og farsæla, og þekkingin ekki lieldur. Allir vita hve hermigjörn hörn alment eru. Dómgreind- in er lítt þroskuð og tilfinningarnar ráða. pau líkja ávalt eftir fullorðna fólkinu meira eða minna, og mest þeim, sem þau þekkja best og eru mest með daglega. Nú verður hik- laust að gera ráð fyrir því, að kennarinn sje maður, sem holt sje að þau hafi til fyrirmyndar. Annars er hann auð- vitað ekki stöðu sinni vaxinn, hve margfalda og góða skc 'ilavitnishurði, sem hann annars kann að hafa. Sje nú svo til hagað, að Iiver kennari hafi sinn bekk fyrir sig að langmestu leyti, er honum einsætt að færa sjer á skyn- sanilegan hátt í nyt þessa Imeigð þeirra. Og persónuleg úhrif hans verða venjulega varanlegri og dýpri en sjálf fræðskm. Á þann hátt getur hann vafalaust haft djúp áhrif á þroska barnanna og heinl honum á hollar hraut- ii'. En úr þessum áhrifum verður ekki neitt, ef viðkynn- "igin, er lítil, svo sem jafnan verður, ef kennarinn er með- hörnunum aðeins örfáar stundir á viku. Frh. Guðjón Guðjónsson.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.