Menntamál - 01.03.1945, Síða 11
MENNTAMÁL
61
Biblíusögumar nýju
Ekki alls fyrir löngu hefur Ríkisútgáfa námsbóka sent
frá sér 1. og 3. hefti af nýjum biblíusögum, en 2. hefti kom
út í fyrra. Biblíusögur þessar eru að nokkru sniðnar eftir
bibilíusögum Berggravs Óslóarbiskups, en samningu
þeirra hafa eftirtaldir kennimenn annazt: Ásmundur Guð-
mundsson prófessor, Hálfdan Helgason prófastur, Helgi
Elíasson fræðslumálastjóri, Ingimar Jóhannesson kenn-
ari, Sigurjón Guðjónsson prestur og Þorsteinn Briem
prófastur.
Mér þykir rétt, að þessarar kennslubókar sé að nokkru
getið í Menntamálum, þótt ég hafi enn ekki notað hana
neitt við kennslu og standi því lakar að vígi en ella til þess
að rneta hana réttilega. En ég hef rætt nokkuð um 2. heft-
ið við kennara, sem hafa notað það, og fært mér bend-
ingar þeirra í nyt.
Efnisröðun.
Efni biblíusagna þessara er nokkuð á annan veg rað-
að en venja hefur verið í biblíusögum okkar. Fyrst er
sagt frá fæðingu Jesú og bernskuatburðum, en síðan koma
sögur Gamla testamentisins, og er gerð sú grein fyrir
þeim, að móðir Jesú muni hafa frætt hann um margt úr
helgum bókum þjóðar sinnar. Ég kann vel við þessa niður-
röðun. Mér sýnist sem tvennt muni einkum vinnast við
hana: 1) Sögur Gamla testamentiSins koma eins og af
sjálfu sér og færast nær börnunum. 2) Ýmsar umdeildar
sögur, eins og t. d. sköpunarsagan og syndafallssagan,