Menntamál - 01.03.1945, Page 20
70
MENNTAMÁL
34- gr-
Þegar einhver hluti launa er greiddur í fríðu, svo sem jarðar-
afnotum, húsnæði, ljósi, liita, fæði og öðru, skulu þessi hlunnindi
metin árlega af yfirskattanefnd í því umdæmi, sem launþegi er bú-
settur í, og matsverðið dregið frá heildarlaunum.
Ákvörðun yfirskattanefndar má skjóta lil ríkisskattanefndar, sem
fellir fullnaðarúrskurð í málinu.
Aldurshækkanir koma jafnt á 6 árum, nema hjá starfsmönnum
þeim, sem taldir eru í 3. lið 15. gr., 2. og 4. lið 16. gr. og 7. lið 29.
gr., þeir fá sínar aldurshækkanir á 4 árum. (Smbr. 2. gr.)
II.
Með samþykkt þessara laga hafa verið gerðar verulegar
bætur á launum barnakennara. Þetta er í fyrsta sinn, sem
þeim er ætlað að hafa sæmileg laun. Ber að þakka bæði
einstökum mönnum og stjórnmálaflokkum, er að þessum
breytingum hafa unnið, og skal það ekki nánar tilgreint
hér, en ekki er þó þar sömu sögu um alla að segja. Minn-
ast má þess sérstaklega, hve góðan þátt Samband ís-
lenzkra barnakennara og Bandalag starfsmanna ríkis 0g
bæja hefur átt í framgangi málsins. Þá er og skylt að
þakka milliþinganefndinni, sem í upphafi málsins skipaði
kennurum á þann stað í launastiganum, sem verður eftir
atvikum að teljast viðunandi. Og er þó ekki hærra risið
en svo, að barnakennarar eru flestir í 9. og 10. launa-
flokki, en alls eru flokkarnir 16. Af starfsmönnum, sem
einnig eru í þeim flokkum, má nefna bókara í ýmsum opin-
berum skrifstofum, tollverði, lögregluþjóna, símritara og
póstafgreiðslumenn í Reykjavík.
III.
Alþingi gerði allmargar breytingar á upphaflega frum-
varpinu. Flestallar miða þær til hækkunar launa, einkum
þeirra launa, er hæst voru ætluð áður. Lækkanir áttu sér
svo að segja engar stað nema á launum kennara. Getur
ekki hjá því farið, að slíkt veki eftirtekt og reyndar