Menntamál - 01.08.1971, Síða 5
FORSKOLINN
Valborg Sigurðardóttir, skólastjóri:
Þáttur
leikskóla-
starfseminnar
í sex ára
deildum
barnaskólanna
♦
I. Almennur þroski sex ára barna
Til þess að unnt sé að gera sér grein í'yrir
hvers konar uppeldislega starfsemi eigi að byggja
upp fyrir börn í (5 ára deildum barnaskólanna, er
nauðsynlegt að gera sér nokkra grein fyrir þessu
þroskaskeiði frá sálfræðilegu sjónarmiði. Þróunar-
ferill barnsins er ekki bein braut, heldur markast
á lionum mismunandi skeið, jafnvægisskeið og
misvægis- eða umrótaskeið á víxl. 1'il dæmis eru
5 ára aldurinn og 7 ára aldurinn dæntigerð jafn-
vægisskeið, en 6 ára aldurinn (nánar tiltekið
u. þ. b. 51/2—61/2) umrótaskeið. Misvægis- og um-
rótaskeiðin einkennast af spennu, öryggisleysi og
margvíslegum hegðunarvandkvæðum, sem orsak-
ast af auknu geðnæmi barnsins og aukast við of
mikið álag í uppeldinu og rangar kröfur til getu
barnsins og framkomu. Það er ekki tilviljun, að
bijrn í 6 ára aldursflokknum þykja oft erfið, fyr-
irferðarmikil og ergileg. Börnin ganga í gegnum
örar þroskabreytingar, bæði andlega og líkam-
lega. Þessu þroskaskeiði er oft líkt við gelgju-
skeiðið, og nreð miklunr rétti. Á nokkrum mán-
uðum tekur smábarnslíkaminn á sig form skóla-
barnsins. Börnin verða oft rengluleg og klaufaleg.
Það er þó nokkuð átak að læra á þennan nýja lík-
anra og stjórna honunr. Af því stafar lrinn nrikli
hreyfiórói. Börnin geta helzt aldrei verið kyrr.
Efnafar líkamans tekur hárfínum breytingunr,
senr nr. a. kenrur franr í auknu nænri fyrir snrit-
andi sjúkdómum. Mikilvægar Jrroskabreytingar
fara einnig franr, senr lrafa áhrif á augti barnsins
og sjón og reyndar á allt hreyfi- og taugakerfið,
nreð þeim afleiðingum m. a., að samhæfing augna
og handa er ekki eins góð og áður.
menntamAl
111