Menntamál


Menntamál - 01.08.1971, Qupperneq 9

Menntamál - 01.08.1971, Qupperneq 9
ins, en það fullnægir engan veginn eðlilegri sköp- unarþörf þess og veitir því enga tilfinningalega útrás. Slíkt föndur ætti því ekki að leggja fyrir börn. Frœðsla og kynnisferðir. Fróðleiksfýsn 6 ára barna er við brugðið. Þau þurfa að fá henni fullnægt í ríkum mæli, og hæfir bezt að gera það fyrst og fremst með því að auðga reynslu þeirra á raunhæfan hátt og með því að auðga umhverfi þeirra á skipulegan hátt, þannig að þau drekki í sig fróðleik af eðli- legum áhuga, hvert eftir sinni getu og þroska. J leikstofunni geta verið alls konar hlutir, sem vekja áliuga barnanna og gefa tilefni til fræðslu. Hér má nefna hvers kyns smáhluti úr náttúrunni, eins og skeljar og kufunga, blóm, lifandi eða Jmrrkuð, hraun eða fallega steina, svo að fátt eitt sé nefnt. Að sjálfsögðu ntá einnig hafa alls kon- ar myndir af hlutum, mönnum og dýrum. Er Jtetta upphaf að átthagafræðikennslu. Annar mik- ilvægur liður í að auðga reynslu barnanna eru heimsóknir á söfn, gönguferðir niður að höfn eða niður í fjöru, ferð í bæinn til Jtess að kynnast umferðinni og umferðarreglum á raunhæfan hátt, og loks má nefna heimsókn á nærliggjandi sveita- bæ, svo að tekin séu dæmi, sem henta fyrir Reyk- víkinga. Út frá slíkum ferðalögum og heimsókn- um eru síðan byggð upp verkefni til umræðu og úrvinnslu, sögur lesnar um efnið, vísur sungnar, efnið teiknað, litað eða mótað í leir. Slík fræðslu- verkefni geta og gefið ótal tilclni til hópstarfa, einkum er líður á veturinn. Skemmtilegt dæmi um verkefni af Jtessu tagi sá ég í íorskólabekk í Danmörku („börnehave- klasse“, eins og Danir kalla Jrá). Fóstran hafði rætt við börnin ttm dagblöð og hlulverk Jteirra. Fengu börnin að fara í heimsókn til að kynnast starfsemi dagblaðs nokkurs. Þegar þau komu aft- ur í skólann, var hafi/t handa um blaðaútgáfu. Sumir unnu að fréttasíðu, Jtar sem sagt var m. a. frá eldsvoða og bílaárekstrum, aðrir unnu að íjjróttasíðu með fjolbreyttum „frásögnum" af alls konar afrekum, og loks komu stórkostlegar tízku- fréttir. Fréttirnar voru að sjálfsögðu ekki skrif- aðar, Jjví að börnin kunnu ekki að skrifa. Fn teikningin er eðlilegur tjáningarháttur barna á Jjessum aldri. Víða örlaði Jjó á prentstöfum og jafnvel heilum orðum. Stundum gátu Jjau ekki tjáð með myndinni nákvæmlega Jtað, sem Jtau vildu segja. Þau Jmrftu á orðum að halda til frek- ari skýringar. Skriftin er framhald teikningarinn- ar. Hér var skapaður eðlilegur grundvöllur til að vilja og langa til að stafa og skrifa og skilja tilgang skriftarinnar sem tjáningarháttar. Þar sem börnin hafa frjálsan aðgang að pappír og litum byrja Jiau snemma að tjá hugsanir sínar og tilfinningar I teikningum sínum. Smám saman líður að því, að Jtau komast að raun um, að þau geta ekki tjáð alla sína hugsun nógu nákvæmlega á þann hátt og að Jjau Jjarfnast orða til að full- komna myndina. Þá koma spurningar um hvern- ig eigi að skrifa hitt og Jjetta. Hér er komið gullið tækifæri (il að leiða barnið inn á Jjessa nýju námsbraut á þann hátt, sem barninu er skiljanlegur og eðlilegur. Skemmtilegt dæmi um Jjelta er um dreng, sem var að ljúka við að mála stóra mynd af manni. Hann horfði dálitla stund á myndina, óánægður á svip, og spurði síðan: „Hvernig skrifarðu: Þetta er pabbi minn?“ Fóstr- an skrifaði orðin upp á töfluna. Drengurinn mál- aði orðin undir myndina, og ánægjubros lék um varir lians. Þetta var Jjað, sem hann vildi segja með myndinni. Hugmynd hans var nú komin skýrlega fram á blaðið. Nú var augljóst, að mynd- in átti að vera af pabba hans. Efling málþroska: samrceðustundir — sögur, livceði, þulur, leikbrúður. Það er gamall og góður siður að segja börnum sögur og fara með vísur og Jjulur. Þannig hefur um aldaraðir eldri kynslóðin flutt Jieini yngri Jiann fróðleik, sem lnín átti í fórum sínum. A Jjann hátt lærðu börnin málið, kjarnbetra og orð- fleira en clla. Hætt er við, að minni rækt sé lögð við Jjessa merkilegu uppeldishefð á íslenzku en áður tíðkaðist, og ber að harma Jiað. í forskóla- bekk Jiarí að leggja mikla alúð við hið lifandi og talaða orð, Jjví að á því byggjast öll mannleg sam- skipti og félagsleg tengsl. Það er kunnara en frá MENNTAMÁL 115

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.