Menntamál


Menntamál - 01.08.1971, Síða 10

Menntamál - 01.08.1971, Síða 10
þurfi að segja, að fjöldi barna kemur á skóla- skyldualdri í barnaskólana óeðlilega illa talandi. Orða- og hugtakaforði þeirra er takmarkaður og skilningur þeirra á móðurmálinu sorglega lítill. Háir þetta þeim að sjálfsögðu við lestrarnám. Þessi börn eru meira eða minna andlega vanrækt og njóta sín oft aidrei við skólanám vegna þessa. Ekki sízt þessum vanræktu börnum getur leik- skólastarfsemin orðið aflgjafi. Áður en skynsamlegt er að liefja lestrarkennslu, er nauðsynlegt að efla málþroska barnanna, fræða þau og auðga þekkingu þeirra með fjölbreyttri reynslu á ýmsum sviðum, eins og vikið var að hér að framan. Börnin þurfa að hafa raunhæfan skilning á því sem þau lesa. í eðlilegum samskiptum sínum við börnin í hinu frjálsa sniði ieikskólastarfs gefast fóstrunni ótal tækifæri til að tala við börnin og láta þau tjá sig frjálslega. Með því að lesa íyrir þau og segja þeim sögur, eykst orðaforði þeirra og orð- skilningur, og þau læra að hlusta og einbeita sér. Þá er ekki síður nauðsynlegt að gefa börn- unum færi á að tjá sig í töluðu orði, hispurslaust og frjálslega, t. d. með því að örva þau til að segja sjálf sögur, láta handbrúður leika og tala, eða segja frá einhverjum hlut, sem þau koma með að heiman o. s. frv. Eflir þetta einnig sjálfs- traust þeirra. Vinna þarf marlwisst að því að efla málþroska barnanna og sjá um, að öll börnin öðl- ist nægjanlega reynslu í þessum efnum. í leik- skólum og forskólabekkjum, sem ég hef kynnzt á Norðurlöndum, er þessi þáttur skipulagður í svokölluðum samveru- eða sa?níycð'ifstu ndum. í forskólabekk geta jressar stundir verið í hálftíma eða jafnvef lengur, en þess ber að minnast, að hreyfiþörf 6 ára barnanna er geysimikil, svo að sumum börnum reynist þetta of löng kyrrseta, einkum til að byrja með. Verður því að gæta sveigjanleika í þessu efni. Sögur og margvísleg fræðsla er uppistaðan í samræðustundunum. Börnin sitja öll í hálfhring á stólunum sínum eða litlum sessum. Þetta eru miklar ánægjustund- ir. Oft er sá háttur hafður á, að hringt er lítilli bjöllu til þessarar stundar. Það er „skólinn", sem kallar. Mikill bókakostur er nauðsynlegur bæði fyrir fóstruna og börnin. Bækurnar eiga að vera í sjálfri skólastofunni. Börnin þurfa að eiga frjálsan að- gang að Jseim. Þó er sjálfsagt að varðveita sumar dýrmætar bækur sérstaklega. Börnin Jmrfa að fá góðan tíma og aðstöðu til að velja sér bækur til að skoða eða til að láta lesa fyrir síg. En vanda ber val bókanna og gæta Jress vel, að Jrær séu við hæfi barnanna að efni og formi. Forvitnilegar og fallegar bækur, fróðlegar og skemmtilegar, eru börnunum mikil hvatning til leslrarnáms. Mörg börn eru óvön að umgangast bækur og vænta sér einskis góðs af Jieim. Dýrmætur undirbúningur undir lestrarnám er Jm að kynna börnunum bók- ina og vekja áhuga þeirra á J)eim heimi, sem hún getur opnað. Á sama hátt og nauðsynlegt er að leggja grund- v<)ll að formlegri lestrarkennslu, þarf að treysta grundvöll að reikningskennslunni, áður en hún er tímabær sem slík. Börnin þurfa að öðlast marg- víslega reynslu, sem kemur J)eim í kynni við J)ær staðreyndir, sem tölur og mengi fjalla um — hið raunverulega gildi Jreirra. Stærðfræði er sérstakt tungumál til J)ess að láta í ljós viss sannindi með J)ví að nota ákveðin orð og tákn. Þessi sannindi Jturfa börnin að J)ekkja áður en J)au fara að nota tákn og orð í reikningslistinni, ef J)au eiga að skilja, hvað þau eru að gera. Ekki er nauðsynlegt að byrja á því að finna velútlmgsuð leikföng eða kennsluáhöld eins og talnagrindur og kortasamstæður með punktum og deplum, J)ótt J)au geti verið til styrkt- ar. Fyrir börnunum eru Jretta ekki raunverulegir hlutir. Barnið á að meðhöndla raunverulega hluti og skilja talnaheitin á grundvelli þeirra. Þau telja litina sína, kubbana, sem þau eru að byggja úr, hve mörg J)au eru í skólanum í dag, hve mörg í bláum peysum, livort telpurnar eru fleiri í dag en drengirnir o. s. frv. í samveru- stundinni eru ótal tækifæri til þess að kynna þeim tölur og mengi á eðlilegan hátt í samtölum og einföldum leik. Klukkan og daga- og mánaðaheiti geta verið umræðuefni á hverjum degi, J)egar rifið er daga- tal af almanákinu. Auk Jress gefast tækifæri í hinum frjálsa leik til Jress að kynnast gildi taln- anna, t. d. með J)ví að leyfa börnunum að liafa MENNTAMÁL 116

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.