Menntamál - 01.08.1971, Qupperneq 12
Sigríður Soffía Sandholt, kennari:
Kennsla
sex ára
barna
í Isaksskóla
Mikið hefur verið rætt og ritað að undanförnu
um skólagöngu 6 ára barna. Óhætt er að segja, að
sitt hefur sýnzt hverjum. Flestir virðast þó líta
á kennslu 6 ára barna sem algjöra nýjung í ís-
lenzkum skólamálum. Svo er þó ekki, því Skóli
ísaks Jónssonar hefur nú að baki 45 ára starf við
kennslu Jjessa aldursflokks.
ísak Jónsson, skólastjóri, stofnaði smábarna-
skóla sinn árið 1926. Hafði hann áður kynnt sér
smábarnakennslu á Norðurlöndum. Sérstaklega
mun fyrirkomulag sænskra skóla hafa verið fyrir-
myndin. ísak Jónsson varð fyrstur tii að nota
hérlendis svokallaða hljóðaaðferð við lestrar-
kennslu, en hana lærði hann í Svíþjóð. Mun það
hafa verið a. m. k. álíka stökk að sínu leyti og
nýja stærðfræðin er í dag. Enda heyrisl enn talað
um „nýju aðferðina" í lestrarkennslu. Ef til vill
munum við líka tala um „nýju stærðfræðina" sem
nýjung frarn yfir árið 2000.
Árið 1946 var skólinn gerður að sjálfseignar-
stofnun, og í skipulagsskrá hans segir svo í 1.
kafla, 2. gr.:
„Markmið skólans er:
a) Að bæta úr brýnni jrörf á skóla l'yrir börn á
aldrinum 5 og 6 ára.
b) Að leita að heppilegum leiðum í kennslu
fyrir byrjendur í lestri, reikningi, skrift og
átthagafræði."
I.ið a) er ójrarft að ræða hér, en nokkur orð
verða hér lilfærð um lið b). Síðastliðin 45 ár hafa
verið stöðug leil að betri leiðum í byrjenda-
kennslu innan skólans. Einhver mikilvægasti lið-
ur Jjessarar leilar heíur verið samstarf kennar-
anna, áhugi Jreirra og hvernig Jteir hafa miðlað
liver öðrum af reynslu sinni.
Átthagafræðin er einn mikilvægasti liðurinn í
byrjendakennslunni. Hún miðar að J>ví, eins og
reyndar flest kennsla, að „ .. . rækta félagsjtroska
barnanna, temja J>eim heilbrigðar umgengnis- og
starfsvenjur, auka almenna reynslu J>eirra, skerpa
athyglina og efla einbeitingu og úthald, ennírem-
ur að glæða skynjun Jteirra, bæta hreyfifærnina,
rækta málfarið, auka orðal’orðann og kenna J>eim
að tjá sig skilmerkilega“ o. s. frv. (Tilvitnun
tekin úr forystugrein Vísis, 15. sept. '71 um for-
♦---------
MENNTAMÁL
118