Menntamál - 01.08.1971, Blaðsíða 17
♦-------------------♦
Þorsteinn Sigurðsson:
Útdráttur úr
skýrslu
um starf
forskóladeilda
Barnaskóla
Reykjavíkur
skólaárið
1970-1971
I>ann 2. desember 1969 var samþykkt í Borgar-
stjórn Reykjavíkur að efna til kennslu 6 ára
barna haustið 1970. Að fengnum nauðsynlegum
heimildum menntamálaráðuneytisins hóf fræðslu-
stjórinn í Reykjavík að undirbúa starfsemina,
og var m. a. s'ett niður nefnd skólamanna til að
lniga að námsefni og framkvæmd kennslunnar.
Ákveðið var að ráða kennara til starfsins og
undirbúa þá á mánaðarnámskeiði, áður en
kennsla liæfist.
I hina 12 almennu barnaskóla borgarinnar
innrituðust 1255 börn í 60 deildir (meðaltal 20,9),
en auk þess 271 barn í tvo viðurkennda einka-
skóla og Æfingaskóla Kennaraskóla íslands, og
var jaað samanlagt u. þ. b. 95% af 6 ára börnum
í borginni.
Skólastjórar barnaskólanna 12 völdu 35 kenn-
ara til að k'enna í forskóladeildum. Þessir kenn-
arar — auk nokkurra kennara úr öðrum skóla-
héruðum og allmargra fóstra — sóttu námskeið
í septembermánuði, sem undirbúið var af
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur og skólarann-
sóknadeild menntamálaráðuneytisins.
Námsgreinar voru: barnasálfræði, Dynamic
Readiness hugtakið, söfnun Readiness upplýs-
inga, barnobservation, samvinna við for'eldra og
sérfræðinga, uppeldisfræðilegir starfshættir, fönd-
ur, myndlist og mótun (fortning), hljómlist,
rytmik, dramatisering, k'erfisbundnar foræfingar,
átthagafræði- og lestrarkennsla byrjenda — sam-
tals 130 kennslustundir.
í sambandi við námskeiðið var komið upp
sýningu á búnaði og kennslugögnum í forskóla-
deild.
í flestum skólanna voru venjulegar kennslu-
stofur notaðar til k'ennslunnar, en í fjórum skól-
um var gerð tilraun með stærra húsnæði, og
voru nemendahóparnir þá stærri og tveir kenn-
arar saman við kennsluna. í einum skólanna
var notaður 214 m2 salur, og voru þar þrír kenn-
arar samtímis við störf með 60—65 nemendum.
Nokkrar breytingar voru sums staðar gerðar
á húsnæðinu og allar stofurnar búnar viðeigandi
húsgögnum og öðrum búnaði.
Kennarar forskólad'eildanna vörðu 2—3 dög-
um í októberbyrjun til að prýða stofurnar og
koma fyrir kennslugögnum.
Jalnskjóitt og keinnsluhúsnæðið var tilbúið
hófu kennararnir að taka á móti börnunum.
Stofnað var til kynna við börnin eitt og eitt í
einu og aílað upplýsinga um þau með einkavið-
tölum við foreldrana. Jafnframt var foreldrun-
um gerð grein fyrir markmiði og tilhögun starfs-
ins.
Markmið forskóladeildanna var skilgreint á
J)á lund, að tilgangurinn væri fyrst og fremst sá
MENNTAMÁL
123