Menntamál - 01.08.1971, Page 20
♦------------------------------------♦
Andri ísaksson:
„Sesams-
stræti"
Athyglisverð tilraun
með skólasjónvarp
í Bandaríkjunum
4------------------------------------4.
MENNTAMÁL
126
l>að er tilgáta margra, að skólasjónvarp gæti
liaít geysilega mikil áhril' á nám barna, el' vel
væri notað. Hitt má heita merkilegt, hversu lítið
hefur lrétzt um, að hinar stóru og ríku þjóðir
hafi gert og dreift sjónvarpskennsluefni, senr at-
liygli lrefur vakið og gefizt vel. í þessari grein
er ætlunin að ræða lítillega um sjónvarpskennslu,
sem hófst í Bandaríkjunum haustið 1969 og er
af mörgum talin munu valda þáttaskilum í þess-
um efnum.
Sá flokkur kennslusjónvarpsþátta, sem hér um
ræðir, var nefndur „Sesame Street“ eða „Sesams-
stræti“, og var meginmarkmiðið með þáttunum
að „opna“ þriggja til fimm ára börnum ýmisl'egt,
sem talið er ákvarðandi um gengi þeirra í skóla-
námi síðar. Einkum var lögð áherzla á það að
hjálpa afskiptum börnum, þ. á m. börnum í
fátækrahverfum og í afskekktum, snauðum sveit-
um, að jafna metin við önnur börn varðandi
skólaþroska.
Meðal sérstakra kennslumarkmiða þáttanna
má nefna það, að reynt var að kenna börnunum
að þekkja stóra og litla stafi og stalrófið, að
þekkja tölur og t'elja upp að ](), að þekkja hug-
tök, sem eiga við magn, stærð, stöðu og fjarlægð;
enn fremur var reynt að glæða hæfileikann til að
flokka hluti eltir stærð, formi, fjölda og nota-
gildi, og loks var börnunum kennt að leysa
ýmsar einfaldar þrautir.
Ekki var spáð vel fyrir Sesamsstræti í byrjun,
eins og bezt sést á því, að engin af stóru sjón-
varpsstöðvunum (ABC, CBS, NBC) vildi sýna
þættina. Samt var unnt að l'eggja af stað, þar
senr allgóðir styrkir höfðu fengizt til að undir-
búa verkið, og reyndin varð sú, að þættir þessir
náðu á stuttum tíma gífurlegri útbreiðslu í
Bandaríkjunum og er talið, að þennan fyrsta
vetur hafi 7 milljónir barna á þriggja til fimnr
ára aldri horft reglulega eða óreglulega á þætt-
ina, þ. e. yfir h'elmingur þeirra aldursflokka,
sem þættirnir voru ætlaðir. Það fór líka svo, að
eftir veturinn vildu allar stóru sjónvarpsstöðv-
arnar fá þáttinn, og allar munu þær hafa endur-
skoðað stefnu sína í sjónvarpsmálum barna að
fenginni reynslunni af Sesamsstræti.
Hvað var þá Sesamsstræti? Sesamsstræti var