Menntamál


Menntamál - 01.08.1971, Qupperneq 22

Menntamál - 01.08.1971, Qupperneq 22
að börnin urðu fljótt l'eið á löngum atriðum, og var sú stefna tekin, að hafa ekkert atriði lengra en 6 mínútur. c) Að hafa þættina fyndna og skemmtilega. Ótrúlega margt kátlegt gerist í þessum þáttum, og skemmta börnin sér konunglega yfir ýmsum atriðum. Sem dærni má nefna, 'er brúðan Ernie, hrekkjalómurinn, laumar upp í sig 15. kökunni, sem áður var nefnd, til þess að unnt sé að skipta kökuhópnum í tvo jafna hluta. d) í þáttunum kemur frant ýmislegt, sem ætlað er að draga úr minnimáttarkennd barna gagn- vart fullorðnum. Ein brúðan í þáttunum er „Stóri fugl“ (Big Bird), liðlega tveggja metra hár hrakfallabálkur, sem síí'ellt er að reka sig á staðreyndir lífsins og velta fyrir sér, hversu erfitt er að sigla þar slysalaust í gegn. Sömuleiðis komu stöku sinnum gestir í þáttinn, kumpánarnir Buddy og Jim, en þeir voru sambýlismenn, sem gekk afar misjafnlega að leysa hin 'einföldustu verkefni á heimili sínu, t. d. reyndist þeim eink- ar erfitt að koma planka inn í íbúðina vegna þess að hann haf'ði í upphafi lent þversum á dyrnar hjá þeim. Það var svo eítir Veturinn 1969—1970, eí þriggja til fimm ára barn — já meira að segja yngri og eldri börn líka — hitti annað barn, jafnvel af annarri stétt og frá allt öðrum hluta Bandaríkjanna, þá var mjög venjuleg spurning þessi: „Hefur þú horft á Sesamsstræti?" Að lokn- um jiessutn formála voru ekki vandræði með að rifja upp sameiginlegar endurminningar. Stundum var likt 'eftir ýmsu, sem gerzt hafði í þáttunum, einkum því, sem brúðurnar höfðu gert. Börnin samsömuðu sig brúðunum ótrúlega vel, ekki sízt vegna jress að jtær voru lyndnar og gerðu grín að mörgu, sem börnunum leidd- ist. Urðu oft æði langar umræður tinr það, bvern- ig þetta eða hitt hefði nákvæmlega æxlazt í við- komandi þætti. - Greinarhöfundur var nárns- maður í Bandaríkjunum þennan vetur og minn- ist þess vel, hversu mikið sjónvarpsþættir þessir hjálpuðu börnum hans, tveggja og fjögurra ára, til að þreyja þarna þorrann, en yngra barnið komst aldrei í leikskóla, og eldra barnið þráði meira en í leikskólanum var hægt að veita. Hinn 4. nóvember 1970 gaf Educational Test- ing Service, bandarísk stofnun, sem fæst við námsmat og prófagerð, út skýrslu um árangur af 1. ári Sesamsstrætis. Niðurstöðurnar, sent byggð- ar voru á svörum 943ja barna frá ljórum ólíkum ríkjum Bandaríkjanna við 203 spurningum, sem lagðar voru fyrir börnin bæði áður en Sesanis- stræti byrjaði og eins eftir að því lauk, urðu í stórum dráttum sem hér segir: 1. ÖIl börn lærðu mikið á þáttunum, og því meira sem þau horfðu á jrá, því meira lærðu þau. 2. Þriggja ára börn lærðu hlutfallsl'ega meira en eldri börn, jafnvel þótt þátturinn væri í upp- hafinu ætlaður fyrir alla aldursflokkana þriggja til fimm ára. Þetta virðist styðja þá kenningu, sem sálfræðingar á borð við Je- rome Bruner í Harvardháskóla og Benjamin Bloom í Chicagoháskóla hafa varpað fram, að mjög ung börn gætu lært mun meira en venjan hefur verið að ætla þeira. 3. Niðurstöðurnar virtust benda til þ'ess, að þriggja ára börn, sem læra um form og liljóð bókstafa — án nokkurs þrýstings um, að J:>au læri að lesa eða skrifa — muni u. jx b. einu eða tveimur árum síðar sjálfkrafa yfirfæra Jjá Jjekkingu yfir í leikni í jrví t. d. að jrekkja orð, sem samansett 'eru úr Jiessiim stöfum og hljóðum. 4. Uppeldislega vanrækt börn, börn úr fátækra- hverfum og börn blámanna og annarra minnihlutahópa, sem horfðu reglulega á Se- samsstræti, tóku meiri framförum en mið- stéttabörn, sem horfðu óreglulega á jDættina. Er Jietta óefað mikilvægasta og gl'eðilegasta niðurstaðan, sbr. meginmarkmið þáttanna. I ljósi þeirra upplýsinga, sem fengust við að fylgjast með árangri kennslunnar og meta gildi hennar, voru gerðar ýmsar breytingar á þáttun- um, og skulu hér fáeinar nefndar. Breytingarnar komu til í bandarísku sjónvarpi veturinn 1970— 71, annan vetur Sesamsstrætis, en Jrá var 145 nýjum eða breyttum klukkutíma löngum Jrátt- um sjónvarpað af hvorki meira né minna en 250 sjónvarpsstöðvum: MENNTAMÁL 128

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.