Menntamál


Menntamál - 01.08.1971, Blaðsíða 23

Menntamál - 01.08.1971, Blaðsíða 23
Ernie, hinn óforbetranlegi en góöhjartaði prakkari er lengst til vinstri. Hjónin Gordon og Susan eru til hægri. 1. Lögð var meiri áherzla á að kenna rétt hljóð stafa. 2. Kenndar vorn tölurnar upp að 20, en reynsl- an hafði sýnt, að börnin voru betur á vegi stödd varðandi tölur en talið hafði verið. 3. Reynt var að láta þáttinn hæfa betur minni- lilutahópum, t. d. spænskumælandi börnum, en hann hafði gert upphaflega. 4. Þá má geta þess, að frú Joan Ganz Cooney, forstöðukona þeirrar stofnunar, sem gert hef- ur Sesamsstræti, tilkynnti í fyrrahaust, að nú í haust ætlaði stofnunin að senda frá sér í tilraunaskyni daglegan þátt, hálftíma að lengd, sem ætlað er að auðvelda 7—10 ára börnum lestrarnám. Mun sá þáttur lrefja giingu sina hinn 25. október 1971. Það kom víst öllum á óvart, hve mikið banda- rísk börn lærðu á Sesamsstræti. Enginn vafi er á því, að þarlendir barnaskólar verða að laga sig að þeirri auknu þekkingu, sem fjöldamörg börn koma nú með sem veganesti í skólann fyrir tilverknað þáttarins, annars er hætta á því, að 6 ára börnin geti orðið „gífurlega leið“ á skóla- náminu, eins og próiessor Staten Webster í Berkeleyháskóla spáði í fyrra. En árangur Se- samsstrætis hlýtur að vera skólunum gleðiefni: hann bendir til þess, að skólarnir gætu fært sig MENNTAMÁL 129

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.