Menntamál


Menntamál - 01.08.1971, Side 25

Menntamál - 01.08.1971, Side 25
Högni Egilsson: Hugleiðingar um forskóla- kennslu Umræður um forskólaaldurinn minna mig æði oft óþyrmilega á manninn, sem sagði: „Ég er alltaf reiðubúinn til að skipta um skoðun, en mér þætti gaman að sjá þann mann, sem gæti fengið mig til þess!“ Fólk skiptist viljugt í tvenn- ar herbúðir — þær sem senda út dagskipanina: „Barnið skal leika sér!“ og hinar, þar sem dag- skipanin hljóðar: „Barnið skal læra!“ Þegar æskt er skilgreiningar á hugtökunum leikur og nám, kemur oft í ljós, að gunnfánarnir eru æði tjásulegir og ekki líklegir lil að vekja varanlegt traust. Þetta santa fólk leiðist gjarna út í að lala um það, sem það lítur á sem ósættanlegar andstæður, annars vegar leikskóla (eða dagheimili) og hins vegar barnaskóla. Báðir hóparnir hafa, þegar be/.t lætur, á tak- teinum niðurstöður virðulegra rannsókna (gerðra í útlandinu), sem sanna skulu þeirra mál. Það verður því miður að segjast, að oft reynast rök beggja hópa haldlítil, jafnvel þó rannsóknir séti bornar fyrir þeim. Ástæðurnar eru fjölmargar. Neína máj a) að rannsóknir þær, sem gerðar hafa verið varðandi forskólastigið, sýna afar mismun- andi niðurstöður, niðurstöður, sem stang- ast á o. s. frv.; b) að altækni rannsóknarniðurstaðna er því miður mjög oft aðeins til á pappírnum og fáránlegt að ætla sér að yfirfæra niðurstöður frá einum aðstæðum til annarra á þann liátt, sem oft er gert; c) að gæði rannsókna, vísindalega séð, svo og túlkun þeirra, spannar allt frá því versta til hins be/ta og sérþjálfun er nauðsynleg til að velja og hafna svo mark sé á takandi. Goðsögnin um hlutlægni rannsóknaraðferða og rannsakenda á ítök í okkur öllum. Það er oft freistandi að líta svo á, að við höfum yfir að ráða aðferðum til rnats — einnig á mannlegu at- ferli — sem geri okkur kleift að standa sjálf utan við það, sem rannsakað er, þar sem við getum verið hlutlaus og látið okkur nægja að taka við niðurstöðum, sem segja: „Sjá, vísindin hafa sann- að. . MENNTAMÁL 131

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.