Menntamál


Menntamál - 01.08.1971, Qupperneq 26

Menntamál - 01.08.1971, Qupperneq 26
Hér er engan veginn ætlunin að taka upp til umræðu rannsóknaraðferðir, möguleika þeirra og takmarkanir, né heldur að rekja að neinu niður- stöður þær varðandi forskólaaldurinn, sem gætu orðið til að styrkja trú „á málstaðinn" — hver svo sem hann er — eða veikja hana. En á bak- grunni þess, sem sagt hefur verið, leyfi ég mér að skrá stóru letri: AFSTAÐA OKKAR TIL ÞESSA MÁLS, SEM OG YFIRLEITT TIL ALLS ÞESS, SEM VARÐAR MANNLEG SAMSKIPTI, MANNLEGT ATFERLI OG MANNLEGA ÞRÓUN, MÓTAST FYRST OG FREMST AF TRÚ OKKAR Á ÞAÐ, SEM VIÐ TELJUM MIKILVÆGT, RÉl’T OG SATT - ÞAÐ, SEM ÆTTI AÐ VERA. Við notum ef til vill orð eins og rannsóknir og vísindi sem hækju til stuðnings í missterkri trú okkar, af því að a) við misskiljunt getu vísindanna til að segja fyrir um lausn mannlegra vandamála; b) við viljum slá í kringum okkur með orðum, sem vekja trú annarra á því, sem við segjum, trú, sem byggist \rÁ oftast á vanmætti til að fylgja röksemdafærslum, til að gagnrýna o. s. frv.; c) við leitum þeirra beztu raka, sem unnt er, til að styðja málstaðinn, í gegnum athugun (misnákvæma) á verkum þeirra manna, sem af einlægni (mistrúverðugri) hafa reynt að leita svara við hinum ntikilvægu spurning- um um þróun mannsins: Plvernig þróast maðurinn? Hvað ákvarðar þróunarsögu hans? Hvaða ráð höfum við til að hafa áhrif á þróunarsögu einstaklings og/eða hóps? En jafnvel eftir að við höfum gaumgæft það, sem vísindin hafa að segja okkur um þessar spurningar og aðrar þeim líkar, er okkar lokaorð oftast: „Svona ætti þetta að vera, finnst mér.“ Að líkindum er óhætt að halda því fram, í framhaldi af því, sem hér hefur verið sagt, að eitt af því, sem er að baki Jiessara lokaorða hjá svo til öllum, sem reyna að móta sér skoðun á því, hvernig vinna skuli að uppeldi barnsins inn- an hins venjulega barnaskólaaldurs, er trúin á MENNTAMÁL 132 það, að hlutverk uppalandans — umsjármannsins (eða konunnar), hvort heldur er foreldris, fóstru eða annars aðila — sé að „leiða“ barnið þá þroska- leið, sem því framast er fært að ganga, og á þann hátt, sem því hentar. Sé svo, rekumst við samt strax á dagskipanirnar tvær: leikur — nám, með tilheyrandi tannagnístran, og sagt verður: „Ég trúi því, að barnið þurfi að fá að leika sér sem lengst og að það, a. m. k. til sex, sjö ára aldurs, eigi ekki að komast í kast við skipulagt námsefni af því lagi, sem skólarnir bjóða upp á, það sé þroska þess óheppilegt,“ eða „Ég trúi því, að barnið þurfi sem fyrst að komast í snertingu við skipulagt námsefni, nám og kennslu, vegna þess, að þann veg nýtir barnið bezt þroskamöguleika sína og verður bezt undirbúið undir framtíðina." Þegar við heyrum þessar röksemdir, hljóta ýms- ar spurningar að vakna, m. a.: a) Höfum við hér tvö ósættanleg sjónarmið? b) Erum við ef til vill frekar að lýsa yfir trú okkar á það sama með mjög mismunandi orðavali? c) Erum við að lýsa yfir vantrú eða oftrú á starfi barnaskólanna? d) Hvað eigum við við með orðunum „skipu- lagt námsefni", „nám“ og „kennsla"? Er það algjör andstæða þess, sem við myndum kalla skipulagðan leik? e) Er það ef til vill orðið „skipulagt", sem við hræðumst eða fögnum? f) Hvort erum við að tala um hópinn eða ein- staklinginn, þegar við segjum „barnið'? g) Á hverju byggjum við trú okkar á hvort sem er hinna tveggja svara? 1) Rannsóknum? Hve mikilvægum, hve við- eigandi, hvernig túlkuðum o. s. frv.? 2) Reynslu? Hve víðtækri, live viðeigandi, hve hlutlaust túlkaðri o. s. frv.? 3) Tilfinningalegum forsendum? Vegna at- vinnu okkar, vegna kynna af „atvinnu- mönnum“, vegna einstakra atvikao. s. frv.? Ef til vill væri það báðum herbúðum hollt að mætast og íæða — í einlægni og án allt of áber- andi fordóma — raunverulega vitneskju, forsend- ur vantrúar og oftrúar, spurningar líkar þeim,

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.