Menntamál


Menntamál - 01.08.1971, Side 28

Menntamál - 01.08.1971, Side 28
Inngangur Þorsteinn Vilhjálmsson, eðlisfræðingur: Þankar um markmið skóla- sta rf s MENNTAMÁL 134 Þótt ég gerist svo djarfur að leggja orð í belg um skólamál, tel ég mig engan sérfræð- ing á því sviði. Þessir þankar eru því engin tilraun til heildarúttektar á skólamálum þjóð- arinnar, heldur aðeins umræða um nokkur at- riði sem tengjast persónulegri reynslu minni. Umræðan beinist einkum að innri einkennum skólakerfisins, svo sem námsefni, kennsluhátt- um og tilgangi kennslunnar, en síður að ytri ramma þess. Reynsla mín af íslenzku skóla- kerfi er fengin með námi til stúdentsprófs fyrir 11 árum og kennslu við menntaskóla og háskóla síðastliðin tvö ár. Með þessari kennslu hef ég kynnzt nokkuð ,,framleiðslu“ skóla- kerfisins eins og hún horfir við frá sjónarmiði kennara sem vill gjarnan að nemendur hugsi sjálfstætt og taki virkan þátt í kennslustund- um. Ef þessir þankar vekja einhverja lesendur til umhugsunar og umræðna, er tilgangi mín- um náð. Ég býst við að margir lesendur séu kunnugri þessum málum en ég. Ef eitthvað skyldi vera missagt er ég að sjálfsögðu reiðu- búinn að hafa það sem sannara reynist. Ég ræði hér á eftir fyrst um fyrrgreinda fram- leiðslu skólakerfisins. Síðan verður fjallað um hlutverk skólanna og kennaranna og að lokum um þátt kennaramenntunarinnar. Hvemig er framleiðslan? Deyfð og feimni eru alltof algengir eiginleik- ar nemenda, sem íslenzkt skólakerfi hefur mót- að. M. a. af þessari ástæðu er erfitt að koma af stað frjálsum umræðum um námsefnið, þar sem kennarinn er aðeins (leiðandi) almennur þátttakandi. Nokkrar samverkandi ástæður fyrir þessum vanda verða raktar hér á eftir. Það er algeng skoðun nemenda að náms- efnið sé lokuð, altæk heild. Það sem er fyrir utan þessa lokuðu heild skipti engu máli. T. d. á ákveðið dæmi, sem er lagt fyrir nemendur,

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.