Menntamál


Menntamál - 01.08.1971, Síða 38

Menntamál - 01.08.1971, Síða 38
var talið, að með þessu móti gæti starfsfólk barnadeild- arinnar komizt betur í samband við barnið og því átt auðveldara með að hjálpa barninu I erfiðleikum þess. Á síðustu árum hefur orðið mikil breyting á þessum við- horfum. Hætta á sýkingum hefur minnkað mjög, og mönnum hefur orðið betur Ijóst mikilvægi þess að rjúfa ekki tengsl barns á sjúkrahúsi og fjölskyldu þess. Víð- ast hvar er tilhneiging í þá átt að lengja heimsóknartíma á barnadeildum svo sem við verður komið. Sums staðar er heimsóknartíminn ótakmarkaður og jafnvel gert ráð fyrir því, að mæður dvelji hjá börnum sínum mestan hluta sólarhringsins. Til þess að þetta sé framkvæman- legt, verður beinlínis að haga byggingu og skipulagn- ingu barnadeildarinnar með slíkt í huga. Hér á landi voru heimsóknartímar á barnadeildum áður fyrr tvisvar í viku, en eru nú ein klukkustund dag- lega. Mun þróunin væntanlega verða svipuð hér og ann- ars staðar, að heimsóknartímar munu lengjast smátt og smátt. Þeir sem verið hafa í heimsókn á barnadeild hafa eflaust orðið varir við grát í lok heimsóknartímans, þegar gestirnir byrja að tínast í burtu. Margir foreldrar eiga erfitt með að þola þessa skilnaðarstund og veigra sér því við að heimsækja barnið. Þetta sjónarmið er ekki rétt og áreiðanlega léttbærara fyrir barnið að gráta smástund í lok heimsóknartímans heldur en að fara alveg á mis við heimsóknir foreldra sinna. Hvað getur starfsfólk barnadeildarinnar gert til þess að dvölin á sjúkrahúsinu verði barninu jákvæð reynsla? Það er framar öllu að veita börnunum hlýju, huggun og hughreystingu þegar þörf er á, eða með öðrum orðum að koma að einhverju leyti í stað foreldranna, sem fjarri eru. Reynt er að koma því svo fyrir, að sama manneskj- an sjái sem mest um sama barnið, því reynslan hefur sýnt að slíkt er happadrýgst. Erfitt er á stundum að fram- fylgja þessu, þar sem sjúklingafjöldi er mikill og starfs- fólk fáliðað. Á flestum barnadeildum eru starfandi fönd- urkennarar eða ,,leikkonur“ eins og börnin segja, og þjóna þær mikilvægu hlutverki, sem er að hafa umsjón með föndri og leikjum barnanna og útdeila verkefnum við hvers hæfi. Leikir eru þýðingarmikill þáttur í lífi barnsins. Þeir veita barninu ekki aðeins skemmtun og afþreyingu heldur getur barnið með leikjum fengið út- rás fyrir hræðslu sína og kvíða. Á barnadeildum eru yfirleitt einnig starfandi almennir kennarar, sem gera eldri börnum kleift að halda að einhverju leyti áfram sínu skólanámi á sjúkrahúsinu. Flest börn eru lík sjálfum sér, þegar heim er komið eftir vel afstaðna dvöl á spítala. Mörg börn, einkum þau eldri, líta á þetta sem skemmtilega tilbreytingu í hvers- dagslífinu og kærkomið tækifæri til að kynnast nýju fólki, börnum og fullorðnum, og nýjum aðstæðum. Ein- staka barn verður fyrir neikvæðum áhrifum af þessari reynslu, og kemur það fram í ýmsum hegðunarvand- kvæðum hjá barninu eftir heimkomuna. Það sem einkum ber á hjá þessum börnum er, að þau sýna hegðun, sem MENNTAMÁL 144 þau eru vaxin upp úr, e* svo má að orði komast — hegðun, sem var þeim eðlileg á fyrra þroskaskeiði. Þau einkenni sem búast má við eru svefntruflanir, reiðiköst, almenn ókyrrð og tíðari árekstrar við systkini. Einnig eru börnin mjög bundin móður sinni, sem þau helzt ekki vilja sleppa úr augsýn sér. Þetta ástand er sem betur fer skammvinnt, en gerir miklar kröfur til foreldr- anna. Það sem fyrst og fremst ræður bót á þessu er ástúð, umhyggja og þolinmæði foreldranna. Niðurstaðan af þessu spjalli verður þessi: Ef barn þitt á að leggjast inn á sjúkrahús, er mikilvægt að búa það undir sjúkrahúsdvölina eftir því sem þroski þess leyfir. Þetta er bezt gert með einföldum útskýringum og sam- ræðum um sjúkrahúsið. Svaraðu spurningum barnsins um sjúkrahúsið af hreinskilni. Reyndu ekki að grípa til ósanninda í því augnamiði að hlífa barninu. Slíkt hefur aðeins það í för með sér, að barnið missir traust á þér, þegar hið sanna kemur í Ijós. Heimsæktu barnið á hverjum degi meðan það er á sjúkrahúsinu. Veikindi sem slík og dvöl á sjúkrahúsi getur orðið einstöku barni óþægileg reynsla og valdið tímabundnum hegðunarörð- ugleikum hjá barninu eftir heimkomuna. En þetta ástand stendur sjaldnast lengur yfir en í nokkrar vikur, og það sem ræður bót á því er einkum ástúð, umhyggja og þolinmæði foreldranna. Með því móti fær barnið stað- festingu þess sem það vill vita, en það er að það eigi ennþá ást foreldra sinna þrátt fyrir undangenginn að- skilnað.

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.