Vorið - 04.11.1933, Síða 8
56
voRie
Tilgamans og fróðleiks.
Pétur: (Stendur á sokkaleistunum við
dyrnar á skólastofunni). »Má eg
skreppa inn í skólastofuna?*
Kennarinn: »Til hvers Pétur minn?«
Pétur: «Eg ætla að sækja skóna mína
svo að eg þurfi ekki að ganga á
sokkaleistunum inn«.
— o — o—o —
Kennslukonan: »Efað 11 kindurstanda
fyrir utan túngarðinn og 6 stökkva
inn á túnið. Hvað eru margar
eftir fyrir utan?«
Pétur: «Engin«.
Kennslukonan: «Jú, jú Pétur minn«.
Pétur: «Nei alls. engin. Pað getur vel
verið að þér séuð góðar í reikn-
ingi, en eg sé að þér þekkið
kindurnar ilia«.
—o—o—o—
í ræðu einni, sem auðmaðurinn og
mannvinurinn Carnegie hélt fyrir
Norður-Ameríkönskum stúdentum
komst hann meðal annars svo að orði:
Pað er ekki heimili miljónaeigend-
anna eða annara slórlaxa, sem senda
frá sér uppfynndingarmennina, píslar-
vottana, stjórnmálaskörungana, skáldin
listamennina og kennarana. Nei þeir
koma venjulega frá alþýðunni. Af nöfn-
um þeim, sem ódauðleg hafa orðið,
eru aðeins fá, sem ekki eru fráalþýð-
unni komin, og oft úr hreysum fá-
læklinganna.
—o—o—o—
Á legstein yfir lítilli stúlku voru
þessi orð eitt sinn rituð:
»Pað var auðveldara að vera góður
þegar hún var hjá okkur«.
Árið 316 fæddist í Ungverjalandi
maður, er síðar gekk undir nafninu
Marteinn frá Tours. Hann varð síðar
klausturstofnandi og kærleiksríkur mann-
vinur. Eitt sinn mætti hann gömlum
manni, sem var að deyja úr kulda. Pá
skar hann sundur kápuna sína og gaf
manninum annan helminginn. Seinna
hvíldi slík helgi yfir kápu þessari, að
hún var geymd eins og helgidómur
í dómkirkjunni í Tours, og var sér-
stakur maður látinn gæta hennar. Kápa
er capa á latínu og maðurin sem átti
að gæta hennar var nefndur kapelán,
og þaðan er komið orðið kapelán, sem
nú er notað um aðstoðarpresta.
»Ja svei! Pú hefur ekki skó á fót-
unum og þó er pabbi þinn skósmiður«.
»Þú skalt nú ekki láta raikið. Litli
bróðir þinn hefur engar tennur ög
þó er pabbi þinn tannlæknir*.
Kaupendur eru beðnir að láta af-
greiðsluna vita ef þeir fá ekki blöðin
með skilum og ennfremur að tilkynna
bústaðaskifti.
Prentsmiðja Odds Bjömssonar.