Vorið - 01.01.1935, Side 13
imi.ri
VÖRÍÖ
13
Máttugri en sverðið
Alexander mikli var voldugur
keisari. Hvar sem hann fór yfir
löndin, fór hann sem sigrandi
hetja, og stofnaði stórt og vold-
ugt ríki.
Þó fór svo að lokum, að hann
beið ósigur fyrir þeim óvini, sem
hann hafði síst óttast.
Á þeim tíma, þegar allt lék í
lyndi fyrir honum, var hann eitt
sinn staddur í Babylon, og hélt
hann þar hvei’ja veisluna á eftir
annari, þar sem vín var veitt í
ríkum mæli.
Eitt sinn, er hann hafði setið
við slíkan veisluglaum heila nótt,
stakk einhver upp á því, að best
væri að halda veislunni áfram og
setjast við diykkju á nýjan leik.
Var þetta samþykt. Tuttugu gest-
ir sátu við borðið og Alexander
drakk skál þeirra allra, og neyddi
þá til að drekka með. Að lokum
var borinn fram hinn svonefndi
Herkúlesarbikar, er var fylltur
og tæmdur í botn. Bikarinn var
fylltur í annað sinn, og Alexander
tæmdi hann, en datt á sömu
stundu örendur á gólfið í veislu-
salnum. Hann var þá aðeins 82
ára gamall.
»Þannig endaði þessi hetja líf
sitt. Hetjan, sem engin vopn virt-
ust bíta á og komizt hafði heill
á húfi í gegnum allar hættur og
ógnir styrjaldanna, sem hann átti
i, og þolað hafði bæði hita og
kulda, og hverskonar eldraunir
hennannsins. Hann beið að Iokum
ósigur fyrir drykkjuskapnum. Á
vígvellinum var hann ósigrandi.
Þar hafði hann alltaf boðið dauð-
anum byrginn. En þegar dauðinn
birtist í líki hins sakleysislega
Herkúlesarbikars, býður hetjan ó-
sigui’, og hlýtur bana«. Á þessa
leið ritar sagnaritarinn Seneca.
Alexander lifði kringum árið
300 f. Kr., og við, sem lifum nú
1984 árum eftir fæðingu Krists
vitum það fullvel, að ósigur sá,
er Alexander beið fyrir vínguð-
inum hefur endurtekið sig svo
oft síðan, að tugir og hundruö
þúsunda manna hafa fallið í val-
inn fyrir hinu banvæna eitri
hans.
Það þarf hugrekki til að vera
hetja á vígvellinum. En það þarf
líka stundum hugrekki til að lifa
sönnu og heilbrigðu lífi, og
gleyrna aldrei skyldum sínum við
sjálfan sig, þjóð sína og fóstur-
jörð.
Nafnaþraut.
(Falin karlmannanöfn.
xrx x rxx.
xuxmxxxxr.
x u x x x r.
x i x x r.
x 1 x x x r.
x i x x x x x r.
x a x x 1 x x r.
xj xxn.
x r x x x x i.
Sigur&ur Njálsson
Siglufirði, 12 ára.