Vorið - 01.01.1935, Page 16
Vókíö
i6
musterið mitt. Ef ég vildi, þá
gæti ég drepið ykkur í hundraða-
tali, aðeins með því að stíga ofan
á ykkur«.
Maurakonungurinn svaraði
engu, en skipaði maurunum að
býrja á starfi sínu, og þeir tóku
til starfa. Hljóðir og þolinmóðir
héldu þeir stai-fi sínu áfram dag
eftir dag, án þess að skipta sér
hið minnsta af því, þótt prestur-
inn hlægi og gerði gys að þeim.
Tíminn leið — langur tími, og
presturinn var bæði búinn að
gleyma maurunum og hatri þeirra
á musterinu. En dag nokkur kom
mikill stormur, svo það hrikti í
musteri prestsins. Stormurinn
varð æ trylltari, og loks fór must-
erið að riða til, þar til það allt í
einu hrundi til grunna með braki
og brestum.
Maurakonungurinn fann prest-
inn grafinn í rústunum og mælti:
»Við erum aðeins smá og lítilfjör-
leg dýr, prestur minn, en á með-
an þú hlóst og gerðir gys að okk-
ur, unnum við jafnt og þétt að
því, að grafa sundur máttarviðina
í musteri þínu, þar til það nú er
hrunið til grunna fyrir fyrsta
storminum, sem á því buldi. Þú
hefur misst líf þitt, prestur, af
því að þú uggðir ekki að þér, en
leist smáum augum á okkur, og
hélst að við værum svo litlir, að
við gætum ekkert gert þér, og þú
þyrftir ekkert að varast«. —
— Ekkert illt er svo lítilfjör-
legt, að það geti ekki orðið okkur
Hér er eitt karlmannsnafn og þrjú
kvenmannsnöfn. Hver eru þau?
Jónas Þ. Jónsson, drýtu.
að meini. Margir trúa því, að
smáskammtar af áfengi séu svo
litlir og ómerkilegir, að þeir geti
engum mein gert. Þeir hlægja oft,
og gera gys að þeim, sem vara þá
við þessum vana. En með tíman-
um geta þessir litlu áfengis-
skammtar farið eins með manns-
likamann, eins og maurarnir fóru
með musterið. Musterið hrundi
fyrir fyrsta storminum. Maður-
inn, sem tamið hefur sér slíkan
vana, getur hrunið, látið lífið fyr-
ir fyrsta sjúkdómnum, sem hann
verður fyrir. Á meðan ekkert
kom fyrir, stóö musterið. Á með-
an ekkert kemur fyrir manninn,
sem áfengis neytir, gengur allt
sæmilega. En lít'ilsháttar mót-
blástur, kvef, inflúensa eða annað
slíkt, getur lagt hann í rúmið —
og gröfina. »Magne«.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.