Bjarmi - 15.01.1907, Qupperneq 6
o
B .1 A R M I
grœðinga viljuni vcr af alhnga styðja
svo að þeir geti náð sönnum vexti og
viðgangi. Og þó að vér gefum oss
sérslaklega við hinum innri málefnum
kirkjunnar, þá munum vér alls eigi
ganga /ram hjá hinum gtri.
Fréttir verða sagðar frá kristilegri
starfsemi i nágrannalöndunum og
getið helztu bóka erlendra, sem krist-
indómsvinum hér á landi gœtu verið
kœrkomnar. En þó að vér viljum
júslega hafa góð dœmi nágrannaþjóða
vorra fyrir augum, þá viljum vér þó
sérstaklega leggja rœkt við það, sem
bezt er í kristindómi þjóðar vorrar,
því að það stendur oss nœst og er
flestum kunnast og hugnœmasi. 1 þvi
skyni munum vér smám saman minn-
ast á líf og starf helztu kennimanna
islenzku kyrkjunnar og önnur góð og
kristileg dœmi.
Blaðið mun flytja stuttar greinar,
leiðbeinandi og vekjandi, og kristilegar,
smásögur, þýddar eða frumsamdar.
Vér munum gjöra oss alt far um, að
blaðið verði alþýðlega ritað. Persónu-
legar deilur og þráttanir viljum vér
forðast, en halda fast og hiklaust fram
kenningum lieilagrar ritningar, sum-
kvœmt skilningi tútersku kirkjunnar,
þar sem hana skilur á við aðrar trú-
arkenningar og skoðanir.
Pað verðnr mjög undir viðtökunum
komið, sem blaðið fœr, hvað oss verð-
ur unt að gjöra til að prgða það að
ytra frágangi, svo sem með myndnm
og nýjum sönglögum. Vér viljum ekki
lofa miklu i þvi efni, en efna þvi meira,
ef föng verða á.
Blaðið heitir »Bjarmi«. og viljum vér
i því nafni fela þá von, að »nóttin sé
umliðin og dagurinn sé i nánd« og
með blaðinu megi i morgunsárinu ber-
ast gleði og friðarljós til ýmsra, sem
enn sitja i daufri skimu, svo að þeir
risi á fœtur og gangi hiktaust undir
merki Krists.
Að svo mœltu sendum vér blað-
ið frá oss og heitum á alla vini Krists
og hans málefnis. að styrkja það eftir
mœtti. Oss er kœrt að fá sem ftestar
raddir frá þeim, sem vilja styðja blað-
ið og stefnu þess, hvort sem það eru
leikmenn eða prestar.
Drottinn vor og konungur kirkjunn-
ar gefi oss náð sina til þess, að blað-
ið megi ná tilgangi sinum, þvi að með
lifandi og slarfandi kristindómi stend-
ur og fellur ÖII timanleg og andleg
velferð hverrar þjóðar.
Friður guðs veri með yður.
Útgefcndurnir.
€
Til íhugunar.
Látið orð Krists búa riku-
legn meðal yðar!
Það er gömul áminning, og sum-
um kann að virðast, að hún sé ó-
þörf. — En til hvers eigum vér þá
að fara, til að leita að orðum eilífa
lifsins?
Hver treystir sér lil að benda á
nokkurn eða nokkuð annað, sem
veiti iðrandi hjarta fulla svölun og
frið, geri stórsyndara að sæmdar-
mönnum og ístöðulitla að hetjum,
og tendri stöðugt vonar- og hugg-
unarljós í svartasta myrkri mann-
legra þjáninga?
En hví heyrast þá oftar þunglynd-
is-andvörp en gleðisöngvar hjá
mörgu guðhræddu fólki vorá meðal?
Og hví er oftar prjedikað og kveðið
um baráttu og raunir, en um glað-
vært, sigursælt trúartraust?
Sumpart liklega vegna þess, að
raunirnar hafa verið sá »prédikar-
inn«, sem hefir haft mest áhrifin vor
á meðal, en sérstaklega þó vegna
þess, að lifandi, barnslegt samband