Bjarmi - 15.01.1907, Side 7
B J A R M I
3
við þrieinan guð heíir vantað viðar
en skyldi. — —
Þeir eru furðumargir, sem þó hafa
lært barnalærdóm sira Helga Hálf-
dánarsonar, er setja upp undrunar-
svip, þegar talað er um »gleðirika
fullvissu um að vér séumguðs börn
og samarfar Krists« (sbr. »Helga-
kver« 109. gr.).
Látíð orð hans búa rikulega á
heimilum yðar, luisbændur, ekki af
tómum vana heldur af kærleika lil
hans, sem elskaði oss að fyrra bragði.
— Hættið ekki að lesa fösturæður
og syngja passiusálmana þann líma,
sem nú fer í hönd. — — En samt
má það ekki vera dauður vani.
Hver, sem nefnir nafn drottins,
láti af öllu ranglæti.
Ósamlyndi, illyrði, ónot og kald-
lyndi getur ekki þrifist á heimilum
yðar, ef orð Krists eru yður kær í
raun og veru.
Þær eru æðikaldar stundum vetr-
arhriðarnar, en þó er kaldara á
sumum heimilunum. Pví opnið
þér ekki hús og hjarta fyrir sól kær-
leikans, þér, sem sitjið í kulda?
Vorhretin valda drjúgum skaða,
þegar nýgræðingurinn visnar og litlu
lömbin verða innkulsa, en skaðlegri
eru þó vantrúar og spillingar næð-
ingar, sem tíðum verða efnilegasta
nýgræðingnum að fjörtjóni, þar sem
orð Krists fá elcki að njóta sin. --
Það er ekki nóg, að orð Krists sé
umhverfis oss, berist að eyrum vor-
um, lieldur þarf það að komast inn
í hjörtun, og þá mun þunglyndi, í-
stöðuleysi og vonleysi rýma sæti. —
Með Kristi er gleði og gæfa, — án
hans er lífið tilgangslítið basl, —
»von, sem þó var að eins tál«. —
S. G.
>k
r
Ur ymsum áttum.
Heima.
Heimilisvinurinn mun ekki koma
úl þetta ár, sumspart vegna þess,
að ýmsir af útgefendum hans eru í
hlutafélagi þessa blaðs, en einkum
þó vegna þess, að meiri hluti af
kaupendum hans og útsölumönnum
hafa ekki enn gert skilagrein til út-
gefandanna.
Kristileg safnaðarstarfsemi i Reykja-
vík, safnaði nálægt 430 kr. handa
fátæklingum bæjarins fyrir jólin í
vetur, og úthlutaði því aftur meðal
98 fátæklinga. Margur er greiðvik-
inn og fús að gefa, en þó sögðu þeir,
sem hlut áttu að máli,aðmunánægju-
legra hefði verið að koma meðgjaf-
irnar og sjá gleðitár fátæklinganna,
en að sýna sumstaðar samskotalist-
ann. — Þaðá margur við erfið kjör
að búa í þakherbergjum og kjöll-
urum Reykjavíkur ogheill sé hverj-
um þeim, sem hleypur undir bagga
með bágstöddum náunga sinum.
Erlendis.
K. F. U. M. í Randaríkjunum taldi
32 þús. meðlimi fyrir 40 árum, nú
eru þeir um 406 þús. og árlegar
lekjur þess eru nálægt 51/* miljón
dollara. Eignir þess i húsum o. tl.
erunærþvi37 miljónir dollara. Fé-
lagið launar 2050 framkvæmdar-
stjórum; sexliu og einn þeirra eru
utan Randaríkjanna.
Krislileg viðleitni (C. E.) hélt alls-
herjar fulltrúaþinö i sumar sem Ieið
í Genf i Sviss. Par voru saman
komnir fulltrúar frá 30 þjóðum, en
mælt á 25 tungumál. Aðalþorri
þessara félaga er í Bandaríkjunum,
en i norðurálfunni eru þau um 9,200
og meðlimir þeiri’a yfir 272,000.
íl