Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.04.1908, Síða 3

Bjarmi - 15.04.1908, Síða 3
B J A R M I 59 allega megi skifta þeim í tvo eðaþrjá llokka. Sumir segja: Guð er sannieikurinn og sannleikurinn er Guð; og þai eð Guð er allsstaðar nálægur og í raun réttri sál alls liins skapaða, þá er liver maður að leita Guðs, sem leitar ein- hvers sannleika, eða réttara sagt leitar að vissu um eitthvert vafaatriði, jafn- vel þótt það sé ekki annað en að rannsaka, hvorl það séu andar l'ram- liðinna eða breytilegur málrómur ein- hvers trúðara, sem lieyrasl kann í myrkrinu. Þessir menn, sem viljandi eða ó- viljandi liallasl lielzt að algyðistrú, lelji þá þar af Ieiðandi sannleikann eins margbreylilegan og mannlegar skoðanir, (munurinn aðallega af því kominn, hvar þeir liafi þreifað á »fílnum«, eða livaða vík af »úthafi sannleikans« hafi orðið fyrir þeim). En þegar menn eru farnir að telja all satt, sem einhverjum sýnist eða finst, er örskaml til öfganna hinna, að l'ull- yrða, að eltkert sé sati. Menn reka sig sem sé á það, hvað eftir annað, að einum virðistþaðhvítt, sem öðrum virð- ist jafnvel svart, og það væri hugsun- arvilla að hvorttveggja sé jafnveru- leiki. Og þá er hitt óyndisúrræðið gripið stundum að fullyrða, að sann- leikurinn sé ekki til, eða minsta kosti verði ekkerl um hann vitað. Alt, sem vér skynjum, sé í raun og veru tál og blekking og draumóramenn einir séu að eltast við hinn svokallaða sann- leika. IJannig byrjaði margur á því að telja sannleikann stærri en úthafið, en komsl von bráðar sjálfur eða kom öðrum á þá skoðun, að sannleikur- inn væri ekki annað en svikull draumur. Þeir bugðu að reisa fagrar liallir liugsjónum sínum, en bygðu á sandi og því hrundu hallirnar í storminum og regninu og vænghrutu allar liug- sjónirnar. Það er ekki furða, þótt þessir menn, sem ýmist segja all vera sannleik eða all tál, beri sannkristnum þröngsýni á brýn, og segi að útsýni þeirra sé eins og lílil smuga, þegar kristnir menn fullyrða, að sáluhjálplegan sann- leika sé livergi að finna, nema hjá Jesú Ivristi. Því miður er því einnig stundum svo hátlað, að þóll menn í orði kveðnu kannist við, að Kristur liafi flutt aðal- sannleikann, þá höndla þeir ekki nema eittlivert brol af lionum og einblína svo á það, að þeim finst þar vera sannleikurinn allur, og skera sig svo á því broti, í stað þess að styðjast við það. Þannig fer l. d. þeim stundum, sem A’ilja muna eftir því einu, að Kristur sagði: »Elska skaltu ná- unga þinn eins og sjálfan þig«. Þeir gela margoft talað fögur orð um kær- leikann og jafnvel skrifað um hann heilar bækur stundum, en þegar svo lil framkvæmdanna kemur í daglegu líli, kemur það þrál'aldlega i ljós, að það vantaði, sem allur sannur mannkær- leiki þarf að byggjast á, trúna og kærleikann lil hins lifandi Drottins. — Og því fer stundum svo að þeim, sem helzt tala um sanngirni og kær- leika, verður það á að vísa þurlega snauðum manni tómhentum á dyr, (eða sýna »kærleikann og sanngirn- ina« meðal annars með þvi, að skipa þeim, sem fastheldnir eru við barna- trú sína á bekk tneð svæsnuslu fjand- mönnum Krists eða jafna þeim við »æstan skril«). En hvað er þá sannleikur í Hvað er áreiðanlegl og slöðugl í þessurn svikula lieimi fallvaltleikans? Hvar getur þreyttur og þyrstur manns- andi, sem sviíið hefir um heirna og geima, en hvergi t'undið annað en leka-

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.