Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.04.1908, Síða 13

Bjarmi - 15.04.1908, Síða 13
B J A R M I 69 „litiiin eigi náð guðs verða til ónýtis á öss“' I3egar listaverkThorvaldsens, mynd- höggvarans fræga, íslenzk-danska, vóru ílutt heim frá Róm til Danmerk- ur á herskipi, þá vildi svo til, að dýrindis líkneski úr marmara rann út úr reipi við uppskipunina og datt niður á götuna og fór í mola. Tlior- valdsen varð mjög angurvær út af þessu. »Ég var búinn að höggva myndina í sveita mins andlitis«, sagði hann; »hún komst ósködduð yfir höíin, mörg hundruð mílur vegar og svo — nú, rétt þegar hún er kom- in heim í landið, sem á að geyma hana, þá fer hún forgörðum«. Ég get skilið sorg Thorvaldsens; ég skil það, að hann vissi hezt, hvað marmaramyndin hafði kostað hann mikla fyrirhöfn; hann lilaul að íinna sárar til þess cn allir aðrir, hvílík hneysa það var, að ln’in skyldi gjör- skemmast, rétt I því er hún kom af skipi á það landið, þar sem hún átti að breiða gleði listarinnar út frá sér í allar áttir. En förum vér þá ekki cins með verk guðs kærleika? Vér höfum séð dálítið af því, hvað guð hefir orðið að þola vor vegna sakir kærleika síns. Vér höfum séð, hvað hann he.fir lagt í sölurnar oss til sáluhjálpar. ()g boðskapinn um þetta hjálpræði helir trúfesti guðs bor- ið óskaddaðan gegnum margar aldir, alt til þessarar kynslóðar. Fagnaðar- boðskapurinn er kominn lil þíu — hann hefir náð til mín. Hann vill komast inn í hvert einasta hjarta og breiða blessun yíir líf vort. Eigum vér þá að hrinda honum fi’á oss? Eigum vér þá, að því er oss snertir, að ónýla verk guðs hci- laga kærleika? Væri það ekki skammarlegt? Eigum vér ekki heldur að opna hjörtu vor fyrir hinni dýrkeyptu náð guðs og biðja: »Droltinn! láttu kærleika þinn fá vald ylir mér!« Jú, það skulum vér gera? Sú hæn hefir búið i sálu minni, meðan ég var að skrifa þetta. Ó, að þú, sem lest þetta, mættir lika verða htils- háttar var við hið sama! (C. Skovgaard-Pelevsen: »Et Blilc i Guds Kærligheds Dyb«.) „Minn vinur er niinn<£. (Lofkv. 2, 16). Trúboðskona ein í Madúra á Indlandi hafði sal'nað að sér fá- einum þarlendum konum; hún las fyrir þeim úr heilagri ritningu og tal- aði við þær um kærleika Jesú lil syndugra manna og um verk hans oss lil sálulijálpar. Ein af konunum lilustaði með stakri eftirtekt á hvert orð, scm hún lalaði og mælti siðan lil hennar: »Stendur það alt þarna í þessari hók, sem þér hafið sagt um Jesúm?« »Já, og miklu meira, sem ég hefi ekki sagt ykkur enn þá«. »Svona bók vil ég fegin eiga. Sélj- ið þér mér eina«. »Það skal ég gera með ánægju. En hvaða gagn hafið hér af bókinni, þér sem ekki kunnið að lesa?« »Satt er það. En bókina vil ég sarnt eiga, af því að hún segir frá Jesú og kærleika hans«. Trúhoðskonan gaf henni þá lítið testamenti, en konan þrýsti því að hrjósti sér og kysti það innilega. Síðan lauk lnin því upp og sagði: »Bendið þér mér á staðinn, þar sem nafn Jesú stendur«. Trúboðskonan gerði það og þá kysti hún þann slað með hinni dýpslu lotningu. Síðan bað liún trúboðskon- una að draga stryk undir það, svo

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.