Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.02.1909, Page 2

Bjarmi - 15.02.1909, Page 2
26 15.1 A R M I. Þegar irelsarinn telur þá upp, er sælir munu verða, þá byrjar hann á þessa leið: »Sælir eru fátækir í andanum; því að þeirra er himnaríki« (Matt 5, 3). Það er fyrsta sporið til sælunnar. Er það ekki nóg, að vér tökum sinnaskifti á þann hátt, að vér líkj- umst börnum að sakieysi og lnein- leika, eins og það gerist hjá börnum? Nei. »Getur blámaðurinn skift hör- undslit sínum eða hlébarðinn flekkj- um sínum?« (Jer. 13, 23). Nei. Hrein- leikinn og sakleysið er ávöxturinn af áhrifum guðs anda á hjartalag vort, þegar hjarta vort hvílist í faðmi frels- arans, og þess vegna telur freisarinn þá ekki fyrst og fremst sæla, sem eru »hreinhjartaðir«. Vér eigum ekki að gera annað en það, sem vér getum, og það er þetta, að vér auðmýkjum sjálfa oss, og verðum smáir, eins og hjálparvana börn, fyrir guði; þá vinnur guð sjálf- ur alt verkið og gerir oss af náð sinni sæla. Lærisveinarnir héldu, að til þess þyrfti sérstakar gáfur eða verk. Þess vegna voru þeir að tala um það sín á milli, Iiver þeirra myndi vera bezt undir það búinn, að hann gæti orðið mikill í himnaríki; þeim kom ekki til hngar, að börn gœtu komið til mála, þegar nm gnðs riki vœri að rœða. Og þegar mæðurnar báru ungbörnin til Jesú, þá ömuðust þeir við þeim, Þeir litu eins og hornauga til drengj- anna og stúlknanna, þegar þau vildu líka vera viðstödd, þar sem Jesús hafði samkomur; þeir ömuðust við því, þegar þau smeygðu sér inn á milli full- orðna fólksins, þangað til þau kom- ust til Jesú. Svo stóðu þau þar og hlýddu á hann og virtu hann fyrir sér og gleðin ljómaði úr augum þeirra. Lærisveinarnir ömuðust við þessu. En frelsarinn kallar á eitt af þessum hörnum og setur það mitt á meðal þeirra og segir: »Hver sem tekur á móti slíku barni í mínu nafni, tekur á móti mér. Gætið yðar, að þér fyrirlítið ekki neinn af þessum smæl- ingjum, því ég segi vður, að englar þeirra á himnum sjá ætíð auglil föð- ur míns, sem er á himni« (5 og 10 v.). Gáfur og hæfileikar eru ekki lítils metandi. En alt slíkt verður að leggja í hönd frelsarans, svo hann geti helg- að það og gert það að náðargjöfum, er svo stjórnist al' anda guðs. Ann- ars eru gáfurnar holdlegar; þær gera oss stæriláta og framkvæma ekkert það er gott sé í raun og veru. »Ekki með valdi og ekki með aíli, heldur með mínum anda, segir drottinn her- sveitanna« (Sak. 4, 6). Þeim, sem mestar eru gáfurnar gefnar og sálar- þrekið, verða líka að taka sinnaskiftum og verða eins og börn, til þess að kom- ast i himnaríki og verða sér og öðr- urn til blessunar. Þess vegna ritar Páll postuli: »Eg er sterkur mitt í veikieikanum« (2. Kor. 12, 10). Það kemur líka einatt fyrir, að guð verður að gera einn eða annan að lítilmagna, lil þess hann geti orð- ið hólpinn (8. v.), ef hann trúir á mátt sinn og megin og vill réttlæta sig sjálfur. Postular Jesú þóttust betri en aðrir menn og hneyksluðusl ol'l á fram- komu hans við tollheimtumenn og bersynduga. Þeir litu svo á, að mál- efninu góða, sem hann barðist fyrir, yrði þetta að tjóni, að það væri hyggi- legra af honum að fá hina réttlátu til fylgis við sig. En hann spurði ekki hold og blóð (þ. e. menn) lil ráða, heldur lét hann kærleikslöngun sína ráða og vilja föður síns á himnum: »Mannsins sonur er kominn til að frelsa það, sem glatað var«, sagði hann. Það gleður hann meira að frnna vilta sauðinn, en liina níutíu og

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.