Bjarmi - 15.06.1910, Síða 6
94
B J A R M I
Trúboðsfélag1 kvenna.
Trúboðsfélag kvenna í Reykjavík
hefir nú starfað í nokkur ár. Er
starf þess fólgið í því, að hlynna að
heiðingja trúboði með ofurlillu fjár-
framlagi árlega. Heíir fé því verið
varið til styrklar starfsemi á Indlandi.
Kvenlæknir, Ingibjörg Larsen, sem
starfar þar, bæði að lækningum og
trúboði, hefir nolið styrklar þessa íé-
lags síðari árin.
Félagið hefir eigi látið á sér bera,
en unnið starl' silt í kyrþey. Eigi að
síður hafa ýmsir góðir menn greitl
fyrir því með ýmsu móti. Og nokkr-
um sinnum hefir félaginu borisl pen-
ingagjafir.
Félagskonur þekkja ekki nöfn þeirra
allra, er réll hafa félaginu hjálpar-
liönd, því sumir liafa óskað el'tir að
nöfn sín væru eigi nefnd, — en guð
þekkir þá, og guð mun launa öijum
þeim, sem láta af hendi rakna fyrir
hans málefni.
Og ekki alls fyrir löngu barsl lé-
laginu rífleg upphæð að gjöf, scm
síra Runólfur Runólfsson fríkirkju-
prestur í Gaulverjabæ safnaði á sam-
komu.er hann hélt í sókn sinni. Var
svo lil mælst um leið og gjöfin var
send trúboðsfélaginu, að fénu skyldi
varið til trúboðs i Kína.
Félagið þakkar presti og söfnuði
gjöfina. Hún var kærltomin, ekki
síst fyrir þá sök, að á seinasta fundi
félagsins, séin haldinn var dagiim
áðar en peningarnir komu, komsl til
lals hið stórkostlega tjón, sem norska
trúboðsfélagið liefir nýlega orðið fyrir
í Kína, af völdum óeirða og upp-
reisnar þar. Og létu þá ýmsar kon-
ur á fundinum í Ijósi ósk sína um
að senda norska trúboðsfélaginu of-
urlitla peningaupphæð að gjöf — en
sjóðurinn er lítill — lélagið er t'á-
tækt — en svo kom þessi peninga-
gjöf ásamt fáeinum öðrum, er við
bættust. Þöltk fyrir gjöfina -- þöklt
fyrír allt, sem gert er fyrir guðsríkis-
starfið á meðal heiðingjanna.
Munum eftir boði hans, sem sagði:
»Farið út um allan heim og kennið
þjóðunum, og skirið þœr til na/ns
föður, sonar og heilags anda«.
Styðjið heiðingjatrúboðið!
Með kærri kveðju frá trúboðsfé-
lagi kvenna — og þökk lil allra er
stult hafa félagið með gjöfum sínum
eða fyrirbænum.
Guðrún Lárusdóttir.
Úr ýmsum áttum.
Erlendis.
Ofsóknir ojr iipphlaup í Kínn. í fylkinu
Kounan hefir jafnan verið ákaft útlendingahat-
ur og þar er kristniboðið yngst en þó furðu
blómlegt. Aðalkristniboðsfélag Norðmanna
hóf þar kristniboð fyrir 8 árum og hefir þar
5 aðalstöðvar, en með 30 útstöðvum og hafði
nál. 600 skírða Kfnverja í söfnuðum sfnum
um áramótin, og um 300, sem voru á undir-
búningsskeiði. Starfsmenn norskir voru um
20 og 60 kfnverskir, 10 skólar með 400 nem-
endum og . 37 kennurum. Ennfremur átti
kristniboðsfélagið 2 sjúkrahús og 1 barnahæli
í fylkinu, en nú er þetta mest alt f rústum.
Skrfll og æsingalýður, um 24 þús., f höfuð-
borginni ChangSha gjörði upphlaup mikið um
miðjan aprfl út af þvf að hrísgrjón höfðu
hækkað svo í verði, að hungur var fyrir dyrum.
Fyrst var áhlaupinu snúið að borgarstjóra;
gat hann þá komið fyrir sig vörnum, þótt
skríllinn dræpi hann degi sfðar. En eins og
vant er f Kfna, snerist æðið gegn útlending-
um, og brendi skrfllinn verzlanir, kyrkjur og
hús þeirra, og kristniboðarnir komust nauðug-
lega undan, styrktir af kristnum Kínverjum.
3 kristniboðar frá Ameríku druknuðu á flótt-
anum og kristniboðar Norðmanna urðu allir
að flýja og mistu flestir aleigu sfna. Þegar
síðast fréttist, var búið að stilla óspektirnar í
höfuðborginni, en vfða annarstaðar í fylkinu
voru æst upphlaup gegn öllum útlendingum,
sem ekki var búið að sefa.